Tíminn - 27.08.1968, Side 15
I*RHMT7I>AGUR 27. ágúst 1968. TIMINN
t;
HEYBRUNI
Framhald af bls. 3.
dagskvöldið og skýrt var frá því,
að eldur væri laus í útihúsum.
En um sjöleytið höfðu menn far-
;ið í fjósið og einskis orðið varir.
Gluggar íbúðarhússins snúa þann
ig, að heimilisfólk, sem er sam-
tals níu manns, varð ekki eldsins
vart.
Er út var komið, var mikill eld-
ur í hlöðu, fjósi og vélageymslu
’og mátti ekki tæpara standa, að
.tækist að bjarga kúnum úr fjós-
inu. Telur Grettir Jóhannsson
.bóndi, að kýrnar hefðu farizt,
hefði eldurinn uppgötvazt fáein-
um mínútum síðar, en þær eru
að þvi er virðist ómeiddar. Um
; 500—600 hestar af heyi voru í
hlöðunni og skemmdist alltaf %
hlutar þess. Glóð var í heyinu
allt þar til síðari hluta dags í
;dag. mánudag, er heimamenn
luku við að slökkva til fulls í
■ hlöðunni.
, Fólk af nágrannabæjum kom
skjótlega á vettvang og síðan
slökkviliðin á Hellu og Hvolsvelli
og tókst fljótlega að slökkva eld-
inn í húsunum. Útihúsin þrjú
gjöreyðilögðust að heita má og
'auk þess skemmdist gamalt íbúð-
, arhús, sem þama er.
Talið er, að eldurinn hafi kvikn
að út frá rafmagni. Útihúsin að
Skarði voru vátryggð.
SÝNA FLUGVÉL
Framhald af bls. 16
ríska flughersins, en hitamæling-
arnar eru unnar á vegxun banda
risku jarðfræðistofnunarinnar og
í samráði við íslenzka vísindamenn.
Sýning vélarinnar á morgun er
, einkum ætluð fyrir íslenzka vís-
indamen og aðra, sem áhuga hafa
á hitamælingum.
'IÞRÓTTIR
Framhaid af bls. 13.
Blackpool — Bristol C. 2—2
Burey — C. Palace 2—1
’ Cardiff — Preston 1—0
' Fulham — Bolton 0—2
'Huddersf. — Derby 2—0
'Middleslbro — Carlisle 1—0
Oxford — Hull 1—1
■ Sheff. Utd. — Millwall 1—0
Leeds og Arsenal eru efst í 1.
deild með 8 stig. hvort, Leeds
einum leik minna. f 2. deild er
Middlesbro efst með 8 stig, en
næst koma Blackburn, Sheff. Utd.
og Charlton ,öll með 7 stig, en
einum leik færra.
FORSETINN
Framhaid aí bls. 16
jám og föruneyti með flugvél
Loftleiða, Þorvaldi Eiríkssyni,
frá Keflavíkurflugvelli til Osló
ar til að vera viðstödd brúð-
kaup Haralds ríkisarfa Noregs
og Sonja Haraldsen.
Haraldur og Sonja verða gef
in saman í dómkir'kjunni í Osló
á fimmtudaginn. Munu fyrstu
gestirnir koma þangað þegar
kl. 15.15, en athöfnin hefst
kl. 17, þegar brúðurin gengur í
kirkju.
Mikilli veizlu, sem halda átti
fyrir brúðkaupið, hefur verið
aflýst vegna atburðanna í Tékkó
slóvakíu.
Flugstjóri í Þorvaldi Eiríks
syni í morgun var Jóhannes
Markússon yfirflugstjóri Loft
leiða.
A VlÐAVANGI
Framhald at bls. 5
Þegar slík gagnrýni kemur
fram, ber forstöðumönnum slíkr
ar þjóðarstofnunar að biðja Al-
þingi að skipa rannsóknarnefnd
eða matsnefnd í málið, og Al-
þingi á að verða við þeirri bón.
