Vísir - 29.10.1977, Blaðsíða 20
VÍSIR
SMÁAUGLÝSINGAHAPPDRÆTTI VÍSIS! sími
17. okt. - Ein greidd smáauglýsing og þú átt vinningsvon. S 86611
20. nóv. ^ SANYO 20" litsjónvarpstœki frá GUNNARI ÁSGEIRSSYNI er vinningurinn að þessu sinni. Opiö virka daga til kl. 22.00 Laugardaga kl. 10-12 Sunnudaga kl. 18-22
Formenn níu bœjarstarfsmannafélaga svara ummœlum forystui manna BSRB:
/# GAGN RÝI IN | I R ÓRÉTT-
M IÆT 0 G<3 ISI K' ri ISAMLEG"
Formenn níu bæjar-
starfsmannafélaga hafa
opinberlega átaliö gagn-
rýniforystu manna BSRB á
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar vegna
sérsamnings þess við
borgina.
Formennirnir komu saman til
fundar i Reykjavik i gær og
undirrituðu þar yfirlýsingu um
málið.
Þar segir, að i tilefni af „yfir-
lýsingu nokkurra forystumanna i
BSRB vegna samninga tiltekinna
bæjarstarfsmannafélaga, þar
sem þau hafa verið sökuð um svik
við bandalagið, viljum við undir-
rituð taka fram eftirfarandi:
1. Samkvæmt gildandi lögum
hefur hvert bæjarstar ff manna-
félag sjálfstæðan samningsrétt
gagnvart viðkomandi sveitar-
félagi.
2. Reynsla undanfarinna ára
hefur sýnt fram á, að hinir mis-
munandi aðalkjarasamningar
bæjarstarfsmannafélaga hafa
opnað leiðir fyrir aðra opinbera
starfsmenn hvað viðvíkur
mörgum þýðingarmiklum kjara-
atriðum.
3. Við áteljum framkomna
gagnrýni sem óréttmæta og jafn-
framt óskynsamlega”.
Undir þetta rita formenn
starfsmannafélaga á eftirtöldum
stöðum: Helgi Andrésson, Akra-
nesi, Albert Kristinsson, Hafnar-
firði, Sigurður J. Sigurðsson,
Kéflavik, Haukur 0. Arsælsson,
Félagi opinberra starfsmanna á
Suðurlandi, Þórhallur Halldórs-
son, Reykjavik, Einar Norðfjörð,
Seltjarnarnesi, Agnar Árnason,
Akureyri, Friða Hjálmarsdóttir,
Vestmannaeyjum og Einar
Kristjánsson, Mosfellshreppi.
Þótt engin nöfn séu nefnd i yfir-
lýsingu formannanna má telja
víst, að gagnrýni þeirra beinist
fyrst og fremst að æðstu forystu-
mönnum BSRB, sem lýstu þvi
yfir, að ekki hefðu náðst betri
kjarasamningar en raun bar vitni
vegna þess. að Starfsmannafélag
Reykjavikur hefði rofið
samstöðuna og gert sérsamning.
Á þriðjudaginn verður haldinn
ráðstefna formanna starfs-
mannafélaga sveitarfélaga og er
ekki ósennilegt, að þessi mál komi
þar til umræðu.
28 árekstr-
ar í gcerdag
Arekstrar urðu 28 I gærdag,
og er það all mikið. Af þessum
fjölda urðu þó aðeins niu fyrir
hádegi, en allir hinir urðu eftir
hádegi, og var þá ekki hálku
um að kenna.
Árekstrarnir urðu frá þvi
klukkan sex i gærmorgun og
fram til klukkan sjö i gær-
kvöldi. Aðeins minni háttar
meiðsl urðu i sumum árekstr-
anna.
Eitt siys varð þó i gær, en
litilsháttar sem betur fer.
Drengur varð fyrir bil á
Miklubraut rétt fyrir klukkan
tólf, en meiðsli hans voru litil.
—EA
Ríkissjóður safnar skuldum hjó Seðlabankanum:
Skuldin er nú 65 þúsund
krónur ó hvert mannsbarn
Rikissjóður skuldaði Seðla-
bankanum i lok siðasta mánað-
ar tæpa 14 miljarða króna.
Þá hafði skuld rikisins aukist
frá áramótum um 2.976 milljón-
ir króna. A sama tima i fyrra
jókst skuldin um 2.585 milljónir.
—SJ
Lögregluaðstoð við
að loka ríkinu
m
Einkaþota forsetans í
Colombíu í Reykjavík
Einkaþota forseta Colombiu
hafði viðdvöl á Reykjavikur-
flugvelii á leið sinni til Hollands.
Flugvélin er af gerðinni Fokker
Fellowship F 28 og kom til land-
sins gærdag.
Þotan hélt áfram áleiðis til
Hollands i morgun þar sem
framkvæmd verður viðhalds-
skoðun á henni hjá Fokker vérk-
smiðjunum.
Myndin var tekin á Reykja-
vikurflugvelli i gær og eins og
sjá má ætti að fara vel um for-
setann á ferðalögum.
—SG
(Visism. JEG)
— allt fullt í gœrdag
Óskað var eftir iögregluaðstoð
viö áfengisútsöluna á Laugarás-
vegi þegar iokað var i gærdag.
