Vísir


Vísir - 01.06.1978, Qupperneq 1

Vísir - 01.06.1978, Qupperneq 1
Björgvin Guðmundsson og Sigurjón Pétursson voru hinir ánægðustu að ioknum fundinum I gær. Flugstöðvarbyggingin: Ný flugstöó tilhúin e#f- ir tjögur ár ffVar orðin fjarhags- fega ofviða okkur" — segir Páll Ásgeir Tryggtrason Ný flugstöðvarbygging á Keflavikurflug- velli ætti að geta komist i gagnið árið 1982/ svo fremi að hafist verði handa um bygg- ingu hennar á þessu ári. Eftir er að ræða við Bandaríkjamenn um einstök atriði þess- arar framkvæmda/ en að þvi búnu ætti að vera hægt að ráðast i verkið að fullum krafti. Samkvæmt áætlunum er gert ráð fyrir að það taki eitt og hálft til tvö ár að ganga endanlega frá öllum teikningum, útboðstimi er áætlaður sex mánuðir og áætlað er að sjálf byggingin risi á tveimur árum. Þessar upplýsingar fékk Visir i morgun hjá P á 1 i As g e i r i Tryggvasyni, deildar- stjóra i utanrikisráðu- neytinu. Bandarikjamenn hafa sem kunnugt er lýst sig fúsa til að taka þátt i kostnaði vegna bygg- ingarinnar, en ekki kvaðst Páll hafa upplýs- ingar um það hversu stóran hlut þeir væru til- búnir að greiða. I öllum fyrri áætlunum um þetta verk, sem ná allt aftur til ársins 1967, var gert ráð fyrir að fslendingar reistu flug- stöðina upp á eigin spýtur, en flugbrautir, vegir og annar búnaður utan flugstöðvar yrði greiddur af Bandarikja- mönnum. ,,I upphafi var rætt um hundruð milljóna”, sagði Páll Asgeir, ,,en nú skiptir kostnaðurinn milljörðum og það var orðið ljóst að verkið var orðið islenska rikinu fjárhagslega ofviða.” —Gsal Meirihiutafundur með leynds BÖNNUDU MYNDATÖKUR Oddvitar meirihlutaflokkanna i borgarstjórn hafa náð samkomulagi um kjör forseta og varaforseta borgarstjórnar, svo og um fulltrúa í borgarráð og tveggja skrifara. S a m k v æ m t þe i m upplýsingum, sem Visir hefur aflað sér, verður Adda Bára Sigfúsdóttir, forseti, fyrsti varaforseti Björgvin Guömundsson og Kristján Benediktsson annar varaforseti. Þessar kosningar fara fram á fundi borgarstjórn- ar i dag, svo og kosning borgarráðsmanna. Sigurjón Pétursson, Björg- vin Guðmundsson og Kristján Benediktsson verða fulltrúar meirihlut- ans i borgarráði og munu skipta með sér formennsku i ráðinu og verður Sigurjón formaður til að byrja með. Af hálfu Sjálfstæðisflokks- ins munu Birgir Isleifur Gunnarsson og Albert Guðmundsson sitja i borgarráði. Fulltrúar meirihlutans hafa ekki viljað gefa neinar uplýsingar um samkomu- lagið, sem þeir gerðu með sér i gær, um framan- greindar kosningar. Þeir eiga eftir að gera með sér málefnasamning-og kosn- ingum i önnur ráð, nefndir og stjórnir, verður frestað um hálfan mánuð. Fundur Björgvins Guðmundssonar, Sigurjóns Péturssonar og Kristjáns Benediktssonar i gær hafði á sér leyndardómsfullan blæ. Höfðu þeir neitaö að gefa Visi upplýsingar um fundarstað og tima og urðu hálf hvumsa við þegar Vísir bankaði upp á fundin- um. Vildu þeir engar upplýsingar gefa og harðneituðu um leyfi til myndatöku. —SG. ,,Þaö hcfur oröið að samkomulagi að leyfa engar mynda- tökur”, sagði Kristján Benediktsson þegar Visir barði á dyr á leynifundinum i gær. SIJMCAN DREGfN UT f DAG Nafn þess áskrifanda Visis sem hlýtur þriðja biiinn i áskrif- endagetrauninni, Simca 1307, verður dregið úr réttum svar- seðlum i kvöld klukkan 18. Þangað til er enn möguleiki á að koma getraunaseðlunum til Vísis og þeir sem enn eiga eftir að greiða áskriftargjaldið fyrir april-mánuð geta einnig gert það I dag til þess að tryggja rétt sinn,þar sem sá heppni veröur að vera skuldlaus við blaðiö, miðað við aprillok.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.