Vísir - 26.04.1978, Síða 3
3
vtsm
Miðvikudagu
r 26. april 1978
SÖLUTREGÐA ULLARVARNINGS
ÓGNAR TILVERU VERKSMIÐJA
//Þetta ástand hefur
þegar vatdið tjóni fyrir
SiS. Reksturinn hefur
dregist saman og verk-
smiðjurnar hafa orðið að
minnka afköstin" sagði
Andrés Þorvarðarson hjá
Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga er rætt var
við hann um afleiðingar
þess að Sovétmenn hafa
ekki enn fengist til að
kaupa þær ullarvörur
sem viðskiptasamningur
þjóðanna gerir ráð fyrir.
Andrés sagði að yfirleitt hefði
verið gengið frá þessum samn-
ingi í kringum áramót, en þetta
væri i fyrsta skipti sem málin
hefðu farið i þennan farveg.
Hann sagði að i viðskipta-
samningi Islands og Sovétrikj-
anna væri viðmiðunarlisti þar
sem tilgreint væri það magn
sem ætti að selja. Sovétmenn
hefðu ekki uppfyllt ákvæði hans
ennþá.
Andrés fór ásamt fleirum til
Moskvu i kringum áramót og
þar sagði hann að menn hefðu
verið tregir til að tala við
Islendingana. Sovétmennirnir
sögðu islensku sendimönnunum
þá, að þeir ætluðu að draga úr
þvi magni sem þeir vildu kaupa.
Andrés sagði að ekki hefði
verið unnt að gefa þeim upp
nákvæmlega hvert yrði verð á
ullarvarningi, en nefndar hefðu
verið tölur sem tekið hefðu mið
af þvi, aö verðlag hér innan-
lands myndi hækka. Það hefði
lika komið á daginn og þetta
verð sem gefið var upp i Moskvu
væri nálægt lagi i dag.
Öánægja Sovétmanna taldi
hann, að gæti ekki stafaö af
gæðum vörunnar, þar sem þeir
heföu ailtaf tekið fram aö hún
væri i sérflokki.
Sovétmenn lýstu þvi siðan yfir
um miðjan febrúar að þeir væru
búnir að kaupa ullarpeysur ann-
ars staðar frá. Andrés sagðist
vilja taka það fram, aö sölu-
tregöan ætti fyrst og fremst við
um ullarpeysur. Frá sölu á
ullarteppum hefði hins vegar
þegar veriö gengið.
Vandamál fyrir
fleiri en SIS
Sambandið selur ullarpeysur
frá litlum prjónastofum viös-
vegar um land. A siðasta ári
voru seldar 160.000 ullarpeysur
til Sovétrikjanna. Samvinnu-
verslanir þar i landi hafa keypt
þennan varning, en i ár hefur
sala ekki farið fram ennþá, þar
sem rikisfyrirtækin, sem kaupa
Heklupeysur, ráða verölaginu.
Andrés sagði að þetta væri
mikið vandamái fyriralla aöila,
þar sem erfitt væri að framleiöa
upp i samninga, sem ekki væri
vitað hvort y rðu efndir af hinum
aöilum. Eitthvað hefur verið
frainleitt, eftir hugmyndum
sem Andrés og félagar fengu i
Moskvu um það hvernig peys-
urnar ættu að vera.
Er Andrés var inntur eftir þvi
hvort vitaö væri hvenær lausn
fengist á þessu máli, sagði hann
að sovéskur viðskiptafulltrúi
hefði verið i Moskvu aö undan-
förnu og rætt við fulltrúa aðila
sem samningurinn tekur til.
Kvaðst hann bjartsýnn á að ein-
hver lausn kynni að fást i þessu
máli jafnvel i þessari viku.
BA
Tílloga umhverfismólaráðs um frið-
un gamalla bygginga í borginni
„Tillaga uinhverfismálaráðs er
eiginlega svar við bréfi borgar-
stjóra þar sem óskað var eftir
áliti ráðsins á hugmyndum um
friðun gamalla húsa” sagði
Nanna Hermannsson minja-
vörður er luín var innt eftir tillögu
sem nú liggur fyrir borgarráði
um friðun 12 húsabygginga sem
eru f eigu borgarinnar. Húseignir
þær sem hér um ræðir eru:
Frikirkjuvegur 1, 3 og 11
Lækjargata I4a og I4b
Tjarnargata 20 , 33 og 35
Þingholtsstræti 29a (Borgarbóka-
safnið)
Austurbæjarbarnaskólinn
Höfði við Borgartún
og Bjarnarborg við Hverfisgötu.
Nanna sagði að könnun þeirra
Harðar Agústssonar og Þorsteins
Gunnarssonar á varðveislu gam-
alla húsa lægi að baki þessari til-
lögu.
Umhverfismálaráð gerir ráð
fyrir að friðun samkvæmt
B—flokki taki til þessara húsa.
En B—flokkurinn tekur fyrst og
fremst til ytra útlits húsa, en
jafnframt er mælst til þess að ef
einhverjar breytingar verða
gerðar innandyra verði tekið tillit
til húsagerðar.
Húsfriðun húsa samkvæmt
A—flokki er mun viðtækari og'er
mun erfiðara að gera nokkrar
breytingar á þeim byggingum
jafnt innan dyra sem utan. Safna-
húsið við Hverfisgötu og
Dómkirkjan hafa til dæmis verið
friðuð samkvæmt A—flokki.
Nanna sagði að markmiðið meö
þessum friðunartillögum, sem til
að byrja með taka ekki til fleiri
húsa, væru að þau fengjust að
haldast i sinni upprunalegu mynd
og þyrfti leyfi Húsfriðunar-
nefndar til að gera einhverja
röskun á ytra útliti þeirra.