Hafði þá safnast saman hópur
fólks fyrir utan, sem ætlaði að
versla, en þegar var fullt fyrir
innan. Var þvi óskað eftir aðstoð
kiukkan sex, svo unnt reyndist að
ioka án erfiðleika.
Mjög mikið var að gera i öllum
áfengisútsölum iallan gærdag, en
þetta var fyrsti föstudagurinn
eftir verkfallsem útsölurnar voru
opnar. Hafa menn þvi sannarlega
ætlað sér að nota það fyrir helg-
ina.
Allt gekk þó friðsamlega fyrir
sig, og sömu sögu er að segja um
útsöluna við Laugarásveg, en þrir
lögreglumenn voru sendir þangað
svo engin vandræði sköpuðust við
lpkun. —EA
r r
STONDUM FAST I ISTAÐINU
segir blaðafulltrúi Flugleiða
Flugleiðir eiga von á aukinni
samkeppni á Norður-Atlants-
hafsleiðinni. Northwest Air-
iines hafa sótt um leyfi til að
fljúga áætlunarflug milli
Bandarikjanna, tslands og
Norðurianda.
Einnig hefur bandariska flug-
félagið Delta verið nefnt i sam-
bandi við flugleyfi á leiðinni
milli suðurhluta Bandarikjanna
og Mið-Evrópu.
Bandariska flugráðið hefur nú
lagt til viö Carter forseta að
Northwest verði veitt þetta
leyfi.
Að sögn Sveins Sæmunds-
sonar blaðafulltrúa Flugleiða
myndi slikt leyfi auka mjög á
samkeppni félagsins á leiðinni
milli New York og Chicago og
Luxemborgar. Sagði hann að
þessi nýja flugleið Northwest á-
samt fluglest Lakers og afleið-
ingar þeirra leyfisveitinga auki
enn á hörkuna í samkeppni flug-
félaganna á Norður-Atlantshafi,
sem af mörgum væri þó talin
ærin fyrir.
Hann sagði að Flugleiðir
heföu með löngum fyrirvara
undirbúið það hvernig snúist
yrði við þessu, þegar séö var
hvert stefndi. Hefðu flugfar-
gjöld verið lækkuð og ákvæði
um kaup á farmiðum fyrir
þessa leið rýmkuð. Þannig hefði
gildistimi farmiða á vetrarfar-
gjöldum verið rýmkaður.
IATA, alþjóðasamband flug-
félaga, hefur lýst Norður-
Atlantshafsfargjaldamálinu
sem öngþveiti, enda er hvað
harðast barist um flug á þvi
svæði, en mjög stór hluti far-
þegaflutnings fer þar fram.
„Við Flugleiðamenn erum
ákveðnir i að standa fast i istað-
inu i þessari samkeppni,” sagði
Sveinn, „og vonum við að við fá-
um vinnufrið hér innanlands.”
Margir yfirheyrðir í
rannsókn á máli bíl-
stjóra Geirfinnsmálsins
Margir hafa verið kallaðir til
yfirheyrslu vegna þeirrar rann-
sóknar sem nú fer fram á
meintum röngum framburði
Sigurðar óttars Hreinssonar i
Geirfinnsmálinu. Þórir Oddsson
aðalfulltrúi sem stjórnar rann-
sókninni sagði i samtali viö Visi
I gærkvöldi, að ekki væri hjá þvi
komistað fara út I ásakanir Sig-
uröar um að hann hafi sætt
þvingunum við fyrri lögregluyf-
irheyrslur.
Þdrir sagði aö rannsókn á
meintu broti er varðar rangan
framburð og kært var yfir væri
oröin mikil að vöxtum. Siguröur
hefur fullyrt aö fyrri framburð-
ur hans um Keflavikurferöina
hafi verið rangur og hann hafi
ekki farið til Keflavikur kvöldið
sem Geirfinnur hvarf. Hann
hefurbentá marga sem eiga að
vita um ferðir hans þetta kvöld
og sagði Þdrir að nánast allir
þeir hefðu verið yfirheyrðir.
Varðandi það hvort rannsak-
að væri sannleiksgildi fullyrö-
inga Sigurðar varðandi þving-
anir við yfirheyrslur við lög-
reglurannsókn Geir finnsmáls-
ins sagöi Þórir Oddsson:
„Það hefur ekki verið beint
rannsóknaandlag hjá okkur þvi
fyrst erum viö að rannsaka
þetta brot sem hefur verið kært.
Það má náttúrlega deila um það
hvort rétt sé aö við séum að
rannsaka okkur sjálfa ef svo má
að oröi komast. Hins vegar er
erfittað komast hjá því að vikja
aöeins að þvi atriði, en um nið-
urstöður er allt á huldu.”
Þórir sagöistekki geta sagt til
um hvenær rannsókninni lyki,
en Sigurður var úrskuröaður I
gæsluvarðhald allt fram að 9.
nóvember. Þó taldi hann llkur á
að það gæti oröið i næstu viku.
— SG
ERTU ORÐINN ASKRIFANDIAÐ VISI?
Símarnir eru
86611
og 82260