Vísir - 22.06.1978, Blaðsíða 9
RETT?
Ófœrt
aðsjón-
varpið
fari í
frí
Jenni skrifar:
Ég get nú ekki oröa bundist yfir
þætti Valborgar Bentsdóttur i út-
varpinu fyrir skömmu. Hann
fannst mér óskaplega skemmti-
legur og indæll, og veröur varla
fariö fram á meira.
Að minu áliti er ekki siður
nauðsynlegt að hæla þvi sem vel
er gert, en að vera með sifelldar
aðvinnslur alltaf hreint. Enda
þótt eflaustmegi margt betur fara
! okkar litla þjóðfélagi er engin
ástæða til að við séum sifellt að
bera okkur saman við miklu
stærri þjóðir. Fjölmiðlarnir okk-
ar eru mjög svo ágætir, og sjón-
varpið stórskemmtilegt á stund-
um sérstaklega um helgar.
Hins vegar er alveg ófært að
sjónvarpið taki sér mánaðar
sumarfri. Hvað eigum við sjón-
varpsjúklingarnir að gera þennan
mánúð? Fara aö rlfast um stjórn-
mál eða níða niður náungann?
Hvort tveggja virðist reyndar
vera m jög vinsælt hér um slóðir á
þessum slðustu og verstu tlmum.
Ég vil svo þakka gott blað þar
sem Vlsir er, og óska öllúm til
hamingju með komandi kosning-
ar.
Samúel Erlingsson skrifar:
Er það rétt sem maður hefur
heyrt, að daginn eftir borgar-
stjórnarkosningarnar hafi fólk
flykkst i gjaldeyrisdeildir bank-
anna með uppáskrifaöar heim-
ildir fyrir aukayfirfærslu gjald-
eyris frá formanni gjaldeyris-
nefndarinnar Björgvini
Guðmundssyni borgarfulltrúa
Alþýðuflokksins?
Samræmist það pólitiskri
stöðu Björgvins að leika banka-
stjóra frá morgni til kvölds?
Hvað segir siðapredikarinn
ógurlegi, Vilmundur Gylfason,
við þessu? Eða var hann
kannski einn af þeim fjölmörgu
sem fengu uppáskrift? Það
þættiengum skrytið, eins miklir
vinir og þeir Björgvin virðast
orðnir upp á siðkastið.
„Staurblindir á silkiormana"
Maria Magnúsdóttir skrifar:
I áróðursriti Alþýðubanda-
lagsins fyrir Reykjaneskjör-
dæmi skrifar Njörður P. Njarð-
vik um rlka ómaga og setur þá
alla utan Alþýðubandalagsins.
Svo staurblindir eru vinstri
menn, að þeir sjá ekki þá, sem
næstir þeim standa. Mætti
benda honum og Alþýðuband-
lagsmönnum á svokallaða
„silkikomma’, sem svo eru
nefndir af almennum laun-
þegum.
„Silkikommi” er sá, sem á
einbýlishús, bil, eyðijörð þar
sem geymdir eru nokkrir hest-
ar, frúin kaupir sér fatnaö I dýr-
ustu tiskuverslunum bæjarins
þar sem hin almenna verkakona
getur engan veginn eytt sinum
afgangspeningum vegna þess
einfaldlega að þeir eru ekki til.
Slðan fjasa þeir „silkikomm-
arnir” mikið um það, að eiga
ekki fyrir mat út mánuðinn af
kaupinu sinu. Aumingja fólkið
hefur svo lltil laun að þaö svelt-
ur, og það hungrar I réttlæti og
óskert laun.
Við skulum nefna annað
dæmi. Ungur maður, sem bjó I
blokk, vinstri sinnaður, fór að
sækja fundi og skemmtanir
vinstrimanna og gekk I lið með
þeim. Hann lét sér ekki lengi
nægja að búa I blokk. Hann var
ákaflega duglegur, reisti sér
einbýlishús stórt og mikið, og
hóf atvinnurekstur I bílskúrnum
og rekur enn. Útsvarhans og
skattar gáfu ekki til kynna, að
hann hefði meiri laun en meðal-
tekjur og jafnvel minna. Eitt
„Njörður P. Njarövik skrif-
ar um rlka ómaga og setur þá
alla utan Alþýðubandalagsins”
segir bréfritari. „Mætti benda
honum og Alþýðubandalags-
mönnum á svokallaða „silki-
komma”, semsvoeru nefndir af
almennum launþegum”.
sinn hitti ég hann á götu og var
hann þá á leið að ná I peninga til
bæjarins. Þeir tóku of mikið af
honum. Þó borgaði hann engar
ofsaupphæðir I bæjarkassann.
Enn þann dag I dag rekur hann
sinn bílskúrsiðnað, fer I utan-
landsferðir og hefur launþega I
vinnu öðru hverju þegar mikið
er að gera. Sem sagt, einn
„silkikomminn” enn.
Engin furða þó allt sé !
báli og brandi.
Ég veit llka þriðja dæmið, um .
vel stöndugan iðnaðarmeistara,
sem er I Alþýðubandalaginu.
Þetta er einn af þeim iðnaðar-
meisturum, sem ungu mennirn-
ir i Alþýðubandalaginu vilja
gera útræka. Af þessu hlýtur
maður að draga sinar ályktanir.
Þar er ekki furða þó allt sé I báli
og brandi I flokki Alþýðubanda-
lagsmanna, þegar svo óllk
sjónarmiðhittast. Annars vegar
er stefna unga fólksins og hins
vegar stefna „silkikommanna”.
Er nokkur furða þó manni verði
flökurt þegar „silkikommarn-
ir” ykkar fylkja sér undir merki
Alþýðubandalagsins, sem á
stendur: Oreigar allra landa
sameinist”.
Það skyldi þó aldrei vera, að
þessi maður, sem Njörður P.
Njarðvik kann dæmi um, sé einn
af ykkar „silkikommum”?
Alþýðubandalagsmenn eru með
linnulausar árásir á rikt fólk
utan Alþýðubandalagsins, en
sjá ekki „silkikommana” riku
innan þess. Þvl vil ég enda þetta
greinarkorn með þeirri ábend-
ingu til hins almenna launþega,
að betra er að kjósa flokk sem
tilheyrir öllum stettum landsins
og er ekki eitt I riti og ræðu en
annað I reynd eins og Alþýðu-
bandalagið er. Ég skora þýf á
fólk, að kjósa þann flokk sem
tilheyrir jafnt þeim smáu sem
stóru, Sjálfstæðisflokkinn, sem
ber nafn sitt með sóma þvi hver
einstaklingur er sjálfstæður
maður sem á að njóta dugnaðar
slns og atorku.
VÍSIR
Nýr umhoðsmaður
Kristján Sturluson
Sunnubraut 19
Simi 95-2124
Búðardal
VtSIR
u
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Simi 15105
UNGT
BARÁTTUFÓLK!
Takið þátt i undirbúningsstarfi með okkur
fyrir og á kjördag.
Skráið ykkur i sima 25731 eða 25736 eftir
kl. 16.00.
OPIÐ HÚS:
öll kvöld þessa viku frá kl. 20.30 i húsi Lýsi
h/f Grandavegi 42.
Frambjóðendur koma i heimsókn, alltaf
heitt kaffi á könnunni.
LÍTIÐ INN!
Stjórn félags Sjálfstœðismanna
i Nes- og Melahverfi
FRAM TIL SIGURS