Vísir - 29.03.1978, Síða 3
vism Miövikudagur 29. mars 1978
3
Læknað með bænum.
Aldis telur sig hafa fleiri en eitt
dæmi um lækningamátt Agpaoas
og segir að ekki sé alltaf nauðsyn-
legt að fara til hans til Filipseyja,
hann geti með fyrirbænum lækn-
að fólk um langa vegu.
Sem dæmi um það nefnir hún að
hún fótbrotnaði um ökla 2. janúar
siðastliðinn. Hún skrifaði Agpaoa
um óhappið og hann kvaðst
mundu biðja fyrir henni, ásamt
starfsfólki sinu. Þau Aldis höfðu
þá verið i bréfasambandi nokkuð
lengi en aldrei sést.
Aldisi þótti bati sinn undra-
verður. Hún losaði sig við hækjur
og göngugips ótrúlega fljótt að
henni fannst og þann 8. febrúar
var hún ferðbúin til Filipseyja og
hafði þá aðeins stift teygjuband
um fótinn.
Ekki var það þó vegna fótbrots-
ins sem hún fór utan, heldur
vegna þess að hún hafði lengi
þjáöst af brjósklosi i baki. Auk
þess var hún með slit i þind sem
gerði henni erfitt um andardrátt.
/,Ég sá innyfli"
Aldis bæði gekkst undir aögerð-
ir sjálf og horfði á aðgerðir á öðr-
um. Hún var með myndir af þessu
sem hún leyfði okkur aö sjá, þótt
hún vildi ekki leyfa birtingu i
blöðum, þar sem myndirnar voru
mjög persónulegar.
A myndunum virtist okkur sem
handbrögðin væru mjög svipuð og
hjá þeim „andaskurðlæknum”
sem sýndir voru i sjónvarpsþætt-
inum, og nefndum það við Aldisi.
„Það er alls ekki óeðlilegt.
Þessir menn eru að nota sér
frægð Tonys til að græða. Þeir eru
auðvitað að herma eftir hand-
brögðunum.”
Aldis sagði þó að sá væri regin-
munur á vinnubrögðum að
Agpaoa reyndi ekki aö fela með
höndunum hvað undir væri, eöa
bregða yfir það Bibliu, eins og
MKSOTÍ tfclWB
Antonio Agpaoa predikar.
gert var i sjónvarpsþættinum.
„Þegar hann gerði þindar-
skurðinn á mér og tók burtu slitið,
lofaði hann islenskri konu sem
þarna var, að horfa á. Hún fékk
að sjá inn i likamann og hann lét
hana meira að segja leggja hönd
á þindina inni i mér”.
Þessi kona heitir Jóhanna
Kristjánsdóttir og við hringdum i
hana til að fá lýsingu hannar á þvi
sem gerðist:
„Ég vil taka það fram aö ég var
þarna-i skemmtiferð en ekki sem
sjúklingur. Ég fór bara af forvitni
til að sjá aðgerðirnar, þegar það
bauðst. Þegar læknirinn gerði að-
gerðina á Aldisi fannst mér sem
hann hreinlega opnaði likamann
og ég sjá. innyfli.
Mér varð óglatt við þetta, en
Agpaoa tók hendina á mér og
lagöi hana á þindina, inni i likama
Aldisar. Ég hef áöur verið við
uppskurði á venjulegu sjúkrahúsi
og ef þetta voru ekki innyfli sem
ég þarna sá þá hef ég aldrei séö
innyfli. Ég hef alltaí verið van-
trúuð á allt svona andastúss og til
dæmis gert grin að bróöur minum
sem er mikill spiritisti. En ef
þetta voru sjónhverfingar......
það bara getur ekki verið.
Ég veit ekki hvað ég á aö halda
eftir þetta, en ég þori allavega
ekki að þvertaka fyrir að þetta
geti gerst”.
„Sástu breska sjónvarpsþátt-
inn um andaskurölækningar?”
„Já, ég sá hann og það var ekk-
ert þessu likt. Þar voru auðsjáan-
lega kuklarar og svikarar á ferð-
inni. En þetta var allt, allt öðru-
visi. Viö vorum reyndar vöruð viö
þvi að allskonar svikahrappar
væru að reyna að gera sér þessa
starfsemi að féþúfu.”
