Vísir - 01.06.1978, Síða 1
Björgvin Guðmundsson og Sigurjón Pétursson voru hinir
ánægðustu að ioknum fundinum I gær.
Flugstöðvarbyggingin:
Ný flugstöó
tilhúin e#f-
ir tjögur ár
ffVar orðin fjarhags-
fega ofviða okkur"
— segir Páll Ásgeir Tryggtrason
Ný flugstöðvarbygging á Keflavikurflug-
velli ætti að geta komist i gagnið árið 1982/
svo fremi að hafist verði handa um bygg-
ingu hennar á þessu ári. Eftir er að ræða við
Bandaríkjamenn um einstök atriði þess-
arar framkvæmda/ en að þvi búnu ætti að
vera hægt að ráðast i verkið að fullum
krafti.
Samkvæmt áætlunum
er gert ráð fyrir að það
taki eitt og hálft til tvö ár
að ganga endanlega frá
öllum teikningum,
útboðstimi er áætlaður
sex mánuðir og áætlað er
að sjálf byggingin risi á
tveimur árum.
Þessar upplýsingar
fékk Visir i morgun hjá
P á 1 i As g e i r i
Tryggvasyni, deildar-
stjóra i utanrikisráðu-
neytinu. Bandarikjamenn
hafa sem kunnugt er lýst
sig fúsa til að taka þátt i
kostnaði vegna bygg-
ingarinnar, en ekki
kvaðst Páll hafa upplýs-
ingar um það hversu
stóran hlut þeir væru til-
búnir að greiða.
I öllum fyrri áætlunum
um þetta verk, sem ná
allt aftur til ársins 1967,
var gert ráð fyrir að
fslendingar reistu flug-
stöðina upp á eigin
spýtur, en flugbrautir,
vegir og annar búnaður
utan flugstöðvar yrði
greiddur af Bandarikja-
mönnum. ,,I upphafi var
rætt um hundruð
milljóna”, sagði Páll
Asgeir, ,,en nú skiptir
kostnaðurinn milljörðum
og það var orðið ljóst að
verkið var orðið islenska
rikinu fjárhagslega
ofviða.”
—Gsal
Meirihiutafundur með leynds
BÖNNUDU MYNDATÖKUR
Oddvitar
meirihlutaflokkanna i
borgarstjórn hafa náð
samkomulagi um kjör
forseta og varaforseta
borgarstjórnar, svo og um
fulltrúa í borgarráð og
tveggja skrifara.
S a m k v æ m t þe i m
upplýsingum, sem Visir
hefur aflað sér, verður
Adda Bára Sigfúsdóttir,
forseti, fyrsti varaforseti
Björgvin Guömundsson og
Kristján Benediktsson
annar varaforseti.
Þessar kosningar fara
fram á fundi borgarstjórn-
ar i dag, svo og kosning
borgarráðsmanna.
Sigurjón Pétursson, Björg-
vin Guðmundsson og
Kristján Benediktsson
verða fulltrúar meirihlut-
ans i borgarráði og munu
skipta með sér formennsku
i ráðinu og verður Sigurjón
formaður til að byrja með.
Af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins munu Birgir Isleifur
Gunnarsson og Albert
Guðmundsson sitja i
borgarráði.
Fulltrúar meirihlutans
hafa ekki viljað gefa neinar
uplýsingar um samkomu-
lagið, sem þeir gerðu með
sér i gær, um framan-
greindar kosningar. Þeir
eiga eftir að gera með sér
málefnasamning-og kosn-
ingum i önnur ráð, nefndir
og stjórnir, verður frestað
um hálfan mánuð.
Fundur Björgvins
Guðmundssonar, Sigurjóns
Péturssonar og Kristjáns
Benediktssonar i gær hafði
á sér leyndardómsfullan
blæ. Höfðu þeir neitaö að
gefa Visi upplýsingar um
fundarstað og tima og urðu
hálf hvumsa við þegar
Vísir bankaði upp á fundin-
um. Vildu þeir engar
upplýsingar gefa og
harðneituðu um leyfi til
myndatöku.
—SG.
,,Þaö hcfur oröið að samkomulagi að leyfa engar mynda-
tökur”, sagði Kristján Benediktsson þegar Visir barði á
dyr á leynifundinum i gær.
SIJMCAN
DREGfN UT
f DAG
Nafn þess áskrifanda Visis
sem hlýtur þriðja biiinn i áskrif-
endagetrauninni, Simca 1307,
verður dregið úr réttum svar-
seðlum i kvöld klukkan 18.
Þangað til er enn möguleiki á
að koma getraunaseðlunum til
Vísis og þeir sem enn eiga eftir
að greiða áskriftargjaldið fyrir
april-mánuð geta einnig gert
það I dag til þess að tryggja rétt
sinn,þar sem sá heppni veröur
að vera skuldlaus við blaðiö,
miðað við aprillok.