Vísir - 30.10.1977, Side 8

Vísir - 30.10.1977, Side 8
8 Að hrœra samsteypuna Hver þekkir ekki talið um námsleiða unglinga, sem hver skólarannsóknarmaðurinn á fæturöðrum fjallarum I löngum greinum, án þess að vilja skilja aö verulegur þáttur I honum er sifelld barátta þeirra sjálfra gegn heilbrigöum metnaöi barna og ungiinga og aörar aö- Gangi flokkurinn hinsvegar í rikisstjórn tekur hin deildin forystuna... geröiriþágu flatneskjunnar. Nó ætla ég þó ekki aö rabba um þaö fyrirbæri heldur annaö áþekkt, stjórnmálaleiöann. Hann lýsir sér i megnri vantrd á stjórn- málamönnum, sem upp tii hópa séu fagurgalandi meiningar- leysumenn og I sannfæringu um, aö mismunur miili stefnu- miöa st jórnm álaflokka sé sprottinn frá samanteknum ráöum þeirra um aö plata kjós- endur. Margar skýringar hafa veriö gefnará stjórnmálaleiöanum og fylgikvilta hans, þvf stórháska- lega fyrirbæri, aö undirmálsfólk taki aö koma sér fyrir i öllum krókum og kimum flokkanna. Engin ein skýring er einhlit og ég þykist engann skaöa gera, þótt ég bæti einni viö. Tilgáta min ersem sagt sd, aö flokkarnir hafi vaniö sig á deiidaskiptinu i starfi slnu. önn- ur deildin fjalli um pólitiskar Langdrcegu hugsjónirnar eru miklu huggulegri og meðfœrilegri... hugsjónir og stefnumið handa kjósendum en hin um stjórnar- framkvæmd I pólitiskum veru- leika. Fjölmörg dæmi þessa má draga dt úr Islenskum samtima- stjórnmálum. Nefna má grát- broslegan tviskinnung Alþýöu- bandalagsins, einsog flokkurinn hét, þegar þessi grein fór I prentun. t stjórnmá labaráttu þess flokks er brottrekstur varnarliösins og úrsögn úr Nato pólitiskur helgidómur, sem fjallaö er um i trúarofstækisstil. Gangi flokkurinn hins vegar i rikisst jórn tekur hin deiidin for- ystuna. Sjávarútvegsráöherr- ann segir sem svo aö brottrekst- ur varnariiösins sé auövitaö stærsta máliö, en þaö veröi þó aö biöa, svo honum gefist tóm til aö útvega vildarvinum sinum togara meö vildarkjörum. Aö þvi ioknu sé hægt aö snda sér aö þvi suðurnesjamáli. Iönaöarráöhcrrann má heldur ekki vera aö þvi aö sinna mál- inu, þar sem honum hefur loks tekist aö ná samband viö Sameinaöan karbit. Sá auö- hringur hefur veriö hlaöinn verkefnum vegna Vietnams- striðsins en nú viö samdrátt þess sé fariö aö hægjast um hjá honum. Þvi veröi aö gripa tæki- færiö, þvi ekki sé aö vita hvenær önnur stórverkefni á borö viö Vietnam skjóti upp kollinum og þá sé borin von aö ná viö þá viö- tali. Brottrekstur varnarliösins, sem aö sönnu er göfugt hug- sjónamál, veröur þvi aö biöa betri tima. En þegar stjórnar' taumarnír komust I hendur rétttrúaðra þó var ekki annoð gert en skipta um kommissara... Og skrifarinn getur svo sem litiö sér nær I dæmaieit sinni. Hans ágæti flokkur, Sjálfstæöis- flokkurinn. á margar göfugar hugsjónir. Bæöi stór langtlma- markmiö og eins hi'n er tengjast dægurmálunum. Langdrægu hugsjónirnar eru miklu huggu- legri og meðfærilegri enda má gjarnan oröa þær á Ijúfan og þokukenndan hátt og draga framkvæmdir i nokkra áratugi án þess aö svlkja eitt eöa neitt. Hinar, sem eru f eltiljósi manna I gær, i dag og á morgun, eru mun óþægilegri, þvl aö alls kon- ar kverúlantar setja sig á háan hestog ganga á eftir þvf, aö þær séu efndar. Hver man ekki þá voðastofnun Framkvæmda- stofnun rikisins. Þegar vinstri stjórnin sáluga, vanheiiög