Vísir - 22.05.1978, Side 3
VISIR Mánudagur 22. mai 1978
3
RAFEINDATÆKI ! FISKISKIPUM
f 'í’>Fa
Rahjá
Miöúnrrsfðð
Dýptorm&lir
i Spnarrfisklcitcrfœki
Gýro~út>av!fi
risbjá
Sjalfsfýring
Vélgœs'ukerfi
Rafeindatskni teygir sig vlftar en menn gera sér almennt grein
fyrir. t einu fiskiskipi kemur hún tii dæmis við sögu i öllum þessum
liftum.
Páll nefndi fleiri dæmi um
islensk rafeindatæki. Hér hafa
verið hönnuð og smiðuð rafeinda-
tæki til að gera segulmælingar úr
flugvél og jafnframt þvi voru
smiðuð tæki sem héldu flugvél-
inni sjálfkrafa á gefnum mælilin-
um með hjálp merkja frá Loran-
stöðvum.
Hér hafa verið smiðuð tæki til
mjög nákvæmra staðarákvarð-
ana, með hjálp merkja frá gervi-
tunglum. Hér hafa verið smfðað-
ar meira en fjörutiu siritandi
jarðskjálftastöðvar og I fram-
haldi af þvi er verið að hanna
mjög áhugavert kerfi til full-
komnari skráningar á jarðskjálft
um.
Hér hafa veriö hannaðir og
smiðaðir um fimm hundruð
gjaldmælar fyrir leigubifreiðar,
og fleira og fleira mætti telja.
Páll sagði að stofnkostnaður
væri ekki dýr i þessum iðnaði:
„Hundrað tonna vélbátur kostar
um 300 milljónir króna. Fyrir um
helming þessarar upphæðar
mætti byggja upp myndarlegt
rafeindafyrirtæki sem gæti leyst
þýðingarmikil verkefni og skilað
arði á við besta fiskibát”.
—ÓT.
Róðinn aðstoðar-
framkvœmdastjóri
Borgarspítalans
Jóhannes Pálmason iög'
fræðingur sem starfað hefur
sem skrifstofustjóri Borgar-
spitaians frá april 1972 hefur
verið skipaður aðstoðarfram-
kvæmdastjóri spitaians.
Jóhannes lauk prófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
1964, varð cand. juris frá
Háskóla islands 1971, stundaði
nám i sjúkrahússtjórn við Nord-
iska HSlsovárdshögskolan i
Gautaborg 1974-75. Hann hefúr
verið fullh-úi Starfsmannaráðs
Borgarspitalans i stjórn sjúkra-
stofnana Reykjavikurborgar
frá janúar 1975. Jóhannes er
kvæntur Jóhönnu Arnadóttur og
eiga þau 3 dætur. Jéfc»i*i Pálmason
UTSYN
VANDAÐ, ÓDÝRT OG ÖRUGGT
COSTADELSOL
SÓLRÍKASTA BADSTRÖND EVRÓPU
PANTID RÉTTU FERDINA
STRAX!
Austurstræti 17,
símar 20100 og 26611
/d v
-AHit-áí-
Almenna bókafélagið:
Greiddi 10 milljónir
í höfundarlaun 1977
Mikil söiuaukning varft á
siðasta ári hjá Almenna bóka-
félaginu, efta um 66 af hundrafti,
og reyndist hagnaður af starf-
seminni. Á árinu greiddi félagift
yfir 10 milijónir króna i
höfundarlaun.
Þetta kom, meðal annars,
fram á aðalfundi Almenna
bókaféiagsins, sem haldinn var
i fyrradag.
I upphafi fundarins minntist
fundarstjóri Karls Kristjáns-
sonar, fyrrv. alþingismanns, er
lést á árinu, en hann var einn af
stofnendum félagsins. Karl
Kristjánsson sat í stjórn AB frá
upphafi og var formaður þess
s.l. 7 ár.
I skýrslu stjórnar kom m.a.
fram aö á árinu 1977 gaf félagið
út 28 bækur auk fjölda endur-
prentana. Hefur félagið að
jafnaöi gefið út um 30 bækur
árlega undanfarin 10 ár.
A undanförnum árum hefur
AB ásamt Iceland Review tekið
þátt i hinni alþjóölegu bóka-
sýningu i Frankfurt og kynnt
þar islenskar bækur. Hefur
nokkur árangur náðst hjá
þessum fyrirtækjum aö selja
islenskar bækur erlendum
útgáf ufyrirtækjum. Félagiö
hefur notið aðstoöar
Otflutningsmiðstöðvar iðnaðar-
ins á syningum þessum.
I st jórn Almenna bóka-
félagsins voru kjörnir:
Baldvin Tryggvason formaður
Daviö Oddsson
Erlendur Einarsson
Gylfi Þ. Gfslason
Halldór Halldórsson
Jóhann Hafstein
Jón Skaftason
Formaður útgáfuráös er Tómas
Guðmundsson og aörir i útgáfu-
ráðinu eru:
Björn Bjarnason
Guðmundur G. Hagalin
Höskuldur Ólafsson
Indriöi G. Þorsteinsson
Jóhannes Nordal
Kristján Albertsson
Matthias Johannessen
Sturla Friðriksson
Blaðburðarhappdrœtti Vísis:
Aprílhjólið
fór til Eyja
Það er augljóst að það borgar
sig að bera út Visi. Fyrir utan
iaunin býður blaðburðarhapp-
drættiðupp á fjölbreytta vinninga
mánaðarlega.
Það var Hafdis Hannesdóttir,
12 áray i Vestmannaeyjum, sem
hlaut SCO-reiðhjólið frá Ernin-
um, sem var aðalvinningurinn i
april. Hún sést hér taka við hjól-
inu hjá Mörtu Karlsdóttur, eigin-
konu Helga Sigurlássonar, um-
boösmanns Visis i Eyjum.
,,Ég er búin að bera Visi út sið-
an i september 1977”, sagði Haf-
dis” og ber út á svæðinu frá miö-
bæ Vestmannaeyja og allt austur
að nýja hraunkantinum”.
Þess mágeta, að Hafdis stendur
sig með miklum sóma i þessu
starfi fyrir VIsi, og hefur aldrei
fengið kvörtun i sambandi við út-
buröinn.
Þess má lika geta, að auk
reiöhjólsins frá Erninum voru
dregnar út sex tölvur og tölvuúr
framleidd hjá Texas Instru-
ments, en Þór h.f. hefur umboð
fyrir þá gripi.
Biaðburðarhappdrættið heldur
áfram og veröa sams konar
vinningar einnig dregnir út i mai
og júni.
'æSBSmil
i %r *m
'i|g|||SggPr va iiliffln ’' i