Vísir - 10.01.1978, Síða 2

Vísir - 10.01.1978, Síða 2
Heldurðu að það fari að a giósa á Kröflusvæðinu? Lárus Bjarnason, afgreiðslumað- a ur: Ég get nú ekkert sagt um það. Samkvæmt siöustu frétt- um má búast við öllu; en maður vonar að ekkert alvarlegt gerist. Guðmundur Jónsson, 11 ára: Já, B ég tel það. Ég er alveg klár á þvi. Broddi Kristjánsson, nemi: Nei, ég býst nú ekki við þvi. Þetta er " bara kvikuhlauD. ekki von á þvi. Það sem nú er aö j gerast er bara þetta venjulega. Helga Edvardsdóttir, húsmóðir: ■ Ég veit ekki. Ég hef nú ekki verið á landinu undanfarið og hef ekki R getað fylgst með fréttum. En ég gæti bara best trúaö þvi að það ■ fari að gjósa. ; I F ' Þriðjudagur 1«. janúar 1978 VISIR „Engin truflun ó fram- leiðslu Kísiliðj- unnar" — sagði Þorsteinn Ólafsson fram- kvœmdastjóri „Þetta hefur ekkert komið við okkur og við höfum ekki orðiö varir við neina skjálfta”, sagði Þorsteinn Ólafsson framkvæmdastjóri Kfsiliðj- unnar i samtali við Vísi. Sagði Þorsteinn, aö þessi slðasta hrina á Kröflusvæðinu hefði ekki valdið neinni truílun á framleiðslu verksmiöjunn- ar. Hins vegar hefðu þeir oröiö fyrir nokkrum truflunum fyrir jólin. Annars voru allar þrær meira eöa minna lekai; en þó sagði Þorsteinn, aö þeir heföu væntanlega nóg hráefni fram á vorið ef ekkert sérstakt kæmi fyrir. „Menn eru ósköp rólegir”, sagöi Þorsteinn, „og viöbúnir, ef eitthvað fer að gerast”. — KS. Þorsteinn óiafsson Jón Iilugason á skrifstofu sinni. „Allt með ró á yfírborðinu" — Sagði Jón lllugason formaður al- mannavarnarnefndar í Mývatnssveit ,,Það er allt með ró á yfirborðinu” sagði Jón Illugason, oddviti, for- maður almannavarna- nefndar i Mývatnssveit i samtali við Visi i gær- kveldi,” og engir nýir i viðburðir gerst. Viðvörun frá viðvörunarkerfi almannavarna var hringd út á laugardagsmorgun. Þetta var hringing úr flokki 1, en hún kall- ar saman almannavarnanefnd- ina og nokkra fleiri aðila til fundar. Sett var vakt á stjórn- borð almannavarna fram til kvölds. Það fyrsta sem nefndin gerði var að athuga samgöngu- leiðir og var vegurinn til Húsa- vikur hreinsaður.” Jón sagði, að komið hefði til álits að flytja menn úr Kísiliöj- unni á brott en ekki hefði oröið af þvi þegar ljóst varð, að um- brotin voru þaö noröarlega að þeim stafaði ekki hætta afx en upptökin að skjálftunum og kvikuhlaupiö eru i norðurátt, i Kelduhverfi. „Menn taka þessu meö ró hér”, sagði Jón. „Þeir eru ýmsu vanir. Jarðfræöilega er þetta mikill viðburöur en menn finna enga skjálfta og ef mælarnir heföu ekki verið hefði enginn vitað af þessum umbrotum.” —KS Londsbankinn: Rannsaka þú sjálfan þig Varfærnin I ráðamönnum, þegar kemur til rannsóknar og athugana á vafasamrri starf- semi,riður ekki við einteyming. Þegar ljóst var, að skipakaup voru notuð i stórum stil til að afla fjár til geymslu erlendis eða tilað tryggja,aö rfkisábyrgð á slfkum kaupum næði til alls verðsins, hófst athugun á skipa- kaupum og almenningi létti stórum þar sem horfur voru á þvi að fyrir þetta yrði tekið, og frekara