Vísir - 07.09.1978, Side 8
8
Golda Meir var hin
ánægðasta með heim-
sókn, sem hún fékk fyrir
nokkru. Að dyrum barði
þjóðlagasöngvarinn
Burl Ives, 69 ára gamall.
Ives var á ferð í Israel
og hafði gítarinn með
sér og tók að sjálfsögðu
lagið fyrir Goldu. Þessi
áttatiu ára gamli fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra snerist i kring-
um söngvarann og bauð
honum upp á alls kyns
kræsingar, sem hún
matreiddi sjálf. Þau tvö
skeggræddu um alla
heima og geima og ekki
sist tónlist, þar til Ives
tók það fram með
munninn fullan, að
„ekkert lag sem samið
hefur verið i öllum
heiminum jafnast á við
kökurnar þínar Golda!"
Belafonte söng fyrir Grace
Með garðyrkjudellu
Það er leikarinn Peter
Strauss eða Rudy (Gæfa
og gjörvileiki) eins og
menn kannast sjálfsagt
betur við hann, sem
hefur tyllt sér þarna í
hjólbörurnar# Landið á
hann sjálfur og hefur
reyndar dundað sér við
það síðustu sex mánuði
að vinna i garðinum.
Hann bað um hálf s árs
fri, eftir að nokkrir
starfsmenn ABC sjón-
varpsstöðvarinnar
gáfu honum bækur um
garðyrkju í afmælis-
gjöf. (Strauss er 31 árs).
„Það voru þeirra mistök
því að ég las þær allar",
segir hann. En nú hefur
að öllum líkindum feng-
ið einhverja útrás fyrir
garðyrkjudel luna og
byrjar reyndar að stilla
sér aftur upp fyrir
framan myndavélarnar
í þessum mánuði.
í heimsókn hjá Goldu
I Monaco eru árlega
haldnar skemmtanir til
ágóða Rauða krossin-
um. Harry Belafonte,
söngvarinn kunni, sem
nú erorðinn 51 árs, hafði
ekki látið sjá sig þar i
nærri tvo áratugi. En
þegar Grace prinsessa
gekk sjálf í málið til
þess að fá Belafonte til
þess að syngja, gat hann
ekki neitað lengur. Fólk
hlustaði yf ir sig ánægt á
söngvarann syngja
nokkur sinna gömlu
laga, svo sem Island in
the Sun, Jamaica Fare-
well og fleiri. Reyndar
hefur hann sagði oftar
en einu sinni að hann
vilji losna úr þessari
„sexy, calypso-imynd"
eins og hann orðar það,
og kærir sig þvi fremur
litið um að kyrja gömlu
lögin.
En í þetta sinn brá
hann þó út af vanan-
um...
Umsjón: Edda Andrésdóttir
ÞriOjuaagur 5. september 1978
VÍSIR