Vísir - 11.07.1978, Qupperneq 21
21 •
VISIR Þriðjudagur 11. júli
Celcius. Þaö var alla vega svo
kalt aö við gáfumst fljótlega upp
á þvi að ganga úti við”, segir
Kristinn.
— Og hvernig gekk svo að koma
sér fyrir þarna úti, fenguö þiö
fljótlega atvinnu? ___
,,Já, það gekk allt eins og I
sögu, og var kanadiska stjórnin
okkur mjög hjálpleg. Við þurftum
að afla okkur ábyrgöarmanna til
að geta farið að vinna, en stjórn-
völd gengu i það fyrir okkur. Páll
fékk vinnu við rafvirkjun sem
hann haföi verið i hér heima.
Vann hann við fyrirtæki bræðra
að nafni Carson.
Páll varð hins vegar fyrir þvi
óláni að veikjast af tæringu, og
átti hann i þvi i tvö ár áður en
hann fluttist aftur heim til Is-
lands.
Hann hefur hins vegar alveg
náð sér aö nýju, og býr nú i
Garðabæ og hefur það prýöilegt.
Sjálfur hef ég unnið við ýmis
konar störf hjá gullgraftarfyrir-
tæki, og nú um margra ára skeið
hjá kanadisku rikisjárnbraut-
unum. — Þær munu vera næst
stærsta járnbrautafyrirtæki I
heimi, aðeins sovésku rikisjárn-
brautirnar eru stærri.
Núna starfa ég sem svæðis-
stjóri hjá fyrirtækinu, og kann
mjög vel við mig, en það hafði
1978
Þaö er oft gaman að heyra
þetta fólk tala islensku, og oft
ræðir þetta fólk sin á milli á
islensku en ekki á ensku sem það
þó notar dags daglega. Stundum
er þessi isienska svo ekki alveg
eins og hún er töluð hér núna,
enda er þetta mál sem fluttist frá
tslandi frá einni öld siðan. Ég
man til dæmis eftir þvi eitt sinn
stuttu eftir aö ég kom til Kanada,
að ég benti konu af islensku bergi
á flugvél sem flaug yfir. Þá leiö-
rétti hún mig og sagði, að þetta
héti ekki flugvél, heldur flugskip.
En flugskipin voru einmitt al-
þekkt á árum sem vesturferð-
irnar stóöu yfir, en flugvélar voru
þá ekki komnar til sögunnar!
islendingum vegnar vel
— Hvernig vegna Vestur-ls-
lendingum svo i hinu veraldlega
brauðstriti. Eru þeir yfirleitt vel
stæðir fjárhagslega?
,,Já, yfirieitt er svo. Islend-
ingar eru þekktir fyrir það i
Kanada aö koma sér vel áfram,
og jafnframt fyrir að vera
framarlega i málefnum er varða
héraðs- og sveitarstjórnir.
Margir tslendingar eru I vel
launuðum störfum, svo sem lyfja-
fræöingar, háskólakennarar og
fleira, og margir reka sin eigin
fyrirtæki.
Kristinn Þórarinsson flutti vestur til Kanada áriö
1951, og er nú i annað skipti hér í heimsókn.
lengi verið ósk min að komast til
starfa hjá járnbrautum.”
Samtök V-islendinga
— Hefur þú mikið samband við
Islendinga I Kanada, nú ert þú
kvæntur Vestur-tslendingi?
,,Já, Islendingar hafa mikið
samband sin á milli, þó vissulega
fari þaö mikið eftir þvi hvar þeir
búa og hve margir þeir eru á
hverjum staö.
Konan min, Lillian er af
islensku fólki, faðir hennar er
Grámann Arnason, ættaður frá
Akureyri.
Þar sem við búum, i Sasktoon,
eru ekki mjög margir Islendingar
búsettir, en þeir halda þó nokkuð
vel hópinn, bæöi sér og innan fé-
lagsskapar Skandinaviubúa.