Sú nefnd á síðan að segja þjóð
inni rökstutt álit sitt um kaup-
in. Kunni forstöðumenn stofn-
unarinnar ekki þessa kurteisi
við þjóðina, verður Alþnigi að
taka það upp hjá sjálfu sér að
efna til slíkrar athugunar.
RÆÐA ÓLAFS
Framhald af 8 síðu (
fagna, að ungt fólk hefur jafnan
sýnt honum mikinn trúnað. Það
er von mín og vissa, að svo muni
enn verða og jafnvel í enn rík-
ari mæli en nokkru sinni fyrr. En
þá er það líka skylda okkar, sem
eldri erum, að rétta hinum ungu
samherjum örvandi hönd. Fram-
sóknarflokkurinn bindur miklar
vonir við unga fólkið. Hann telur
sig hafa gert mikið fyrir það.
Hann vill sýna málefnum ungs
fólks fullan skilning. Við treyst
um því að stefna hans og þjóð-
málabarátta finni hljómgrunn hjá
ungu fólki. Framsóknarflokkurinn
væntir sér mikils af starfi Sam-
bands ungra Framsóknarmanna,
bæði nú á næstunni og á komandi
árum. Þaðan munu flokknum koma
miklir og góðir starfskraftar, og
efalaust eiga einhverjir þeirra, sem
nú eru í fyrirsvari fyrir samtök
ungu mannanna, eftir að vera í
fararbroddi fyrir flokkinn,
Ég hefi annars staðar gert grein
fyrir því, að Framsóknarflokkur-
inn er og á að vera víðsýnn flokk-
ur, að hann á jafnan að vera opinn
fyrir nýjum hugmyndum, um-
burðarlyndur gagnvart afbrigðileg
um skoðunum flokksmanna á ein-
stökum málum og hleypidómalaus
gagnvart úrræðum og leiðum, sem
um er að velja.
Þess vegna á flokkurinn einnig
að vera skilningsríkur gagnvart
ungum mönnum, þó að þeir hafi
sérskoðanir í ýmsum efnum og
þó að þeir vilji ekki ætíð hlíta
leiðsögn okkar eldri mannanna
heldur fara eigin götur og kanna
nýjar leiðix.. Það, .er.. æskunnar eðli
að vera gagnrý’nin. Það væru aum-
ir æs’kumenn, sem væru ánægðir
með allt eins og það er. Þess vegna
segi ég við ykkur ungu Fram-
sóknarmenn: Sú krafa er ekki gerð
til ykkar, og verður ekki gerð
til ykkar á meðan ég er formaður
flokksins, að þið séuð í einu
og öllu jábræður flokksstjórnarinn
ar á hverjum tíma. Þið eigið að
vera sjálfstæðir leitendur að leið
um og úrræðum. Þið eigið að
leggja eigið mat á menn og mál-
efni. Þið skuluð ekki hika við
að leggja dóm á verk feðranna,
en þið skuluð ekki gera það með
vanþakklátu hughrfari heldur með
skilningi þess, sem á leikinn í
lífinu.
Þeir menn, sem starfa í stjórn-
málasamtökum ungra manna, eru
á vissan hátt eins og boðhlaup-
arar. Þeir renna sitt skeið, af-
henda síðan öðrum sprotann, ganga
út af vellinum og yfir í sveit hinna
eldri manna. Raunar má segja, að
þetta eigi við um alla stjórnmála-
menn. Þeir renna allir sitt skeið,
skamimt eða langt eftir atvikum,
unz þeir eru leystir af hólmi af
þeim, sem taka við merkinu og
bera það í næsta áfanga. Á þessu
verða allir, sem við stjórnmál fást,
að átta sig. Það varðar miklu, að
þeir gangi út af sviðinu sáttir og
með jafnaðargeði.
