Vísir - 21.10.1977, Síða 4
f;. r~
Föstudagur 21. október 1977 VISIR
„00 MUN
ÉG HVERGI
FARA"
— Jimmy Carter setur þingið
upp að vegg vegna orkumálanna
Carter, Bandaríkja- sókn slna til niu landa, i
forseti, hefur stillt þing- næsta mánuði ef þingið
inu upp við vegg, ef svo samþykkir ekki áætlun
má að orði komast, og hans um að minnka
hótar að hætta við heim- orkuneyslu i landinu.
HÁVAÐI ER HELSTA
ORSÖK
A TVINNUSJÚKDÓMA
Hávaði er ekki bara óþægilegur heldur einnig
skaðlegur.
/»Sá tími kemur að við
verðum að berjast gegn
hávaða af jafn mikilli al-
vöru og við berjumst nú
gegn kóleru og plágum,"
sagði þýski visinda-
maðurinn Robert Koch/
árið 1910.
Þessi spá hans er nú aö ræt-
ast, ekki sist i hans iönþróaða
heimalandi. Annarhver ibúi
Þýskalands kvartar nú yfir ein-
hverskonar lasleika sem hann
eöa hún .rekur til of mikils
hávaða.
Um tvær milljónir manna
vinna á stööum þar sem
hávaöinn er svo mikill aö heilsu
þeirra er hætta búin. Hávaði er
oröinn helsti atvinnusjúkdómur
i Vestur-Þýskalandi og þeim
fjölgar stöðugt sem fá skerta
heyrn eöa veröa jafnvel alveg
heyrnalausir.
Sömu sögu er aö segja viöa
annarsstaðar i heiminum. 1 hin-
um þróaöri rikjum er öryggis-
gæsla nú orðin svo ströng aö
vinnuslysum hefur fækkaö
verulega.
Atvinnusjúkdómatilfellum
hefur hinsvegar fariö fjölgandi
með hverju ári. Um fjóröungur
þeirra sem teknir eru til með-
feröar vegna atvinnusjúkdóma,
þjást af heyrnarskerðingu og
lækning fæst engin ennþá.
Það eina sem læknavisindin
geta gert fyrir þetta fólk er aö
segja þvi að fá sér heyrnartæki.
I Vestur-Þýskalandi hafa
stjórnvöld nú loks tekið viö sér.
Þar er þaö Verkalýös- og félags-
málaráðuneytið sem hefur með
höndum reglugerðir fyrir
vinnustaði.
Og i mai 1976 voru settar
fyrstu reglurnar um leyfilegan
hámarkshávaða á vinnustöðum.
Bæöi stjórnskipaöar rann-
sóknarnefndir og einkaaðilar
innan iðnaöarins vinna nú að þvi
að finna leiöir til aö minnka
hávaða á vinnustööum. .
Verður ferðataskan ekki tekin fram?
Carter sagöi fréttamönnum aö
hann vilji fá á skrifborð sitt, frá
þinginu, orkusparnaöaráætlun
sem hægt veröi aö sætta sig viö,
áður en hann leggur af staö frá
Washington í næsta mánuöi.
Fréttaskýrendur i Washington
segja að meö þessu sé forsetinn
aö beita þingið miklum þrýstingi:
Annaðhvort taki það snarlega
ákvörðun strax eða þá að þaö taki
ásigsökina af þviaðhindra utan-
rikisstefnu landsins og skapa
stórfellda orkukreppu.
En á bandarikjaþingi eru menn
ekkert óvanir þrýstingi og fyrstu
viðbrögöin voru þau aö Carter
skyldi þá ekkert vera aö pakka
niöur, þvi það væri alveg eins vist
aö fjallaö yröi um orkumálin
fram i desember.
„Og mun ég hvergi
fara”
Oldungadeild þingsins hefur
valdiö Carter miklum vonbrigö-
um, i orkumálum. Fulltrúadeild-
insamtykktiorkuáætlun hanslit-
ið breytta strax i april siöastliön-
um og þaö var talinn mikill sigur
fyrir forsetann.
öldungadeildin var hinsvegar
ekki svo elskuleg. Hún hefur gert
hverja breytinguna af annarri á
áætlun forsetans og þær margar
hverjar svo stórar aö þaö veröur
erfitt fyrir Carter aö kyngja
þeim.
Sérstök nefnd hefur nú verið
sett á laggirnar og er hlutverk
hennar að reyna að samræma
skoðanir forsetans og þingsins i
þessu stórmáli.
Og svona eins og tii aö leggja
áherslu á hve mikla áherslu hann
leggur á að þetta mál leysist,
sagði Carter viö fréttamenn:
, ,Ég álitþetta svo mikilvægt aö
ef þingið hefur ekki lokiö umfjöll-
un sinni um máliö þegar að þvi
kemur aöég leggiupp I ferðmina
til niu landa, þá mun ég taka
lausn þessa máls framyfir ferð
mina og fara hvergi. Heldur mun
ég vera kyrr i Bandarikjunum og
vinna með þinginu að nýrri orku-
löggjöf.”
Carter kvaöst vongóöur um að
hann þyrftiekkiað hætta við ferð-
ina. Og jafnvel þótt þingmenn
hafi svaraö honum hvatskeyts-
lega þegar þeir fréttu um þessi
orö, er enginn vafi á þvi aö press-
an á þá er gifurleg.
Þetta er önnur heimsóknin sem
Carter leggur upp I (ef hann þá
fer), siðan hann tók viö embætti.
Siöasta feröhans þótti takast frá-
bærlega velog styrkja mjög stööu
Bandarikjanna i Evrópu.
í þessari ferö ætlarforsetinn aö
heimsækja ýmis lönd sem Banda-
rikin þurfa aö ná góðu sambandi
viö.Feröaáætlunin hljóöarupp á:
Venesúela, Braziliu, Nfgeriu,
Saudi-Arabiu, Indland, Iran,
Frakkland, Pólland og Belgiu.
Þingiö vill áreiöanlega ekki
láta kenna sér um aö eyöileggja
þessa ferö.
MMCA ÍÖUÖ U1 og JDUIXjJb, ASPEN bílamir sem tóku þátt
Reykjavíkur 9. október 1977 sigruðu í sínum flokki:
3. flokkur:
1. SIMCA 1508 GT ók 82.52 km
2. Austin Allegro ók 80.05 km
3. Audi 80LS ók 70.11 km
7. flokkur:
DODGE ASPEN 6 cyl ók 46.62 km
Chev. Concours 8 cyl ók 39.56 km
Chev. Impala 8 cyl ók 35.39 km
sparaKsturskeppm Bitreiðaiþrottaklub
eyðsla: 6.06 1./100 km
eyðsla: 6.25 1./100 km
eyðsla: 7.131./100km
eyðsla 10.73 1./100 km
eyðsla 12.64 1./100 km
eyðsla 14.13 1./100 km
SIMCA 1508 bíllinn er samskonar bíll og sigraðu næturrallið 1. og 2. okt. ‘77 með glæsibrag.
Þetta sýnir enn einu sinni að bílar frá CHRYSLER eru bæði neyzlugrannir og hagkvæmir í rekstri.
Sparið dýrmætt eldsneyti og akið á bíl frá CHRYSLER.
Hrökull hf.
ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491
ENNEINN
SKjUR!