svindli yrði aflétt. En ó- ekkf. Rannsóknin nær aðeins til skipakaupa í Noregiog þeir sem kynnu að hafa svindiað við skipakaup annars staðar eins og t.d. i Danmörku, þar sem þegar hafa fundistálitlegar innistæður ibönkum, munu alveg losna við dtta og svefnlausar nætur. Þegar sjálfur þjóðbankinn, Landsbanki islands, stendur frammi fyrir þvi að þar hefur verið framið stórfellt svindl, hvarflar ekki að ráðamönnum bankans að kalla til óviðkom- andi menn, rannsóknarlögreglu og sérfræðinga til að rannsaka ástandið I ábyrgðadeild bank- ans. Bankastjórnin rýkur að vfsu til og lætur handtaka mann með pompi og prakt, þótt heyrst hafi að þessi maður hafi gert banka- stjórninni tilboð, og byrjað sið- an að skammta rannsóknaraðil- um gögn um málið. Enn er ekki ljóst hverjir vinna bessi gögn fyrlr bankann. Er það kannski endurskoðun bankans sem ekk- ert vissi? Kannsóknin á Landsbanka- málinu,máli þjóðbankans er þvi þannig háttað að rannsóknar- lögreglan veit ekkert nema það sem bankastarfsmenn vilja láta hana vita, og það sem Haukur Heiðar kann af mildi sinni að segja henni. A sama tlma er heiður og æra þjóðbankans I veöi, þeirrar stofnunar sem hafði einna mesta tiltrú al- mennings. Landsbankarann- sóknin hefur öll einkenni þess að vera rannsókn undir feldi, og á- gætir bankastjórar og annað starfsfólk bankans hefur hrein- lega ekkert gott af þvf að rann- sókninni skuli hagað eins og gert he. veriö. 1 ljósi annarra rannsókna rfk- isins á afbrotamálum eins og at- hugunar þeirrar, sem nú fer fram á skipakaupum — frá Nor- egi, kemur rannsóknin á Lands- bankamálinu kunnuglega fyrir sjónir. Alls ekki er vert að gera þvi skóna aö gögn þau, sem Landsbankinn hefur afhent og á eftir aö afhenda vegna þessa máls, séu ekki fullnægjandi. Það er ekki mergurinn málsins. Landsbankinn sem slfkur er það mikilt aðili að þessu máli að það getur varla talist viðeigandi hans sjálfs vegna að ekki skuli kallaðir til sérfróðir og óvið- komandi menn til að vinna að þessu máli innan bankans. Og nú er manni spurn? Hvar er hetjan ólafur Jóhannesson, bankamálaráðherra? Hingað til hefur því vcrið haldið fram, að hann léti sér ekki lynda að standa I skugganum af nokkrum manni. Samt er nú eins og hann ætli sér að láta bankastjóra Landsbankans einráöa um framkvæmd rannsóknar, sem beinist aö meintri ólöglegri at- hafnasemi innan bankans. Ólaf- ur Jóhannesson hefur vald til að koma vitinu fyrir bankastjór- ana.Sem bankamálaráðherra á hann að segja þeim að hann uni þvi ekki að Landsbankinn stjórni rannsókninni sjálfur. Rannsóknarlögreglan og þeir sérfræðingar sem hún kann að kveðja sér til aöstoðar, á auövit- að að hafa með þetta mál ALLT að gera. Annars gjósa upp alls konar efasemdir og gróusögur sem illt er undir að búa, og nær óþolandi fyrir réttmæt yfirvöld, nema það hafi verið ákveðið á einhverjum bankaráðsfundin- um i Landsbankanum, að bank- inn skyldi hafinn yfir tittlinga- skit eins og svindl upp á tugi milljóna. Svarthöfði

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.