f sjálfsævisögu sinni segir Hann-
es Þorsteinsson svo: „Og síðan ég
var síðast á þingi, 1911, hef ég
aldrei stigið fæti mínum í þing-
húsið, meðan þingfundir hafa stað
ið þar yfir, eða hlustað á nokkuð,
sem þar hefur farið fram síðast-
liðin 17 ár.“ Og í sviga er bætt
við (Og nú 22 ár, 1933). Það eru
mikil vonbrigði og sárindi fólgin
í þessum ummælum. En þeir eru
því miður fleiri, sem hafa yfirgef-
ið stjórnmálin með svipuðu hugar-
fari. Það er ömurlegt, þegar stjórn
málamenn kveðja leikvanginn með
þvílíkri beizkju. Ungu menn: Þið
skuluð strax bólusetja ykkur gegn
slíkum sjúkdómi.
Skapanornin Skuld heldur traust
an vörð um ríki sitt. Enginn veit
með öruggri vissu hvað framund
an er. Ég get því litlu spáð um
það, hvað gerast muni í íslenzkri
pólitík á næstunni. Hitt vil ég
segja, að það er þörf á þáttaskil-
um og það sem fyrst. Hvort vænta
megi nú á næstunni nokkurra
stakkaskipta, get ég auðvitað ekki
fullyrt neitt um. Það er að
sjálfsögðu að einhverju leyti ósk-
hyggja hjá mér, en ég verð þó
að segja, að ýmislegt virðist benda
til þess, að það fari að styttast_ í
núverandi stjórnmólasamstarfi. Ég
ætla ekki hér að fara að halda
neinn dómsdag yfir núverandi rík-
isstjórn. Ég vil aðeins segja þetta:
Stjórnarflokkarnir hafa farið lengi
með völdin. Þeir hafa fengið öll
þau tækiifæri sem hugsazt geta, en
þeir hafa ekki borið gæfu til að
hagnýta þau sem skyldi. Það er
fáum hollt að fara svo lengi með
völd í senn. Þess eru því miður
mýmörg dæmi, að stjórnin hafi
misbeitt valdi sínu. Slíkt hlýtur
að særa réttlætiskennd allra heið-
arlegra manna, þegar til lengdar
lætur, og þá ekki hvað sízt unga
fólksins. Samkomulag stjórnar-
flokkanna er sennilega eitthvað far
ið að versna á bak við tjöldin. Af
ýmsu má marka, að í stjórnarher-
búðunum gæti vaxandi þreytu. Ég
held, að trúin á getu ráðherra sé
stórlega minnkandi, jafnvel á með
al áhrifamanna í liði þeirra. For-
setakosningarnar voru að ein-
hverju leyti andsvar við stjórnar-
stefnunni. Stjórnarflokkarnir hafa
ekki reynzt vanda sínum vaxnir að
okkar dómi, allra sízt þegar á
móti blæs. Þeim hafa orðið á marg
vísleg mistök, svo sem nú verður
ljósara með degi hverjum. Þau
mistök hafa orðið þjóðinni dýr.
Óleyst vandamál hrannast upp. Sam
þykktir víxlar, óútfylltir, falla á
haustdögum. Vandinn, sem við er
að glíma, er að mínum dómi, mjög
alvarlegs eðlis fyrir þjóðina alla-
Ég hygg, að á þessum tíma sé
engum ljóst, hvernig fram úr hon-
um verði ráðjð í vetur. Hér verð-
ur engu um það spáð, hvað við
kynni að taka, ef svo færi, að
núverandi stjórn gæfist upp. Þar
eru svo mörg atriði óráðin og ó-
ljós. En að sjálfsögðu er hægt að
hugsa sér pólitísk þáttaskil með
ýmsum hætti. Framsóknarflokkur
inn mun þar fara að öllu með
i gát.
1 Ég vil svo að lokum flytja Sam-
bandi ungra Framsóknarmanna
þakkir fyrir þrjátíu ára starf.
