Vísir - 15.11.1977, Page 23
„Dælurnar voru ekki ónýtar I Eyjum”, segir lesandi.
,Dœlurnar voru ekki
ónýtar í Eyjum'
Vestmannaeyingur skrifar:
Ég hef mikiö veriö i Eyjum og
var þar i gosinu. Ég tel mig þvi
geta mótmælt þvi sem fram
kom i Visi þann 8. nóv. sl. Þar
segir Guöjón Petersen eftir
Valdimar K. Jónssyni aö hraun-
kælingardælurnar hafi veriö
ónýtar þegar þær komu til Eyja,
hafi veriö ónýtar meöan þær
voru þar og séu þaö enn.
Dælurnar voru ekki ónýta
þegar þær komu hingaö til
lands. Ónýtar dælur heföu
aldrei getað dælt eins miklv
magni og þær geröu i Eyjum
Þær voru ekki ónýtar þá, þó svc
þær geti veriö brotajárn nii. Er
þá er þaö skammarlegt aö lát£
þær hrynja niöur, þegar alltai
getur veriö þörf fyrir þær ann
ars staðar.
___________
Bifreiðaeigendur
athugið
Við lagfærum hemla á öllum gerðum bifreiða.
17 ára starfsreynsla tryggir yður góða þjónustu.
Framkvæmum ennfremur almennar viðgerðir, ef óskað er.
Höfum ávallt fyrirliggjandi hemlahluti i allar gerðir ameriskra
bifreiða á mjög hagstæðu verði.
STILLJNG HF.
Skeifan 11
símar
31340-82740
— Hótel Borgarnea
Róðstefnuhótel
Gisti- og matsölustaður
Sendum út heitan og
kaldan mat.
Ennfremur þorramat.
30% fjölskylduafslóttur
af herbergjum fró
1/12 77 - 1/5 78.
Odýrt og gott hótel i
sögulegu héraði.
Pantanir teknar
i sima 93-7119-721£
orgameá
Kór Menntaskólans við Hamrahliö var meðai þeirra sem sungu negrasálmana
/ÖIIÍ5 " j
1 4J»* vdí’JÖCT 1
® jBr • 9: íhU ' J
VILL FA NEGRASALMANA AFTUR
Kona um fertugt skrifar:
Það er ljómandi hressilegt hjá
ykkur að bjóöa upp á svona glæsi-
lega getraun og vonandi bætast
ykkur áskrifendur I tugatali. Al-
mennt er ég mjög ánægð meö
blaöiö og ljóöaþátturinn er finn.
En svo ég viki aö öðru og þaö
eru tilmæli til dagskrárstjórnar
sjónvarps. Það hafa mjög margir
talað um þaö aö þeir vildu fá
endursýndan þáttinn frá norrænu
kóratónleikunum þar sem negra-
sálmar voru sungnir. Þetta er
dagskrá sem allir hafa mjög
mikla ánægju af.
Ekki var ég hrifin af þættinum
með Hauki Mortens (sá hann aö
visu i svart/hvitu), en mikiö
mega litirnir vera fallegir ef þeir
eiga aö bæta upp mærðarlega
dansleiki. Mér fannst allir daprir
og litil stemning. Nóg aö sinni.
Hlustendur
bœnastundar
jafn rétt-
hóir þeim
er iðka
morgun-
leikfimi?
Þóra Jónsdóttir skrifar:
Ég vil leyfa mér að vekja máls
á og gagnrýna þá ráöstöfun hljóð-
varps aö morgunbæn er flutt á
þeim tima er fjöldi landsmanna
hefur ekki tök á aö hlýöa. (Fyrir
kl. 8 virka daga, kl. 8 sunnudags-
morgna.) Sjálfsögö þjónusta viö
hlustendur væri að endurtaka
bænastund siðar i morgunút-
varpi, sbr. morgunleikfimi. Hver
er ástæðan aö svo er ekki gert?
Umtimaskorterekkiað ræða. Má
það ráða af uppfyllingarhjali þul-
anna i morgunútvarpi.
Veit ég það ósk fjölmargra að
bænastund veröi endurtekin virka
daga og flutt til sunnudags-
morgna. Vænti ég aö hlustendur
bænastundar séu jafnréttháir
þeim er iðka morgunleikfimi.
ATHUGIÐ!
Tískupermanent - klippingar og blástur.
(Litanir og hárskol).
Nýkomið mikið úrval af lokkum.
Ath. gerum göt í eyru. Mikið úrval af
tískuskartgripum og snyrtivörum.
Hárgreiðslustofan
Lokkur
Strandgötu 1-3 (Skiphól)
Hafnarfirði simi 51388
♦ -
vism a ruiifti rcuu
Ég undirritaður óska að gerast áskrifandi að Visi. Síðumúla 8 P.O.Box 1426 101 Reykjavík SÍMI 86611
Nafn
Heimilisfang
Sveitarfél./Sýsla
Slmi Nafn-nr.
*