Vísir - 07.09.1978, Qupperneq 14
VÍSIR
Dagblaðið Visir óskar að ráða starfsmann
hálfan daginn til að sjá um dagbók og
fleira.
Umsóknir sendist ritstjórn Vísis,
Siðumúla 14, fyrir 12. september
Auglýsing
Sendimaður óskast til starfa allan daginn
fyrir fjármála-, félagsmála- og dóms-
málaráðuneyti.
Æskilegt er að hann hafi réttindi til
aksturs létts bifhjóls.
Umsóknir sendist fjármálaráðuneyti fyrir
15. september n.k.
Fjórmúlaráðuneytið, 6. sept. 1978
ÚTBOÐ
Framkvæmdanefnd um byggingu leigu-
og söluibúða Laugardalshrepp, Arnes-
sýslu, óskar eftir tilboðum i byggingu
tveggja ibúða i einu einnarhæðar húsi,
samtals 174 ferm, 628 rúmm.
Húsið á að rísa að Laugarvatni, Arnes-
sýslu og er boðið út sem ein heild. Skila á
húsinu fullfrágengnu eigi siðar en 31. júli
1979.
tJtboðsgögn verða til afhendingar á
hreppsskrifstofu Laugardalshrepps og hjá
tæknideild Húsnæðismálastofnunar rikis-
ins frá föstudeginum 8. sept. 1978 gegn kr.
20.000,- skilatryggingu.
Tilboðum á að skila til hreppsskrifstofu
Laugardalshrepps eigi siðar en mánudag-
inn 25. sept. 1978 kl. 14.00 og verða þau
opnuð þar, að viðstöddum bjóðendum.
F.H. FRAMKVÆMDANEFNDAR UM
BYGGINGU LEIGU- OG SÖLUÍBÚÐA
LAU GARD ALSHREPPS
ÞÓRIR ÞORGEIRSSON, ODDVITI.
Grensósvegur 9
innonhúsfrógangur
- Tilboð óskast i innanhússfrágang á 2. og 3.
hæð Grensásvegar 9. Um er að ræða upp-
setningu timburveggja og loftagrinda,
raflögn, loftræsilögn, dúkalögn og teppa-
lögn, máiningu o.fl. Verkinu skal lokið að
fullu 15. april 1979.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri gegn 20.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 26. sept. 1978 kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Fimmtudagur 7. september 1978 VISIR
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Pólitísk átök
við stjórnarkjör
„Embættismenn eru
skoðanalausir um landsmál.
Ég lit hins vegar ekki á mig
sem fulltrúa neins stjórn-
málaflokks”, sagði hinn
nýkjörni formaður Sambands
islenskra sveitarfélaga, Jón
G. Tómasson, skrifstofustjóri
Reykjavikurborgar, eftir að
lýst hafði verið kjöri hans.
Tillaga kjörnefndar var sú
að Jón yrði formaður og engar
aðrar tillögur komu fram og
var hann þvi sjálfkjörinn.
A landsþingi Sambands
islenskra sveitarfélaga sem
lauk i gær voru kosnir auk
Jóns 8 aðrir stjórnarmenn.
Það gekk hins vegar ekki
alveg þrautalaust að velja þá
menn.
Kjörnefnd hafði gert tillögur
um nýja menn i stjórnina, en
þrir úr eldri stjórninni voru
ekki lengur kjörgengir. Það
voru þeir Bjarni Einasson,
Ölafur G. Einarsson, varafor-
maður og Páll Lindal, for-
maður. 1 kjörnefnd áttu sæti
átta menn og stóðu sjö þeirra
að tillögu kjörnefndar um
stjórnarmenn. Sigurjón
Pétursson sem átti sæti i henni
stóð hinsvegar ekki að til-
lögunni. Gerði hann sérstak-
lega grein fyrir afstöðu sinni.
Kvaðst hann ekki geta unað
þvi, aö enginn alþýðuflokks-
maöur ætti sæti i henni.