Þar eru haldin skemmtikvöld
reglulega, ýmist meö islensku,
sænsku, finnsku eða öðru norrænu
sniði. Þar er sfld og ákaviti á
borðum, og einnig oft islenskur
matur eins og hangikjöt og harð-
fiskur, en hann þykir mikið lost-
æti i Kanada, jafnvel meðal fólks
af enskum ættum. Þá fáum viö
sent skyr frá mjólkurbúi i Selkirk
I Nýja-tslandi, og allt er gert til að
hafa þetta sem islenskast.
Hlutverk blaöaútgáfunnar
mikilvægt
— Gefið er út blaðið Lög-
berg-Heimskringla fyrir Vestur-
Islendinga. Hvert er gildi þeirrar
útgáfu að þinu mati?
„Það er mjög mikið, það tengir
fólk af islenskum ættum saman,
flytur fréttir frá Islandi og fleira,
og á tvimælalaust rétt á sér að
minum dómi. Núverandi ritstjóri
blaðsins, Jón Asgeirsson hefur
unnið mjög gott starf I Kanada,
bæði við blaðiö og viö almenna
kynningu á tslandi, og það er
mjög mikilvægt að framhald
verði á þvi starfi er hann hættir
nú i haust.”
— En tala Vestur-tslendingar
enn flestir hverjir fslensku, eða er
máliö að hverfa?
„Margir tala ótrúlega góða
islensku, einkum þeir eldri, og
svo eru margir af yngri kynslóð-
inni sem hafa lært málið, bæði af
bókum og i skólum, þannig að
islenskan á aö geta átt framtið
fyrir sér vestra.
Auk þess heldur þetta fólk svo
vel saman, og þess eru dæmi að
menn horfi alveg framhjá göllum
manna og minni háttar löstum,
aöeins vegna þess að þeir eru
„skyldir”, — eru tslendingar.
Þessu fólki er einnig sameigin-
legt, að það hefur mikinn áhuga á
tslandi, og vill mjög gjarna
kynnast hugsanlegum ættingjum
sinum hér á landi.”
— Er eitthvaö um það að Is-
lendingar flytji búferlum til
Kanada ennþá?
„Nei, það er nánast úr sögunni,
enda er ekki svo auðvelt að fá at-
vinnuleyfi þar lengur, meöal
annars vegna hins mikla atvinnu-
leysis, sem sums staðar er allt að
12 til 14%.”
— Vilt þú ráðleggja fólki að
flytjast búferlum til annarra
landa á svipaðan hátt og þú
geröir?
„Nei, það held ég varla. Þó ég
hafi þaö ágætt, þá var heimþráin
svo sterk á sinum tima, að ég
vildi ekki óska neinum slikrar lið-
anar, sem verður sérstaklega svo
sterk á stórhátiðum eins og
jólum.”
Kristinn Þórarinsson er hér
ásamt konu sinni, Lillian og
dóttur, Karen Signý, og hyggjast
þau fara aftur utan þann 12. júli. I
Kanada eru þrir synir þeirra, þeir
Brian Páll, Nils og Gary, sem
allir hafa mikinn áhuga á íslandi.
Timann hafa þau notað til að
ferðast nokkuð, meðal annars
austur til Egilsstaða og Reyðar-
fjaröar, en þaðan er Kristinn. Þá
hafa þau einnig áhuga á að reyna
aö hafa upp á ættingjum frúar-
innar, en hún er sem fyrr segir
dóttir Grámanns Jónassonar,
sonar Armanns Jónassonar, sem
var sonur Jónasar Olafssonar frá
Akureyri. Armann og kona hans
fluttu til Vesturheims á árinu 1874
eöa 1875.
Með ósk um að þeim takist að
hafa upp á einhverju af ættfólki
sinu, þökkum við þeim fyrir
spjallið, og Kristinn sem aðeins
hefur komið hingað einu sinni frá
þvi hann fór utan 1951, sagðist
varla eiga til orö yfir það hve
miklar framfarir og uppbygg-
ingar heföi átt sér stað hér siöan.
—AH
Hér sýnir Kanadamaöurinn Marcos Zentilli hvernig pipurnar munu grafa sig niöur I iöur jaröar, en á
bornum sjálfum er demantskjarnakróna.
