Vísir - 07.09.1978, Blaðsíða 5
5
m
VISIR Fimmtudagur 7. september 1978
Enn einn áreksturinn varö I fyrrakvöld vegna þess aö hægri rétturinn
var ekki virtur i umferöinni. Fólksbifreiö ók um niuleytiö niöur
Frakkastig en jeppi ók inn Grettisgötu. Virti bilstjóri jeppabifreiöar-
innar ekki rétt fólksbilsins er kom honum á hægri höng og keyröi þvert
fyrir hann meö þeim afleiöingum er myndin sýnir. Visismynd: GB.
„Saimonella agona" á svínabúinu:
Eyddu 115
skrokkum!
Liðlega sjö tonnum af svina-
kjöti, eöa 115 skrokkum, hefur
verið eytt aö kröfu Heilbrigöiseft-
irlits Reykjavikur, i 32 af þessum
skrokkum haföi fundist sýkillinn
Salmonella agona, en áður haföi
starfsmaöur svinabúsins, sem
svínin voru á, veikst af þessum
sýkli.
1 frétt frá Heilbrigöiseftirliti
Reykjavikur segir, aö ekki sé rétt
i fréttum Visis aö umræddur
starfsmaður hafi veikst af tauga-
veikibróður og sýking af
Salmonella agona sé ekki talin
eins alvarleg og taugaveiki-
bróðursýking.
Sem fyrr segir fannst umrædd-
■ StarftmaBur á .vlnabúl «4kk f wavlklbr6d«r> ■
Verður miklu af
svínakjöti eytt?
Frétt Visis á þriöjudaginn.
ur sýkill i samtals 32 svinum viö
slátrun og var þeim þegar eytt. I
83skrokkum fannst engin sýking,
en þeim var þó eytt i varúöar-
skyniog frystiklefinn, sem skjötiö
var geymt i siðan sótthreinsaöur.
—SG
Björn Frið-
finnsson til
vinnuveitenda
Annar framkvæmdastjóra
Vinnuveitendasambands lslands,
Baldur Guðlaugsson, hefur sagt
starfi sinu lausu. Samkvæmt
þeim upplýsingum sem Visir
hefur aflaö sér, mun Björn Friö-
finnsson veröa ráöinn i starfiö.
Baldur mun hafa I hyggju aö snúa
sér aö lögmannsstörfum.
—JM.
Björn Friöfinnsson.
Hagstœðara verð
Samningar um fyrirframsölu á
um 70 þúsund tunnum af saltaöri
Suöurlandssild hafa verið geröir
viö Svia og Sovétmenn.
Samtök sænskra sfldarinn-
flytjenda kaupa um 50 þúsund
tunnur af mörgum tegundum og
mismunandi stærðarflokkum.
Þá hefur verið samið við Sovét-
rikin um sölu á 20 þúsund tunn-
um af tveim tegundum sildar en
þrem stærðarflokkum. Samn-
ingar um aðalmagnið til Sovét-
rikjanna, af saltaðri Suöur-
landssild, eiga að fara fram i
Moskvu I september.
Þó að söluverðiö i erlendum
gjaldeyri sé þaö sama og i fyrra
eru sovésku samningarnir hag-
stæðari nú að því er fitumagn
snertir. í samningunum i tyrra
var kveðið á um að lágmarks-
fitumagn skuli vera 16% en
heimilt að afgreiöa sild meö
12-16% fitumagn en verðið var
þá 5% lægra. I samningum nú er
samið um einn fituflokk, 12% og
þar yfir, og fyrir þá sfld fæst
sama verö i ár og sild með 16%
fitu i fyrra.
—KS.
Lee Cooper flauelsgalla-
buxur I barnastœrðum.
Dömubuxur í Lee Cooper
Einnig UFO í flaueli
eik
SmNDEÚTU 31 simi:53534
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
Skyrtur fró kr. 700 - Buxur frú kr. 1.900 - Herrabuxur, polyester og
bómull, kr. 3.200 - Kvenbuxur fró kr. 3.500 - Gallabuxur fró kr. 2.600 -
Bútar í miklu úrvali. - Ódýr sterk efni ú bílsœti, setur, dýnur o. fl. •
Kokkabuxnaefni, gott verð. - Ódýr stretch-efni í reiðbuxur, sterk efni.
- Kakiefni, flauelsefni, gallabuxnaefni.Leðurlíki í svðrtu, brúnu og grœnu
og mörg fleiri efni. - Komið og gerið góð kaup.
Buxna- og bútosalon, skúiagötu 26.
■■■ ..mmm