//Stykki" fjarlægð
Agpaoa tók, eða virtist taka
„stykki” úr likama Aldisar en
engin ör sjást eftir. Sjálf er hún
sannfærð um að hann hafi numiö
á brott meinsemdir hennar, og að
sér liði betur: „Ég er til dæmis
hætt aö taka meðul við þindinni”.
Ekki getur hún alveg gert sér
grein fyrir hversu hress hún er
orðin. Þegar hún kom heim þurfti
hún að gangast undir aðgerð. þar
sem læknar tóku burt naglann
sem haföi. verið settur I hana
vegna fótbrotsins.
Eftir þá aðgerð var hún mjög
máttfarin og ekki farin að lifa svo
eðlilegu lifi að hún viti enn með
fullri vissu að öll hennar mein séu
úr sögunni.
Kostnaður við þessa ferð Aldis-
ar var 400 þúsund krónur.
Læknisaögerðirnar eru sagðar
ókeypis en hinsvegar búist við að
sjúklingarnir láti af frjálsum
vilja eitthvað af hendi rakna. Um
þá hlið málsins vildi Aldis ekki
tala. „Það er ekki komið á hreint
ennþá”. __
100 norrœnir skátar
rannsaka Öskju-
svœðið í sumar
Bandalag islenskra
skáta mun i sumar
gangast fyrir 10 daga
rannsóknarleiðangri á
öskjusvæðinu i sam-
vinnu við skáta frá hin-
um Norðurlöndunum og
Norrænu eldfjallastöð-
ina.
Um 100 skátar, 18 ára og eldri,
frá Danmörku, Finniandi, Fær-
eyjum, íslandi, Noregi og Sviþjóð
munu ferðast um ogkanna svæði
sem afmarkast af Mývatni,
Jökulsá á Fjöllum, Vatnajökli og
Skjálfandafljóti.
Áleið sinni munu þeir vinna að
athugun á gróðri og dýralifi svo
og kanna jarðsögu svæðisins.
Verkefniþetta, sem hlotið hefur
nafnið „Vulcan Projekt 1978”, er
framhald á þeirri samvinnu eldri
skáta á Norðurlöndum sem hvað
hæst bar er þeir stöðu saman að
alheimsmóti skáta, Nordjamb
1975.
Nordisk ungdomsfond hefur
veitt styrk til þessa verkefnis og
verður hann notaður til að jafna
ferðakostnað erlendra þátttak-
enda.
*...... ..........* ^
GENGISSKRANING
Gengið nr. 53 Gengið rir. 52.
22. mars kl. 12 21. mars
Kaup: Sala: Kaup: Sala
1 Bandarfkjadollar.... 254.10 255.00 254.10 254.70
1 Sterlingspund 482.95 484.15 482.65 483.85
1 Kanadadollar 225.80 226.30 225.80 226.30
100 Danskar krónur ... 4513.60 4524.30 4524.35 4535.05
100Norskarkrónur ... 4752.95 4764.15 4750.20 4761.40
lOOSænskar krónur ... 5515.45 5528.45 5506.55 5519.55
100 Finnsk mörk 6977.45 6091.70 6076.00 6090.40
100 Franskir frankar .. 5440.85 5453.65 5466.55 5479.45
100 Belg. frankar 799.50 801.40 798.55 800.45
100 Svissn. frankar .... 13201.90 13233.00 13150.45 13181.55
lOOGyllini 11636.35 11663.85 11602.75 11630.15
100 V-þýsk mörk 12455.30 12484.70 12422.35 12451.75
100 Lirur 29.73 29.80 29.70 29.77
100 Austurr. Sch 1728.25 1732.35 17 28.05 1729.15
100 Escudos 620.45 621.95 619.75 621.25
íOOPesetar 317.85 318.65 317.65 318.35
100 Yen 110.25 110.51 110.12 110.38
Jeppaeigendur!
Setjum djúp
03 slitmikil
JEPPA-
munstur
á hjól-
barða.
4f>
f
LL
L:
Smiðjuvegi 32-34 - Símar: 43988 og 44880 - Kópavogi