_ • í . Mynd:Jens
Boranir við Areyiar:
Heitt vatn streymir úr holunni
„Boranir ganga mjög vel viö
Areyjar og þeir eru þegar komnir
nokkuö á undan áætlun. Heitt
vatn hefur fundist þarna og
streymir nú um einn og hálfur
sekúntulitri af 48 gráöu heitu
vatni úr holunni, en þaö mun aö-
allega vera úr einni vatnsæö”.
sagöi Ingvar Friöleifsson, jarö-
fræöingur, hjá Orkustofnun, er
Rauöa-krossdeildirnar i
Reykjavik, Hafnarfiröi, Kópa-
vogi, Garöabæ og Seltjarnar-
nesi gefa nú fólki kost á aö fræö-
ast um lifgunartilraunir.
A námskeiði, sem stendur
eina kvöldstund, er unnt að
kenna um einkenni köfnunar,
lifgunartilraunir með blásturs-
aðferö, liflegu og skyndihjálp
vegna aðskotahlutar i hálsi.
Fyrsta námskeiöið hefst
hann var inntur eftir borunum á
Reyðarfirði.
Ingvar sagði, að á sunnudaginn
hefði veriö búið að bora niður á
1004 metra og ef þetta gengi
áfram svona vel væri hugsanlegt
aö borunum lyki i lok ágúst eöa
mánuði fyrr en upphafleg áætlun
gerði ráð fyrir. Ingvar vakti þó
athygli á þvi að slikar tímaáætl-
miðvikudag 12. júli klukkan 8
að kveldi hjá öllum þessum
deildum samtimis, en einnig
næstu kvöld á eftir ef aðsókn
veröur góö.
Upplýsingar um kennslustaði
hverrar deildar eru veittar i
sima 28222 og þá jafnframt
skráð nofn þátttakenda. Nám-
skeiöin eru jafnt fyrir börn sem
fullorðna og verða ókeypis.
—BA
anir væru yfirleitt haföar frekar
riflegar, þar sem alltaf gæti eitt-
hvað farið úrskeiöis.
Hann sagði, að hitastig hækkaði
með auknu dýpi 48 gráðu heitt
vatn er á um 600-700 metra dýpi,
og hitastigið væri um 60 gráöur á
celcius þegar komiö væri á niður
á 1000 metra.
Hann lét þess og getiö að
kjarnaheimta væri nánast alger
og segja mætti að hvert einasta
korn kæmi upp. En boranirnar aö
Areyjum við Reyðarfjörö eru
sérstakar að þvi leyti, að kjarna-
sýni eru tekín i heilu lagi, en hér-
lendis hefur áður veriö svo til ein-
göngu borsvörður, eöa finkornótt
mylsna. Kjarnar hafa veriö tekn-
ir hér fyrr en þá eingöngu úr
grynnri holum, en aö Areyjum er
ætlunin að fara niður á 2000 metra
dýpi.
—BA—
Stórgjöf
til SÁÁ
Nýlega afhenti formaöur og
varaformaöur Thorvaldsen fé-
lagsins stórgjöf til SAA eöa 300
þúsund krónur.
I frétt frá Hilmari Helgasyni,
formanni SAA, um þessa gjöf
segir, að stjórn SAA þyki mikiö til
þessarar gjafar koma, bæði upp-
hæöarinnar og sérstaklega þann
vinar- og viðurkenningarvott,
sem hið rótgróna og virta
Thorvaldsen félag veitir SAA.
LÍflega (hliöarlega)
Slasaður, meðvitundarlaus maður, sem liggur á bakinu, þegar aö er
komiö er varnarlaus gegn köfnunardauða.
Lœrið að bjarga mannslífum:
Einnar kvoldstundar nómskeið
ER VERÐBÓLGAN
ÓLEYSANLEGT VANDAMÁL?
- NEI EKKI FYRIR OKKUR
SPARIÐ 20% -
NOTIÐ AGFACOLOR FILMU
Austurstrœti 7
Sími 10966