Vísir - 16.12.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 16.12.1977, Blaðsíða 2
2 Föstudagurinn 16. desember 1977' VISIR c í Reykjavík ^ 1 y ^ Ferðu oft á skiði? Hinrik Þórhallsson, afgreiðslu- maður: Aldrei, ég fór þegar ég var yngri en hef ekki tima til þess núna. Ingólfur Sigurðsson, afgreiðslu- maður: Aldrei stigið á skiði á ævinni. Hins vegar er ég sér- fræðingur á þotu. Ingibjörg Jóhannsdóttir, af- greiðslustúlka: Nei, ég hef einu sinni farið á skíði en ég fer stundum á skauta. Baldur Jóhannsson, afgreiðslu- maður: Ég fer aldrei á skfði nú orðið. Ég gerði það þegar ég var yngri. Asmundur Eiriksson, af- greiðslumaður: Ég fer annaö slagið á skíði upp í Bláfjöll. Ég æfði einu sinni skfðagöngu og keppti á landsmótum. Hér sitja þeir saman og hlusta á æfingu fyrir tónleikana I kvöld — frá vinstri: Páll P. Pálsson Sigurður Björnsson framkvæmdarstjóri Sinfónfuhljómsveitarinnar og tónskáldið Atli Heimir Sveinsson. Atli Heimir Sveinsson: „Enginn vill hlusto á íslensk tónverk" ,,Ég er mjög óánægður með timann sem tónleikarnir eru haldnir á, en þegar ég gerði at- hugasemd við það fékk ég slikt svar frá Sigurði Björnssyni framkvæmdarstjóra Sinfóniu- hljómsveitar islands að seint mun gleymast.” Þetta sagði Atli Heimir Sveinsson tónskáld er við höfð- um samband við hann vegna flutnings á hinum fræga flautu- konsert hans sem hann hlaut verðlaun Norðurlandaráðs fyrir. Verk þetta verður flutt á tón- leikum Sinfóniuhljómsveit- arinnar i Háskólabiói i kvöld undir stjórn Jean-Pierre Jacquillat, en einleikari verður Kanadamaðurinn Robert Aitk- en. „Þegar ég ræddi um það við framkvæmdarstjórann, að verkið væri flutt á slæmum tima — ifyrsta lagi á föstudagskvöldi og öðru lagi rétt fyrir jól — sagði hann, að það væri nákvæmlega sama hvenær islenskt tónverk væri flutt. Það kæmi enginn til að hlusta” sagði Atli. „Fyrir islenskt tónskáld er þetta sama og að fá hnefahögg beint i andlitið. Það er nógu eif itt að starfa sem tónskáld hér á Islandi, þótt maður fái ekki svona kveðjur frá einum af æðstu yfirmönnum tónlistarlifs- ins i landinu. Maður fer ósjálfrátt að spyrja sjálfan sig: — til hvers er ég að þessu, ef álit þeirra sem ráða er þetta — og er þá nokkur ástæða til að halda áfram tónsmlðum hér á tslandi ef þeir sem ráða gefa það fyllilega I skyn að það sé ekki til neins... enginn vilji hlusta? Flautukonsertinn verður fluttur á tónleikunum i kvöld ásamt tveim verkum eftir Mo- zart. Ég hafði haft spurnir að þvi að fyrirhugað hafi verið að verkið yrði flutt úti á landi en nú hef ég heyrt að hætt sé við það. Astæðan er sögð sú að verkið sé of þungt fyrir utanbæjarfólk. Ég skil varla að það geti verið þyngra fyrir utanbæjarmenn en borgarbúa að hlusta á það. En þeir sem ráða rikjum hjá Sin- fóniunni hafa sjálfsagt ein hverja skýringar á þvi eins o§ öðru”. —klp- ...Ekki svona hátt — ekki svona hátt... stjórnandinn Jean Pierre Jacquillat að störfum. nýtt verð Samkomulag um nýtt fiskverð sem taka á gildi 1. janúar n.k. hefur ekki náðst I Verðlagsráði sjávarútvegsins og hefur ákvörðun fiskverðs verið visað til yfirnefndar. I tiikynningu frá Verðlagsráði segir að engin von sé til þess að samkomulag náist nema til komi ráðstafanir að hálfu hins opinbera. Sé þessi aðstaða að þvi leyti óvenjuleg að nú sé markaðsverð að jafnaði hærra en nokkru sinni fyrr en hvort- tveggja bágur hagur fiskveiða og fiskvinnslu. Visir hafði i morgun samband við Friðrik Pálsson, hjá sjávar- ber á um fisk ##- segir Óskar Vigfússon afurðadeild SIS, fulltrúa fisk- kaupenda og sagðist hann ekk- ert vilja tjá sig um málið á þessu stigi. Einnig var haft samband við Eyjólf Isfeld Eyjólfsson framkvæmdastjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna. Taldi hann þær ráðstafan- ir hins opinbera er til greina kæmu vera til dæmis útvegun rekstrarfjár til fiskvinnslu- stöðva. Hins vegar kvað hann ekki rétt að gefa yfirlýsingar að svo komnu máli, þvi á morgun væri aukafundur hjá Sölumið- stöðinni um stöðu frystihús- anna. Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands tslands og fulltrúi seljenda i Verðlagsráði sagði i samtali við Visi að nú bæri allt á milli. „Hnifurinn stendur i þeirri kú að fiskkaup- endur telja sig ekki geta greitt hærra verð fyrir fiskinn en hins vegar hefur fiskverð ekkert breyst siðan i júli og það gefur auga leiö i okkar veröbólguþjóð- félagi að sjávarútvegur getur ekki risið undir hækkandi kostnaði án þess að fá tekjur á móti. Það er eðlilegt og sjálf- sagt að hið opinbera skapi sjávarútvegi og fiskvinnslu rekstrargrundvöll”. —KS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.