( Jafnframt árna ég því heilla á
: ókomnum árum. Eg óska þess, að
þið, sem nú eruð ung, eigið eftir
að sjá marga ykkar drauma ræt-
ast. Ég vona, að ykkur takist að
varðveita hugsjónaauð æskunnar
sem allra lengst. Ég vona, að þið
á efri árum getið tekið ykkur í
munn orð eyfirzka öldungsins Jóns
Davíðssonar, að þið þá heimtið
sverð ykkar og skjöld til að ganga
út í orrustuna við hlið þeirra
Framsóknarmanna, sem þá verða :
í broddi lífsins eða á miðjum j
aldri.
My Fa ir Lady
Audrey Hepurn
Rex Harrisson
Endursýnd kl. 5 og 9
lUUSBBSt
Sumuru
Spennandi ný ensk
Cinema-Scope litmynd
George Nader
Frankie Avalon og
Shiriey Eaton
Bönnuð tnnan 16 ára.
Sýnd kl 5 7 og 9
íslenzkur texti.
þýzk
með
Allar eru þær eins
(Just like a woman)
Einstaklega skemmtileg brezk
litmynd er fjallar um hjóna-
erjur og ýmsan háska i því
sambandi.
Aðalhlutverk: Wendy Craig,
Francis Matthews, John Wood,
Denis Price.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
íslenzkur jexti.
Með ástarkveðju
frá Rússlandi
Heimsfræg og snilldar vel
gerð ensk sakamálamynd.
Sean Connery
Endursýnd kl 5,15 og 9
Bönnuð innan 14 ára.
Slm 1154«
Barnfóstran
(The Nanny)
íslenzkur texti.
Stórfengleg, spennandi og af-
burðavel leikin mynd með
Betty Davis,
sem lék i Þei, þei, kæra Kar-
lotta.
Bönnuð börnum yngri en 14.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
&ÆJAKBI
Slmi 5018«
Operacione Poker
Hörkuspennandi njósnamynd í
iitum.
íslenzkur texti.
Sýnd kl, 9
Bönnuð börnum tnnan 14 ira.
Maður og kona
Hin frábæra franska Cannes-
verðlaunamynd í litum.
íslenzkur texti.
Bönnuð bömum
Sýnd kl. 7
Allra síðásta sinn.
laugarás
Slmar 32075 og 38150
Sautj
an
Hin umtalaða danska litmynd.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
GrUSJÖN STYRKÁRSSON
HÆSTARÉTTARLÖGMADUR
AUSTURSTRÆTl t SÍMI 78353 /
ím
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Gestaleikur:
Látbragðsleikarinn
Marcel Marceau
Fyrsta sýning föstudag 30.
ágúst kl. 20.
Önnur sýning laugardag 31.
águst kl. 20.
Forkaupsréttur fastra frumsýn
ingargesta gildir ekki að þess
ari sýningu.
Aðgöngumiðasalan opin frá
kl. 13,15 til 20. Sími 1-1200.
Hinn heitt elskaði
rive monoN piccure
Wítrx SOMEChiWG ZO I
OjpFEJMD EVERYÖWE!!
Tl\e loved
Qi\e
ROBERT MOHSE • JONATHAN WINTERS
ROD STEIGER ANJftNETTF COMER
Víðfræg bandarísk kvikmynd
gerð af Tony Richardson
(Tom Jones)
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5 og 9
Bönnuð innan 12 ára
T ónabíó
Slm 31182
íslenzkur texti
Skakkt númer
(Boy, Did I get a wrong Numb
er)
Víðfræg og framúrskarandi
vel gerð, ný amerísk gaman
mynd
Bob Hope
Sýnd kl. 5 og 9
Sími 50249.
Árásin á
drottninguna
Frank Sinatra.
Sýnd kl. 9.
18936
V
Tundurspillirinn
Bedford
íslenzkui texti
Afar spennandi ný amerísk
kvikmynd með úrvalsleikurun
um Richard Widmark, Sidney
Poitier.
Sýnd kl. 5, 7 og 9