Vísir - 30.01.1978, Qupperneq 8

Vísir - 30.01.1978, Qupperneq 8
Bílprófun Visis: Lada Sport: Þeir komu fyrir tuttugu árum, gömlu, góðu rússajepparnir, og i skjóli skrýtinna tollaákvæöa nutu þeir þeirra forréttinda, að vera einu jepparnir, sem höföu upp á eitthvert pláss að bjöða, án þess að vera fokdýrir. Næsta bylting varð bandarisk: Broncó-æðið árið 1966, og frægðarsól rússajepppanna dofn- aði. En nú eru rússarnir komnir af tur. að visu mun minni en áður, en nú er það gerð þeirra og tækni- leg hönnun, sem gerir þá liklega til að höggva strandhögg á ný. Biltæknilegur viðburður FiatCampognolaer eini jeppinn, sem mér er kunnugt um, sem er meö heilsoðið, sjálfberandi hús og óháða f jöðrun á öllum hjólum. Range Rover er eini jeppinn, sem hefur gormafjöðrun á öllum hjól- um, Range Rover og ýmsir amer- iskir jeppar eru með Quadra-track, þ.e. mismuna drif á milli fram- og afturdrifs, sem hægt er aö læsa. Range Rover og margir amer- iskir jeppar eru likir fólksbilum i útliti og i innréttingu. En Lada Sport, hinn nýi rúss- neski smájeppi er hinn eini, sem er búinn öllum fyrrtöldum nýj- ungum, að þvi undanskildu, að hann er ekki með óháða f jöðrun á afturhjólum. Hingað til hafa austantjaldsþjóðir verið á eftir vestrænum þjóðum i bilasmiði, en með Lada-jeppanum hafa Sovét- menn skyndilega skipaö sér i for- ystusveit i biltækni, og hafa greinilega verið námfúsir læri- sveinar Itala, sem veitt hafa vest- rænni tækniþekkingu austur fyrir tjald. I grein á bilasiðu Visis snemma i haust var því spáð, að Lada-jeppinn yrði bill ársins 1978 á íslandi. Eftir að hafa reynslu- ekið þessum bil við fjölbreyti- legar aöstæður á vegum og veg- leysum, er óhætt að slá þvi föstu, að fátt getur komið i veg fyrir sigurgöngu þessa bils hér á landi. Að visuerekkihægt aðsjá fyrir nú, hvort hann verði haldinn ein- hverjum barnasjúkdómum, en leynist engir alvarlegir gallar i bilnum, á hann vafalaust bjarta framtið, þrátt fyrir haröa sam- Stærstu kostirnir eru tveir: Hiö lága verð og svo, að hann er með heilsoðið hús og enga grind. A venjulegum jeppum stelur grind- in miklurými, þar sem hún skag- ar niður úr bflnum, og hvað hæð snertir, fara svo sem 15-25 senti- metrar til spillis. Væri Lada-jeppinn með grind, væri hann annað hvort 15 sentimetrum kviðsiðari eða heildarhæð bilsins 15 sentimetrum meiri. Auk þess er minni hætta á, að húsið liðist og t.d. afturhurð skrölti. Gallarnir eru tveir: Meiri söngur berst frá hjólunum upp i bilinn á möl. 1 Lada-jeppanum er hávaðinn frá hjólunum 84 desibel á malar- vegiá70 km hraða, eða svipaður og i venjulegum fólksbilum, en meiri en i ýmsum jeppum, t.d. Broncó, þar sem hávaðinn er að- Lada og Bronco: stuttir og breiðir og háir, góðir á ósléttu landi með hryggjum og hólum, börðum og skorningum. keppni af hálfu Subaru og þeirra jeppa, sem fyrir eru, og væntan- lega ekki siður hins nýja Simca Rancho, sem er miklu rúmbetri billogöllu mýkri, en hefur aðeins drif á framhjólum. Þróuð hönnun Litum þá nánar á kosti og galla hins nýja jeppa. eins 79 desibel. Vélarhljóðið er i háværara lagi, 78 desibel á mal- biki, og upp i 90 desibel, ef hún er þeytt. Enn má telja, aö á venju- legum jeppum er hluti af fjöðrun- inni á ósléttu landi fólginn i sveigju grindarinnar, en á Lada-jeppanum verða gormarnir að s já um þetta allt, en þeim tekst það býsna vel. Þú sparar tugþúsundir króna ef þú lætur endurryðverja bifreiðina reglulega Ódýr ryðvörn sem aöeins tekur 1 til 2 daga Rydvarnarskálinnsigtúni5-simM94oo 1. SPRAUTUN: Fyrst er þunnu ryðvarnarefni (Tectyl 153B) spraut- að í öll samskeyti, brot og suður, en það hefur mjög góða eiginleika til að smjúga inn i staði þar sem mest hætta er á ryðskemmdum. Þetta efni er einnig sett inn í hurðir, lokuð rúm, vélarhús o.fl. 2. SPRAUTUN: Eftir að sprautun 1 er lokið, er sprautað þykkara ryðvarnarefni (Tectyl 125) á staði, þar sem meira mæðir á, svo sem allan undirvagn og bretti. 3. SPRAUTUN: Að lokum er sprautað gúmmímassa innan í bretti og á alla viðkvæma staði undir bílnum til frekari hlífðar ryðvarnarefninu og til einangrunar. ÞURRKUN: Að sprautun lokinni heldur bifreiðin áfram á lyftunni inn í þurrkskáp, en þar er ryðvarnarefnið á bif- reiðinni þurrkað með heitum loftblæstri. ÞVOTTUR: Að lokum er bifreiðin þrifin að utan jafnt sem innan. Fyrst er hún úðuð með hreinsiefni og síðan spraut- uð með vatni, þannig að Tectyl og önnur óhreinindi á lakki skolast burt. ÞURRKUN: Eftir nákvæman þvott, er bifreiðinni ekið í lyftu inn í þurrkskáp og þurrkuð með 60—70° heitum loft- blæstri. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum, sem nauðsynlegt er að framkvæma, til að ná sem bestum árangri gegn ryði og tæringu, þ. e. að bif- reiðin sé bæði hrein og þurr þegar ryðvarnarefni er borið á. Verklýsing á ryövörn ÞVOTTUR: BORUN: Þegar bifreiðin er orðin þurr, er henni ekið úr þurrkskápnum. Síðan eru boruð 8 mm göt til að koma ryðvarnarefninu Tectyl í öll holrúm og á þá staði, sem nauðsynlegt reynist með hliðsjón af þar til gerðu plani, sem til er yfir flestar tegundir bif- reiða. — Öllum slíkum götum, sem boruð hafa verið, verður lokað eftir sprautun á snyrtilegan hátt með sérstökum plasttöppum. Óhreinindi á undirvagni og annarsstaðar eru þvegin burt með upplausnarefni og heitu vatni (sem hefur þrýsting allt að 130 kg/cm2). Kemur það í veg fyrir að óhreinindi geti leynst í undirvagni eða hjól- hlífum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.