Vísir - 29.03.1978, Síða 24
Hafa áhuga
á íslenskri
vesturfaramynd
National Kilm Board oi'C'anada heiur lýst yfir áhuga á
þvi aö vinna meö Edda-film aö kvikmynd um islenska
vesturfara og landnám þeirra i Kanada.
Indriði G. Þorsteinsson
framkvæmdastjóri Edda-
film sagði i samtali við Visi
að aðdragandi þessa hefði
-verið að Edda-film skrifaði
National Film Board of
Canada i desember s.l. og
spurði hvort ekki væri
grundvöllur íyrir sam-
vinnu um gerð slikrar
myndar. Sérstaklega hefði
verið um það rætt að stuðst
yrði viö fyrsta landnema-
hópinn sem settist að á
haustdögum 1875 að Viði-
nesi við Winnepegvatn og
átti þar mjög harðan vetur.
Jafnframt væri hug-
myndin að gera hluta
myndarinnar hér á landi og
sýna ástæður fyrir þvi að
fólk fór vestur en þá voru
eldgosa- og harðindaár hér
heima.
Svar frá National Film
Board of Canada barst svo
7. mars s.l. og var þar lýst
áhuga á þessari hugmynd.
Sagði Indriði að það væri
ekki sist vegna þess,að haft
hefði verið samband við
vestur-islenskan filmu-
gerðarmann, Guðrúnu
Bjerring Parker. Áttræð
frænka hennar, Sigurbjörg
Stefánsson,sem býr nálægt
Víðinesi,hafði upplýst hana
um hina dramatisku at-
burði á fyrsta ári Vestur-
Islendinga i Kanada.
Um framhald þessa máls
sagði Indriði að ekki heföi
ennþá verið haldinn
stjórnarfundur i Edda-film
en hann taldi að samning-
um yrði haldið áfram. Ef af
þessu yrði reiknaði hann
með þvi að byrjað yrði á
myndinni næsta sumar.
—KS
Tveggja ára halli Rafmagnsveitna rikisins:
420 milff-
ónir króna
- tillögur um að hann verði leystur
með hœkkun verðjöfnunargjalds
og verðhœkkun hitunarrafmagns
Rekstrarhalli Rafmagnsveitna rikis-
ins i fyrra og fyrirsjáanlegur halli i ár
nemur samtais um 420 milljónum
króna. Nefnd sem iðnaðarráðherra
skipaði hefur gert tillögu um að þessi
rekstrarvandi verði leystur með hækk-
un verðjöfnunargjalds af raforku og
með verðhækkun á hitunarrafmagni, að
sögn Helga Bergs, fyrrverandi
stjórnarformanns Rarik.
Um það bil viku áður en
meiri hluti stjórnar Raf-
magnsveitnanna þ.e.
Helgi Bergs, Björn
Friðfinnsson og Tryggvi
Sigurbjarnarson sögðu af
sér, skipaði iðnaðar-
ráðherra þriggja manna
nefnd til að gera tillögur
til lausnar á fjárhags-
vandamálum Rafmagns-
veitnanna. 1 nefndinni
voru Helgi Bergs, Páll
Flygenring, ráðuneytis-
stjóri og Gísli Blöndal,
hagsýslustjóri.
„Samkvæmt tillögum
okkar átti að leysa
rekstrarvanda Raf-
magnsveitnanna með
hækkun verðjöfnunar-
gjalds og verðhækkun á
hitunarrafmagni sérstak-
lega sem er alltof ódýrt út
um allt land,” sagði Helgi
Bergs í morgun er hann
var spurður um tillögur
þessarar nefndar.
„Fjárfestingavanda
Rafmagnsveitnanna átti,
samkvæmt okkar tillög-
um að leysa á tvennan
hátt: Að hluta til með því
að framlengja lán og að
hluta til annað hvort með
þvi að skera niður fram-
kvæmdir og þá var eink-
um bent á möguleikann á
að sleppa Vestfjarðalin-
unni eða með þvi að taka
ný erlend lán. Það verður
svo auðvitað að vera val
rikisstjórnarinnar hvor
leiðin er valin”, sagði
Helgi.
Nefndin skilaði tillög-
um sinum til iðnaðar-
ráðherra fáeinum dögum
eftir að hún var skipuð og
samkvæmt yfirlýsingu
frá iðnaðarráðuneytinu
lagði ráðherra fram
ákveðnar tillögur á fundi
rikisstjórnarinnar þriðju-
daginn fyrir páska „i
samræmi við greinar-
gerð” nefndarinnar.