sé minning hennar, kom ómynd- inni á fót, brugöust sjálfstæöis- hetjurnar góöu myndarlega viö og skáru upp herör. Þeir drógu ekki af sér er þeir lýstu fyrir- bærinu. Ég efast um aö spænski rannsóknarrétturinn fengi verri eftirmæli en fæöingarrolla Framkvæmdastofnunnar var hjá þeim. En þegar stjórnar- taumarnirkomust Ihendur rétt- trúaðra, þá var ekki annaö gert enaöskipta um komissara. Lát- iö var I veöri vaka, aö þar meö væri nokkuð, ef ekki allt unniö. Einhvern veginn grunar mig, aö þeir sem foröum voru kallaöir I viötöl i spænska rannsóknar- réttinn heföu ekki séö mikinn mun á þvi, þótt brúneygöir menn heföu hætt aö klfpa þá meö glóandi töngum og viö töngunum tekiö bláeygöir menn. Þegar úrslit eru kunn, er helmingur- inn lagður til hliðar, og hinn helmingur- inn settur ó öll borð í róðuneytun- um, sem móli skipta... Þegar Harold Wilson forsæt- isráöherra Breta lét af embætti settist hann I gljúfrastein og hóf þvf ritstörf. Skrifaöi hann bók um þaö hvernig Bretlandi er stjórnaö. Vitmenn hafa sagt aö bók þessi sé gölluð nokkuö en hún er nógu góö fyrir mig. Þar kemur fram, aö meöan kosn- ingabaráttan stendur I landinu þvi, sitja allir ráöuneytismenn meö sveittan skallann viö aö dt- búa starfsskrár ráöuneytanna. Þær eru meö tvennum hætti, og draga dám af stefnuskrám stóru flokkanna tveggja. Þegar úrsliteru kunn, er helmingurinn lagönr til hliöar, og hinn helm- ingurinn settur á öll borö I ráöu- neytunum, sem máli skipta. Þegar nýju ráöherrarnir stiga inn I ráöuneyti sin eru helstu ' stefnumál þeirra tilbúin i upp- kasti aö lagafrumvarpi. Þetta er stórkostiegt. 1 því landi er sem sagt ekki gert ráö fyrir aö stefnuyfirlýsingar flokka séu eitt og stjórnarframkvæmd annað. Allir sjá þó, aö hjá okkur væri svona aöferö óbrúkleg, þvi miö- ur. Við búum í landi samsteypu- stjórnanna þar sem hreinar pólitiskar linur eruóþekkt fyrir- brigöi, og eru jafn-fjarri aö veröa uppgötvaöar og upp- þvottavélin á dögum Sokrates- ar. Hitterannað, aö viö þurfum ekki endilega aö vera I hinum öfgunum einsog viö erum nú. Sem sagt þeim, aö fyrstu mán- uöirl starfi hvers ráöherra fari I aö gleyma stefnumálum sinum og fá tilsögn I þvi hvernig ráöu- neytisstjórarnir og aörir em- bættismenn eru vanir aö stjórna ráðuneytum SÍNUM. Sunnudagur 30. október 1977 VÍSIR Rcett við Vilhjólm Þ. Gíslason, fyrrverandi útvarpsstjóra, sem varð óttrœður fyrir skömmu ,/Útvarpiöhaföi ekki úr miklu aöspila f jár- hagslega til að byrja með. Útgjöldin voru þá 60.000 krónur á ári. Þetta skiptist þannig, að 29.000 fóru til tónlist- ar, 13.500 i erindi, 1000 krónur í leikrit, 4.000 i kennslu og 9.200 i fréttir. Þetta hækkaði þó fljótlega, og á 30 ára afmæli útvarpsins, árið 1960, voru tekjur útvarpsins orðnar 16.5 milljónir króna.". Það er Vilhjálmur Þ. Gíslason, fyrrverandi út- varpsstjóri, sem er að rifja upp fyrstu ár íslenska útvarpsins, er við spjöllum saman á heimili hans við Starhaga í Reykjavík. Vilhjálmur er nátengdur sögu íslensks út- varps, enda hóf hann störf við það þegar í upp- hafi. Og útvarpið var starfsvettvangur hans í hátt í fjóra áratugi, siðustu fimmtán árin sem útvarpsstjóri. En jafnframt störfum sínum hjá útvarpinu innti hann mörg önnur störf af hendi. Hann stundaði blaðamennsku um skeið, fékkst lengi við kennslu og hefur