Vísir - 30.01.1978, Síða 10

Vísir - 30.01.1978, Síða 10
10 Mánudagur 30 . janúar 1978. ‘ utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pólsson óbm. Ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð mundurG. Pétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Jónína Michaelsdóttir, Katrín Pólsdóttir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Öli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Jón Einar Guðjónsson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, AAagnús Ölafsson. Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8 símar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Síöumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 1700 ó mónuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 90 eintakiö. Prentun Blaöaprent h/f. Uppstokkun bankakerfisins Olaf ur Jóhannesson viðskiptaráðherra hef ur boðað að hann muni leggja fyrir alþingi frumvarp að nýjum bankalögum. l frumvarpinu munu vera fá önnur ný- mæli, sem markverð teljast, en reglur um herta endur- skoðun i bönkunum. Er það léleg eftirtekja að loknum miklum undirbúningi. Væntanlegt frumvarp ríkisstjórnarinnar að nýrri bankalöggjöf verður því hvorki fugl né fiskur. í raun og veru mun það litlu sem engu skipta, hvort það verður f lutt eða ekki. Það mun ekki breyta illa sköpuðu banka- kerfi og í engu hrófla við fjárfestingarlánasjóðunum, sem sannarlega eru allt of margir og illa skipulagðir. Endurflutt frumvarp Lúðvíks Jósepssonar um nýja viðskiptabankalöggjöf er miklu merkilegra og miðar um margt að nauðsynlegri uppstokkun í bankakerfinu. Frumvarpið er samið á grundvelli álits bankamála- nefndar, undir forystu dr. Jóhannesar Nordals, sem á sinum tíma skilaði skýrslu með tillögum um róttækar breytingará öllu bankakerf inu, viðskiptabönkum, spari- sjóðum, innlánsdeildum og f járfestingarlánasjóðum. i vinstri stjórninni varð ekki samkomulag um breyt- ingar á bankakerfinu. Stjórnarflokkarnir þrír þorðu ekki af hagsmunalegum ástæðum að brjóta kerfið upp. Skömmu áður en vinstri stjórnin sprakk, vorið 1974, lagði Lúðvik Jósepsson frumvarpið f ram á alþirigi, þó að ekki haf i náðst um það samstaða, en það var leikur í innbyrð- is refskák stjórnarflokkanna á þessum tíma. Nú hefur þetta frumvarp verið lagt fram að nýju. Margt bendir til að endurflutningur þess sé, sem fyrc fremur þáttur i hefðbundinni flokkspólitískri refskák en málefnalegt framlag af hálfu f lutningsmanns til endur- skipulagningar bankakerfisins. Eigi að síður ber að fagna f rumvarpinu, þvi að það miðar að nýrri skipan bankakerfisins sem er hálfgerður óskapnaður. Stjórnarf lokkarnir mættu gjarnan hressa lítið eitt upp á andlitið fyrir kosningar. Uppstokkun bankakerfisins gæti verið einn þáttur i þeirri pólitísku hressingarleik- fimi, sem þingmenn þurfa nú að leggja aukna rækt við. Stjórnarþingmenn ættu t.d. að nota meirihlutaaðstöðu sina til þess að vísa viðskiptabankaf rumvarpi Olaf s Jó- hannessonar frá og ræða síðan alvörubreytingar á grundvelli þess frumvarps sem Lúðvík Jósepsson hefur nú endurflutt. Megingallinn við bankakerf ið er skipting þess eftir at- vinnugreinum. Atvinnuvegaskiptingin skapar of mikla áhættu við dreifingu lánsfjármagnsins. Sveifla niður á við i einni atvinnugrein getur hreinlega kippt stoðunum undan rekstri viðkomandi banka. Þetta hefur að nokkru leyti gerst hér að því er útveginn varðar. Landsbankinn er nánast eini bankinn;sem hefur nokk- urn veginn eðlilega dreifingu útlána eftir atvinnugrein- um. Frumvarp Lúðvíks Jósepssonar gerir á hinn bóginn i samræmi við tillögur bankamálanef ndar dr. Jóhannesar Nordals, ráðfyrirað Otvegsbankinn og Búnaðarbankinn verði sameinaðir. Með því fengist banki álika stór og Landsbankinn með viðunandi dreif ingu lánsf jár milli at- vinnugreina. Þó að varasamt sé að fækka bönkum um of vegna valddreif ingar er nauðsynlegt að vinna að sams konar uppstokkun á hlutafélagabönkunum. Enn fremur er brýnt að sameina f járfestingarlánasjóði, sem á ýmsan hátt eru dragbítará arðsemi atvinnuvegaf járfestingar. Endurskoðunarfrumvarp Ólafs Jóhannessonar, við- skiptaráðherra, leysir ekki þann vanda sem við er að etja á þessu sviði. Óhjákvæmilegt er að stokka kerfið upp eins og það leggur sig. En ef að líkum lætur dagar þetta mál uppi i þinginu eins og algengast er þegar um er að ræða viðfangsefni sem skipta máli. VÍSIB