Vísir - 01.06.1978, Qupperneq 5
vism Fimmtudagur 1. júni 1978
5
,ÓTAL MÖGULEIKAR Á
MYNDUN MEIRIHLUTA'
— sagði Freyr Ófeigsson á Akureyri í morgun
,,Það eru engar
viðræður hafnará milli
flokkanna, svo mér sé
kunnugt” sagði Freyr
Ófeigsson, efsti maður
á A-lista Akureyri.
Síðasti bæjarstjórnar-
meirihluti á Akureyri saman-
stóð af fulltrúum allra flokka
nema Sjálfstæöisflokks. Hann
átti 5bæjarfulltrúa, en alls sitja
11 í bæjarstjórn á Akureyri.
Freyr sagði að það væru ótal
möguleikar fyrir hendi með
myndun meirihluta miðað við
fulltrúatölu flokkanna, en
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði að
þessu sinni tveimur mönnum
öörum til Alþýðubandalagsins
og hinum til Frjálslyndra og
vinstri manna.
Freyr sagði að fyrsti bæjar-
tjórnarfundur yrði, ef reglum
væri fylgt, haldinn þriðjudaginn
6. júni. Þar yrði væntanlega
kosið bæjarráö og hugsanlega
rætt um bæjarstjóra, en allir
flokkar nema Alþýðuflokkurinn
hefðu lýst yfir stuðningi við
núverandi bæjarstjóra.
—BA.
„Rœðum fyrst
við þá fiokka
sem við stðrf-
uðum með í
síðustu
bœjarstjórn"
— segir Kristján
Ásgeirsson, K-lista
á Húsavík
„Það er nú þannig að við
verðum að vera upphafsmenn að
myndun nýs meirihluta, þar sem
við urðum svo áberandi sigur-
vegarar i þessum kosningum”,
sagði Kristján Asgeirsson, efsti
maður á K-listanum á Húsavik,
um meirihlutamyndun þar.
,,Ég reikna með aö þær við-
ræður hefjist i dag og fyrst
munum við ræða við þá flokka
sem við vorum i samstarfi með i
siðustu bæjarstjórn, það er að
segja Framsóknarmenn og
Alþýðuflokksmenn”, sagði
Kristján.
K-listinn, sem samanstendur af
Alþýðubandalagsfólki og
óháðum, vann annan viðbótar-
manninn sem bætt var við bæjar-
stjórnina, en hún er nú skipuð niu
mönnum i stað sjö áður, Alþýðu-
flokkur fékk einn mann,
Framsókn þrjá og Sjálfstæðis-
flokkur tvo.
—H.L.
„ENGAR VIÐRÆÐUR
KOMNAR AF STAÐ"
— segir Guðmundur
Magnússon, B-lista
i Bolungarvík
„Það er ekkert hægt að segja
á þessu stigi málsins, hvað
verður úr meirihlutamyndun i
bæjarstjóninni hér”, 'fcagði
Guðmundur Magnússon, efsti
maður á lista Framsóknar-
manna i Bolungarvík, um gang
mála eftir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar þar.
Rótgróinn meirihluti
Sjálfstæðisflokksins féll sem
kunnugter i þeim kosningum og
Ólafur Kristjánsson, efsti
maður hjá Sjálfstæöisflokknum,
vildi ekkert segja um þróun
mála: „Ætli hér veröi bara ekki
sjö manna bæjarstjórn”, sagði
Ólafur.
Sjálfstæðismenn voru með
fund i gærkvöldi og sömuleiðis
H-listinn. Þar var rætt um stöðu
mála, en ekkert er farið að
hreyfa neinum viðræðum milli
flokkanna að sögn Guðmundar
Magnússonar.
Fyrsti fundur nýkjörinnar
bæjarstjórnar 1 Bolungarvik
verður seinni part vikunnar eða
i byrjun næstu viku. —H.L.
DREGIÐ VERÐUR
í HAPPDRÆTTINU
1. júli n.k.
HflLLO
KRflKKflR
SÖLU- OG BLAÐBURÐARHAPPDRÆTTI
VÍSISI
Þótttökurétt i happdrœtfinu hafa sölu- og
blaðburðorbörn Visis um allt land.
1. vinningur:
Danskt SCO-reiðhjól frá
Reiðhjólaversluninni ÖRNINN
að verðmæti um kr. 75.000
2. vinningur:
Texas Instruments
tölvuúr frá ÞÓR hf.
að verðmæti kr. 8.000
3.-8. vinningar:
Texas Instrumcnts
tölvur frá ÞÓR hf.,
hver að verðmæti kr. 6.000
VISIR
Hljónisveitin
SKEMMTANIR FYRIR
DI' ICTA
HUa IM SJALFBOÐALIÐA ER UNNU
li
Fimmtudag 1. júní
kl. 21-1.
SIGTÚIM
Hljömsveit hússins
leikur fyrir dansi
til kl. 1.
Baldur Brjánsson
skemmtir.
Mánudag 5. júní
kl. 20-24.
s SIGTÚIM
Diskótek
Baldur Brjánsson
Skemmtir
Boðsmiðar afhentir í Valhöil. Háaleitisbraut 1, kl. 9—17
Baldur
Brjánsson