Hún sagði að þetta þýddi alls
ekki, að ekki væri unnt að nýta
húsin, og flest þeirra væru vel
nýtl i dag. Aðalatriðið væri það að
húsin fengju að standa og leitast
yrði við að láta upprunalega
mynd þeirra njóta sin. —BA
„Gítartónlist
er sólótónlist"
segir Pétur Jónasson, sem heldur gítartónleika
/, Ég hef aöeins gutlað
viö popp en sígild tónlist
er nú mitt aöal áhuga-
mál", sagði Pétur Jónas-
son, gítarleikari, i stuttu
rabbi viö Vísi i gær.
Pétur, sem er 18 ára gamall,
heldur gitartónleika i hátiðasal
Menntaskólans við Hamrahlið, i
kvöld kl. 20.30. Og það veröa si-
gild verk sem þar hljóma þvi á
efnisskránni eru verk eftir
Gaspar Sanz, Bach, G. Tarrago,
og fleiri. Sum þessara verka
munu nær óþekkt hér á landi.
Pétur var aðeins niu ára gam-
all þegar hann byrjaði að læra
gitarleik: ,,Ég kláraöi svó'
tónlistarskólann i Garðabæ vor-
ið 1977. Ég læröi hjá Eyþóri Þor-
lákssyni, hann kenndi mér allan
timann”.
Er hægt að lifa á gitarleik á
íslandi, nema þá að vera i dans-
hljómsveit?”
,,Eg býst við að það yrði erf-
itt. Þetta er svo litið land að hér
er ekki hægt að lifa á þvi aö
halda kon^erta. Þaö væri heist
að hægt væri aö hafa i sig og á
með kennslu”.
„Er þá ekki frekar dapurlegt
fyrir gitarleikara að búa á
Islandi?”
„Frá atvinnusjónarmiði er
þaö liklega”.
„Hverníg stóö á þvi að þú
valdir gitar, nú virðist hægt að
hafa ofan i sig með flestum öðr-
um hijóöfærum?”
„Mér fannst gitarinn strax
spennandi og skemmtiiegt
hljóðfæri, og hef aldrei haft jafn
mikinn áhuga á neinu öðru”.
„Hefur þú ekki hug á að fara
utan með þitt hljóðfæri?”
,,Jú, ég stefni að þvi aö fara út
til að læra meira og er búinn aö
skrifa mörg bréf, meðal annars
til Mexikó, til aö kanna mögu-
leikana. Mið- og Suður-Amerika
og Spánn, eru þau lönd þar sem
gitarinn pr vinsælastur. Þar er
mest gitarmenning ef svo má
aö oröi komast.
Ég ætti eiginlega að taka
fram að gitarinn er ,,á uppleið”
h£r á tslandi. Ég er búinn að
halda ferna tónieika, á
Akureyri, i Norræna húsinu og i
Garðabæ og hef verið mjög
ánægður með aðsóknina.
En það hlýtur aö vera draum-
ur alira gitarleikara að komast
suðureftir, þar sem þetta hljóð-
færi nýtur meiri vinsælda en
önnur.
Gitartónlist er að mestu leyti
sóló tónlist og þar sem hún ræð-
ur rikjum hlýtur gitarleikara að
liöa vel. —óT.
Garðarkitektar
skipta um nafn
Starfsheitið „landslagsarki-
tekt’’ hefur verið tekið upp i stað
garðarkitekt cða skrúðgarðaarki-
tekt, sem notað hefur verið fram
að þessu. En i febrúar sfðastliön-
um var stofnaö f Iteykjavfk
„Félag islenskra landslagsarki-
tekta” F.Í.L.
Þykir þetta nýja starfsheiti ná
betur starfssviðinu, auk þess sem
þessi þróun er i samræmi við þá
breytingu sem átthefur sér stað á
starfsheitinu i nágrannalöndun-
um á siðustu árum. Starfssviðið
er m.a. skipulagning útivistar-
svæðis við hýbýli manna, iþrótta-
svæða, skrúðgarða og kirkju-
garða.
Þá má nefna landslagsmótun
og þátttaka i skipulagi bæja og
gerð landnýtingaráætlana.
Óveniulegum afla landað
Togarinn Bjartur frá Nes-
kaupstað „landaði” fjórum til
fimm tonnum þegar hann kom
inn til Seyðisfjarðar á sunnu-
dagskvöld. Hér varum að ræða
hóp Seyðfirskra skiðamanna og
útbúnað þeirra. Hópurinn haföi
tekið þátt i Austurlandsmótinu á
skiðum á Neskaupstað og farið
með sigur af hólmi annað árið i
röð. En keppt var i fjórum
aldursflokkum drengja og
þremur flokkúm stúlkna svo og
kvenna-og karlaflokkum. Gleðin
hjá skiðamönnum var mikil og
heyrðu Seyðfirðingar siguróp
þeirra meöan togarinn var úti á
miðjum firði.
Jón Arni Guðn\undsson,Seyðis-
firði
Pierre Robert
Jone Hellen
SNYRTIVÖRURNAR VERÐA
KYNNTAR AF SNYRTISÉRFRÆÐINGI
FRA FYRIRTÆKJUNUM í SVÍÞJÓÐ í
EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM,
KOMIÐ
í VKUSLANIRNAR
KYNNIST NÝJ-
UNGUM,
FRÆÐIST U M
FEGRUN HJA
MARGARETHA
ODE
SEM KYNNIR SUM-
ARSNYRTINGUNA
1978.
Miðvikudag 26. 4.
kl. 1-6
Fimmtudag 27. 4.
kl. 1-6
\
Föstudag 28. 4.
kl. 1-6
Háaleitisapótek
Háaleitisbraut 68
Hafnarborg
Strandgötu 34
Snyrtiyörudeildin
Glæsibæ