Náttúruverndarróð leggst gegn virkjun Dynjandisár: VILL AÐ FJALLFOSS SÉ ,,utsýni til fossins fyr- ir botni Dynjandisvogs, af þjóðleiðinni noröan Arnarf jarðar, gerir hann að eftirminnilegu nátt- úrufyrirbæri hverjum þeim er þá leið fer. Fag- urt umhverfi hans eykur enn á reisn hans. Hugsan- leg skerðing þessa vatns- falls og umhverfis þess er því augljóslega mikið tjón fyrir alla sem unna náttúru landsins og þeim dýrgripum sem hún geymir." Þessi kafli er úr greinargerð um afstöðu Náttúruverndarráðs til virkjunar Dynjandisár í Arnarfirði. Fossinn sem um ræðir er Fjallfoss og leggst Náttúruverndar- ráð gegn þvi að vatnsfall Dynjandisár við Fjallfoss verði virkjað. í stuttu máli telur Nátt- úruverndarráö að vernd- argildi Fjallfoss og þýð-. ing hans sem náttúru- vættis sé meiri en hugsanlegur efnahags- legur ávinningur af virkj- un hans. Telur ráðið, að íslendingar hljóti að hafa efni á aö friða hann og eftirláta hann afkomend- um sinumtil ráðstöfunar í samræmiviðþá lifsskoðun sem siðar kann að ríkja. í greinargerð Náttúru- verndarráðs segir, að fossinn muni ekki skaðast i útliti eins mikið og búast mætti við. Hins vegar verði óhjákvæmilega umtalsverðar breytingar á hinni náttúrulegu um- gjörð fossins af völdum beirra mannvirkja sem verðiþarmuni rísa og jarð- rasksvið byggingu þeirra, þó að gætt verði ýtrustu varfærniog allt gert til að fela framkvæmdir sem mest. Jafnframt segir í greinargerðinni, að áætl- aður kostnaður við um- rædda virkjun sé hár miðað við ýmsa aðra kosti til virkjunar i land- inu og fullt eins öruggt að útvega Vestf irðinga- fjórðungi raforku með öðrum hætti, t.d. með tengingu við landskerfið með línu frá Hrútafirði til orkuveitissvæðis Mjólk- árvirkjunar. Enn fremur segir, að í viðræðum við heima- menn og i opinberum um- ræðum, sem að vísu hafi veriö takmarkaðar, hafi ekki verið lagt kapp á að fá þessa virkjun og f lestir sem hafi tjáö sig um mál- ið hafi talið óhæft að taka fossinn til virkjunar. — KS HAGFRÆÐINGURI (Jtlt'iidir hagfræúiugar eru ekki fólk ifréttumá islandi eins og t.d. leikkonan E. Taylor og danska kóngafólkið. Fer vel á þvi — landsmenn hafa ekki undan að fylgjast meö síöustu afrekum is- lenskra hagfræöinga. Fyrir fimm eða sex árum þekkti hinn almenni lesandi lik- Íega aöeins þrjá útlenda hagspek- inga. Flestir höföu heyrt Karls Marx gelið aö góöu eöa illu og enski hagf ræöi ngurin n J.M. Keynes var svo vel þekktur, að nokkur fjöldi manna gat lesiö úr stöfunum J.M. Eoks könnuðust margir við J.K. Galbraith, sem lengi var kennari við llarvard-há- skóla, cn hann hefur unnið þaö einstæða afrek að skrifa metsölu- hækur um efnahagsmál (sbr. þó Kommúnistaávarpiö eftir Marx og Engels ). Friedman og Keynes A þessum árum höföu sárafáir islendingar heyrt getið unt bandariska hagfræöinginn Milton Friedman. t'að átti þó fyrir Friedman karliaö liggja aö veröa frægur á Fróni og reyndar lika i heimspressunni. Að visu kom þcssi Irægð nokkuö seint: einu eöa tveimur árum áöur en hann fór á eftirlaun hjá Chicago-há- skóla, en hann var kennári þar árin 194(i-197(>, eftir að liann haföi lokiöölium meiri háttar visinda- störfum og um svipaö leyti og fræðistörf hans tóku aö sæta nokkurri gagnrýni meöal færustu hagfræðinga i liópi skoöana- bræðra. Ileimsveröbólga siöustu ára og wElm ísCSÍV £ m§ iWii Bandariskir róttxklingar segja að Fricdman og allir aðrir sem styðja markaösbúskap og kapitalisma bcri ábyrgö á ógnar- stjórninni i C'hile. Dr. Þráinn Eggertsson, lektor, skrifar hér um hag- fræðinginn Milton Fried- man, sem hlaut Nóbelsverð- laun i grein sinni áriö 1976. Vinstri sinnar liafa mjög beint spjótum sinum gegn Friedman og telja hann ábyrgan fyrú' ógnarstjdrn- inni'í Chile. Friedman fór þangað i fimm daga fyrir- lestrafcrö 1975 Þráinn segir aö flestir borgaralegu- hagfræðingar taki mörgu i kenningum Friedmans meö varúö og segist sjálfur vera í þeim hópi. V____________________________/ mikiö atvinnuleysi er ekki i sam- ræmi við kenningar Keynes. Þessari atburöarás haföi Fried- man hins vcgar spáð, og stjarna hans reis i horgaralegum fjöl- miölum. \instri pressan á hins vegar heiðurinn af þvi að gera hann að superstar, illræmdri að vísu. Einlægir lesendur viröast nú trúa þvi, að Friedman sé sjálfur vondikarlinn iheimi hagfræðinga og láir þcim það enginn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.