alla tíð lagt ritstörf fyrir sig. Hann hefur sent frá sér margar bækurnar frumsamdar eða þýddar, og enn á hann mörg handrit i handraðanum, enda fæst hann ekki sið- ur nú en áður við ritstörf, þótt hann sé kominn á áttugasta og fyrsta aldursár. Heimili hans ber þess líka greinilega vott, að þar býr maður bókmenntanna, því þar eru vegg- irn þaktir bókahillum með íslenskum og erlend- um bókum. „TONLISTARFLUTNINGUR ÚTVARPSINS HÓFST MEÐ HANDSNÚNUM GRAMMOFÓN" Nafn: Vilhiálmur Þ. Glslason Fæddur: 16. september 1897 i Reykjavik Foreldrar: Þorsteinn Gíslason, ritstjóri, og Þórunn Pálsdóttir, kona hans Nám: Stúdent frá MR 1917, melstarapróf i Islenskum f ræium frá Háskóla Islands 1923, framhaldsnám i Kaupmannahöfn, Osló, London og Oxford. Aðalstörf: Skolastjóri Verslunarskóla Island 1931—1953. Fréttamaður útvarpslns 1930—1935. Bókmenntaráðunautur útvarpsráðs 1935—1953. útvarpsstióri 1953—1967. 1 Félagsstörf: A námsárunum formaður Stúdentafélags Reykjavlkur, Stúdentafélags Háskólans, Norræna stúdentaf élagsins og Stúdentaráðs Háskólans. Formaður, eða stjórnarmaður, i fjölmörgum félögum, svo sem Blaðamannafélagi Islands, Norræna félaginu, Reykvikingafélaginu og Fegrunarfélaginu. Atti lengi sæti i menntamálaráði og var formaður þess, og i ýmsum öðrum nefndum. Formaður Þjóðleikhússráðs frá upphafi. Ritverk: Hefur ritað fjölda bóka, ritgerða og erinda, og þýtt skáldsögur, fræðibækur og teikrit úr erlendum málum. Maki: Inga Arnadóttir frá Skútustöðum við Mývatn. Börn: Þór, hæstaréftardómari, Yrsa Inglbjörg skrlfstofustúlka, og Auður Eir, prestur. En fyrst og siðast er Vilhjálmur þekktur sem út- varpsmaður og útvarpsstjóri, og við spyrjum hann fyrst, hvenær hann f$kk áhuga á út- varpi. „Ahugi minn á málefnum útvarps hófst á meðan ég var blaðamaður við Lögréttu á þriðja áratugnum. Þar kom út- varp stundum til umræðu. Þorsteinn Gxslason, ritstjóri, talaði stundum um möguleik- ana á nýrri blaðatækni, þar á meðal að fréttablöð myndu að einhverju leyti færast yfir á bönd. Það varð nú ekki, en þetta vakti áhuga minn á möguleik- um útvarps.” Langur aðdragandi að rikisútvarpinu „Rikisútvarpið hóf göngu sina 21. desember 1930, en það átti sér langan aðdraganda og var ekki fyrsta útvarpið, sem hér var rekið. Aöur hafði t.d. Lárus Jóhannesson, gamall vinur minn og stúdentsbróðir og hug- myndaríkur framkvæmdamað- ur, stofnað hér útvarp með Ottó Arnar. Ég talaði reyndar fyrst i það útvarp. Það var i Búnaðar- félagshúsinu nokkrum árum áður en rikisútvarpið kom til sögunnar. Þá voru einnig gerðar ýmsar tilraunaútsendingar áður en rikisútvarpið hóf starfsemi fyrir alvöru. Til dæmis var útvarpað frá opnun Landspitalans. Þá töluöu Jónas Jónsson og Guðmundur landlæknir. Einnig voru ýmis erindi send út i til- raunaskyni. Ég man t.d. að Sigurður Nordal flutti erindi um bækur og útvarp, og Einar Arnórsson um Þjóðabandalag- ið.” Ýmsir viidu útvarp i eigu einstaklinga „Það var Tryggvi Þórhalls- son, sem upphaflega samdi frumvarp til laga um rikisút- varp með aöstoð Gisla Ólafsson- ar, landsimastjóra. Svo var Jónas Þorbergsson beðinn aö verða útvarpsstjóri. Hann sagði mér, að hann heföi gert margar breytingartillögur við þetta frumvarp og haft til þess aðstoö Ólafs Kvaran. Þegar útvarpið var á döfinni var deilt um það, hvort þetta skyldi heita „útvarp” eða „við- varp”, og t.d. er „viðvarp” not- að i fyrstu uppköstunum. En að lokum varð „útvarp” ofan á. Einnig var um það deilt, hvort útvarpiö ætti að vera rikisrekið eða i einkaeign. Það varð úr að lokum, að þaö skyldi vera á veg- um rikisins. Þetta var auðvitaö pólitisk ákvörðun, og nokkur urgur varö út af þvi, þar sem þeir, sem voru með einkaút- varp, töldu á rétt sinn gengið.” „útvarpið er iifæð landsins" „Mikil eftirvænting var hjá fólki þegar fariö var að ræða um útvarp i alvöru. En hjá ýmsum gætti einnig nokkurs kviða. Sumir bókmenntamenn og rit- höfundar héldu til dæmis, að út- varpið myndi verða mjög háskasamlegt fyrir bókaútgáfu og jafnvel blaöaútgáfu. Það varð nú ekki. Mér er óhætt að fullyrða, að útvarpið varð þvert á móti til þess að auka mikiö bókasölu og bókalestur i land- Vilhjálmur i hópi sjónvarpsstarfsfóiks eftir upptöku ávarpsins sem hann flutti við upphaf fyrstu útsend- ingar islenska sjónvarpsins 30. september 1966. Siðar, þegar sjónvarpið kom til sögunnar, mátti heyra þessa umræðu nokkurn veginn endur- tekna. Útvarpið þótti annars mikil tiðindi, og t.d. var mikiö ort um það. Við fengum sendar margar visurnar, sérstaklega þó utan af landi. „Útvarpið er lifæð landsins”, byrjaði eitt kvæöið man ég var, og einnig var ort: „Útvarpið er Islands menning, orkuver og þroskabraut”. Útvarpiö náði nokkuð viöa um landið þegar i upphafi, en hins vegar var frekar fátt um viö- tæki i sveitum til að byrja með. Þá var algengt, að fólk, sem ekki hafði viðtæki, fíykkt’ist á þá bæi, þar sem slik tæki voru, til þess aö hlusta. Til aö byrja með munu viðtæki hafa verið um 200 tals- ins, en þeim fjölgaöi nokkuð fljótt upp i 3000 eöa þar um bil, og þaö þótti mikill vöxtur”. „...handsnéri litlum grammófón" „Útvarpið byrjaði starfsemi sina i Edinborgarhúsinu, og að- stæður voru þar fremur frum- stæðar. Tónlistarflutningur út- varpsins hófst t.d. með þvi, að Emil Thoroddsen handsnéri litl- um grammófón, en hann og Þórarinn Guömundsson voru fastráðnir hljóðfæraleikarar. Allar útsendingar voru beinar til að byrja með. Menn komu þá niður i útvarpsstöö til aö flytja mál sitt eða tónlist þar. Það þótti á þessum tima mjög hátiö- legt að koma i útvarp. Ég minn- ist þess t.d., að þegar fólk kom i skálda- og upplestrarþátt, sem ég stjórnaði, voru allir þátt- takendur prúðbúnir. Konur komu þá i sparipeysufötum sin- um með stokkabelti og silki- slifsi. Allir sem töluðu i útvarp á þessum árum, notuðu handrit, enda var þeim sagt aö gera það. Þó voru undantekningar. Ég man t.d. eftir einni ágætri þjóðkunnri frú, sem sagðist ekkert vera upp á það komin aö hafa handrit. Hún vildi bara fá að tala frjálst. Hún átti samkvæmt dagskránni aö flytja 20 minútna erindi, en þegar hún hafði talað i rúmar fimm minútur hætti hún og sagöi: nú er ég búin að segja allt, sem ég ætlaði að segja! Og þar meö þurfti að flytja tónlist i staöinn það sem eftir var þess tima, sem hún hafði fengið úthlutað. Lítiðum vélrænar upptökur á þeim árum „Vélrænar upptökur voru mikið til nýjar á þessum tima hérlendis. Jón Pálsson, bankagjaldkeri og tónlistarmaður, hafði gert dálitið af þvi að taka upp þjóð- lög á gömlu Edisonsvalsana. Viðtql: Eiías Snœland Jónsson Myndir: Jens Alexandersson

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.