—ESJ
Tók peningana
en skildi
töskuna eftir
Fimmtiu þúsund
krónum var stolið úr
tösku i húsi Hitaveit-
unnar við Grensásveg 1
i gærdag. Blaðsölu-
drengur hafði komið i
kaffistofu starfsfólks og
selt Visi og Dagblaðið,
Kona i hópnum skildi
tösku sina eftir á meðan
hún brá sér aðeins frá
og taldi starfsfólkið að
drengurinn hefði gripið
töskuna og hlaupið út.
Er út var komið, kast-
aði hann töskunni frá
se'r. Fimmtiu þúsund
krónurnar, sem eigandi
töskunnar sijgði háfa
ver.ið i -hefini, voru þá
horfnar.
— EA
Kristberg óskarsson, Sverrir Ólafsson og Halldór Bjarnason við töku Listaverksins.
______________________ Visismynd JA
Listaverkið“ fílmað
Ilérna er hann kominn, listamaðurinn
af forsiðunni. í gær þegar Visismenn
voru á ferð á gatnamótum Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar komu þeir auga
á þrjá unga menn sem unnu kappsam-
lega að töku kvikmyndar.
Við nánari eftirgrennslan
kom i ljós að þeir eru úr
Menntaskólanum við
Hamrahlið og voru þarna
að gera 5-7 min. langa 8
mm kvikmynd um lista-
mann sem gerir tilraun til
að mála umferöina þarna á
horninu.
..Það tekst ekki allt of vel
hjá honum", sagði Krist-
berg Óskarsson, aðalleikar-
inn og höfundur handrits
„Listaverksins". en það er
nafnið á myndinni. „Hon-
um tekst ekki að festa bil-
ana á strigann gefst upp og
hleypur í burtu.”
Þeir kumpánar hafa að
baki nokkrar kvikmyndir
og Kristberg vinnur að
annarri lengri um þessar
mundir.
—GA
Skoðana-
könnun í
Borgarnesi
Sjálfstæðisfélögin I
Borgarnesi efna til
skoðanakönnunar á
morgun, fimmtudag.
fyrir sveitarstjörnar-
kosningarnar.
Ekki verður um sér-
stakan lista að ræöa
heldur geta allir þeir
sem ætla að styðja
Sjálfstæðisflokkinn i
næstu kosningum komið
á kjörstað og skrifað
fjögur til sjö nöfn þeirra
sem viðkomandi vilja
helst fá i sveitarstjórn.
Kjörstaður verður
opinn að Borgarbraut 4,
neðri hæð. frá klukkan
18-23 á morgun.
—SG
Fórst í
bílslysi
Hinn kuimi söngvari
Vilhjálmur Vilhjálms-
son, beið bana i bif-
reiðaslysi i Luxemborg
i fyrrinött. Vilhjálmur
var staddur i Luxem-
borg á vegum Arnar-
flugs. en hann var flug-
maður hjá þvi félagi.
Slysið átti sér stað
meö þeim hætti að Vil-
hjálmur var einn á ferð
i bilaleigubil skammt
frá flugvellinum. Þoka
var og rigning og fór
bfllinn út af veginum
með þeim afleiðingum
að Vilhjálmur mun hafa
látist samstundis.
Vi lh jál mur Vi 1 -
hjálmsson var 32 ára að
aldri og lætur eftir sig
konu og þrjú börn—SG
Engin loðnu-
veiði síðasta
sólarhring
Engin loðnuveiði var
siðasta sólarhring, eftir
þeim upplýsingum er
fengust hjá Loðnunefnd
i morgun.
Loðnuflotinn var i
hufn um páskana en var
kominn á miðin i gær.
Mæmt veður var til
veiða og aö sögn
Andrésar Finnbogason-
ar hjá Loðnunefnd er
loðnan nú farin að
hrygna og heldur sig nu
nær botni og nær landi
en áður og er erfitt að
eiga við hana nema i
góðu veðri. Heildar-
loðnuafli nú,samkvæmt
skyrslum Fiskifélags
lslands,er 4ri83bU Iestir
en var a sania tima I
fyrra 544663 lestir.—KS
DREGIÐ 1. APRÍL n.k. um hinn glœsiíega
FORD FAJRMONT
argeró 78, aó verómæti 4,1 mi11i. kr.
Ertu orðinn óskrifandi?
Sími 86611