Vísir - 18.11.1977, Page 8
Auglýsing um umsóknir
um starfslaun rithöfunda
Hér með eru auglýst til umsóknar starfs-
laun fyrir árið 1978 úr Launasjóði rithöf-
unda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og
reglugerð gefinni út af menntamálaráðu-
neytinu 9. júni 1976.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa islenskir
rithöfundar og höfundar fræðirita. Heimilt
er og að greiða laun úr sjóðnum fyrir þýð-
ingar á islensku. Starfslaun eru veitt i
samræmi við byrjunarlaun menntaskóla-
kennara skemmst til tveggja og lengst til
niu mánaða i senn.
Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfs-
laun i þrjá mánuði eða lengur, skuldbind-
ur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi
meðan hann nýtur starfslauna. Slik kvöð
fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum,
enda skulu þau einvörðungu veitt vegna
verka sem birst hafa næsta almanaksár á
undan.
Skrá um birt ritverk höfundar og verk,
sem hann vinnur nú að, skal fylgja um-
sókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum
eyðublöðum, sem fást i menntamálaráðu-
neytinu. Mikilvægt er að spurningum á
eyðublaðinu sé svarað, og verður farið
með svörin sem trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 1. janúar
1978 til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavik.
Reykjavik, 15. nóvember 1977
Stjórn Launasjóðs rithöfunda.
PASSAMYIVDIR
fteknar í liftum
tilbúnar slrax I
karna & ffölskyldu
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á hluta I Baldursgötu 19, þingl. eign
Sigurðar Ottóssonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag
21. nóvember 1977 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 87., 89. og 90. tbl. Lögbirtingablaðs 1976 á
Rjúpufelli 2, þingl. eign Ingvars Þorvaldssonar fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og Veðdeildar
Landsbankans á eigninni sjálfri mánudag 21. nóvember
1977 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta I Hjaltabakka 20, talinni eign
Bjarna Magnússonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag
21. nóvember 1977 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 26., 27. og 28. tbl. Lögbirtingablaðs 1976 á
hluta I Efstasundi 6, þingl. eign Einars Guðbrandssonar
fer fram eftir kröfu Útvegsbanka tslands á eigninni sjálfri
mánudag 21. nóvember 1977 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siöasta á hluta I Hraunbæ 128, þingl. eign Péturs
Guðmundssonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag 21.
nóvember 1977 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
„Stal lín er
ekki hér"
— frumsýning i Þjóðleikhúsinu um helgina
Þjóðleikhúsið frum-
sýnir „Stalin er ekki
hér” eftir Véstein Lúð-
viksson i kvöld og önnur
sýning verður á sunnu-
dagskvöldið.
Leikritið sem er I sex þáttum
geristi Reykjavlká vormánuöum
árið 1957. Að sögn höfundar er
þetta fjölskyldudrama, aöalinn-
takið er fjölskyldan sem sllk i
sinu þjóðfélagslega samhengi.
Stalin gamli kemst þannig inn i
dæmið að faðirinn á heimilinu,
sem er járnsmiður er félagi i
sósialistaflokknum og kommi af
gömlu linunni.
Dóttirin sem er nýkomin heim
frá útlöndum, er á nokkuð ann-
arri lifsskoðun en pabbinn og það
er eitt af átakaefnum verksins.
Hlutverkin eru sex og nokkuð
jafn stór. RUrik Haraldsson leik-
ur pabbann, Bryndis Pétursdóttir
leikur siðari konu hans og meö
önnur hlutverk fara Anna Kristin
Arngrimsdóttir, Steinunn Jó-
hannesdóttir, Siguröur Sigurjóns-
son og Sigurður Skúlason.
Leikstjóri er Sigmundur Orn
Amgrimsson en leikmynd og
búninga gerði Magnús Tómasson.
Þetta er fyrsta verk Vésteins
sem Þjóðleikhúsið tekur til
sýningar en fyrir nokkrum árum
skrifaði hann „Jónas i hvalnum”
fyrir Leikfélag Akureyrar og
Vésteinn Lúðviksson
hann hefur einnig skrifað út-
varpsleikrit og nokkra stutta
þætti.
—ÓT
JB >
Sviðsmynd úr
„Indiánun-
um”.
INÖÍÁNAR í FlíNSBORG
Menningarfélag
Flensborgarskóla frum-
sýnir i kvöld leikritið
Indiánarnir, eftir Arthur
Kopit, og fer sýningin
fram i skólanum sjálf-
um.
Þetta er annað árið i röð sem
Menningarfélagiö ræðst i að svið-
setja viðamikið leikrit. Siðastlið-
inn vetur var sýndur söngleikur-
inn ,,Ó þetta er indælt strið”.
1 fréttabréfi frá Menningar-
félaginu segir aö þetta verk hafi
fyrst verið flutt árið 1968 af „The
Royal Shakespeare Company”, i
London. Ari siöar var þaö sviösett
i Washington og Þjóðleikhúsið tók
það til sýningar leikárið 1972-1973.
Kopit skrifaði þetta leikrit á
árunum 1966-68 og var striðið i
Vietnam kveikjan að þvi. 1 fréttá-
bréfinu fyrrnefnda segir:
„Leikritið fjallar um hlutskipti
Indiána I Bandarikjunum og þaö
hve réttur minnihlutahópa er fót-
um troðinn af þeim sem meira
mega sin.
Aðalsöguhetjan, Buffalo Bill, er
vinur indiánanna og góði strákur-
inn sem vill öllum vel. Hann er
óendanlega hjálpsamuren verður
óafvitandi sá sem einna mest
stuðlar að niðurlægingu indián-
anna.
Æfingar á leikritinu hófust i
september og hefur undirbúning-
ur staðið látlaust i rúma tvo mán-
uði. Leikendur eru 27 en alls hafa
milli þrjátiu og fjörutiu manns
unniö af kappi og samviskusemi
við gerð búninga, leiktjalda og
margvislegra leikmuna.
Sex sýningar eru fyrirhugaðar i
skólanum. Sú fyrsta er I kvöld kl.
20.30, en næstu sýningar verða
dagana 20., 21., 24., 25. og 27.
nóvember.
Þær hefjast allar á sama tima,
kl. 20.30. Forsala aðgöngumiða
verður I skólanum frá kl. 15-19
daglega.
Vlsunda Villi á fáknum slnum
(Sveinn Vilhjálmsson)