„Tuttugu og fjögur % þjóðar-
innar veittu flokknum
brautargengi i siðustu skosn-
ingum. Þaö er þvi með öllu
ófært að þessi hluti þjóöar-
innar sé forsmáöur. Ég vil
ekki standa að kjöri stjórnar á
þennan máta. A þennan hátt
vil ég ekki starfa”, sagði
Sigurjón er hann kvaddi sér
hljóðs eftir að Ólafur G.
Einarsson hafði gert grein
fyrir starfi kjörnefndar.
Þrjú sjónarmið að baki
vali stjórnarmanna
Ólafur gerði i máli sinu
grein fyrir þvi að kjörnefnd
hefði fyrst og fremst haft i
huga jafnvægi milli dreifbýlis
og þéttbýlis við val stjórnar-
manna.
1 annan stað hefði verið
hugað að þvi aö stjórnarmenn
væru úr öllum landsfjórð-
ungum. I þriðja lagi hefði
veriö hugað að þvi hvernig
stjórnin væri pólitisk skipuð.
Lagði Ólafur áherslu á að póli-
tikin heföi að mati kjör-
nefndar ekki skipt verulegu
máli.
Tillaga kjörnefndar var sú
að auk Jóns G. Tómassonar
ættu sæti i stjórninni sem
aðalmenn þeir Sigurjón
Pétursson, Sigurgeir Sigurðs-
Landsþinginu tókst að kjósa sér stjórn þótt menn væru ekki á eitt
sáttir með val stjórnarmanna.
son, Alexander Stefánsson,
Guðmundur B. Jónsson,
Bjarni Þór Jónsson, Helgi M.
Bergs, Logi Kristjánsson og
ölvir Karlsson.
Alþýðuflokks-
Tillaga
manna
Alþýðuflokksmenn á lands-
þinginu vildu ekki una þvi að
enginn úr þeirra hðpi ætti sæti
i stjórninni. Komu þeir fram
með tillögu um að stjórnin
yrði óbreytt að ööru leyti en
þvi, að Ólafur Björnsson úr
Keflavik kæmi inn i stað
Sigurgeirs Sigurðssonar Sel-
tjarnarnesi.
A landsþinginu var gert
hádegisverðarhlé eftir að
þessar tillögur höfðu komið
fram.
I hádeginu sat Björgvin
Guðmundsson, borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins fund með
kjörnefnd.
Er fundur var settur á nýjan
leik var tillaga kjörnefndar,
örlitið endurskoðuð borin upp.
Þar var gert ráð fyrir þvi að
Sigurgeir Sigurösson yrði i
stjórninni, en Bjarni Þór
Jónsson, bæjarstjóri á Sel-
tjarnarnesi viki fyrir Jóhanni
G. Möller bæjarfulltrúa
Alþýðuflokksins á Siglufirði.
Náðist samstaða um þessa
breytingu og var stjórnin
sjálfkjörin.
1 hinni niu manna stjórn
eiga þá sæti einn Alþýöu-
flokksmaður, tveir Alþýðu-
bandalagsmenn, þrir fram-
sóknarmenn og tveir sjálf-
stæðismenn, auk formanns.
Nokkur urgur var i lands-
þingsfulltrúum yfir þvi hversu
mkið stjórnmálin blandist inn
i stjórnarkjörið. Guðrún Lára
Asgeirsdóttir kvaddi sér
hljóðs til að ræða þetta. Vakti
hún athygli á þvi að meiri hluti
þeirra fulltrúa sem sætu þetta
landsþing væru ýmist kosnir
óhlutbundinni kosningu eða af
blönduðum listum. Þetta fólk
væri i vissum skilningi úti-
lokað frá stjórninni, þegar það
sjónarmið rikti að velja full-
trúa eftir flokkspólitiskum
sjónarmiðum.
—BA—
Sveitarstjórnarmenn kynnast innbyröis á iandsbingum sambandsins. Menn draga sig þó gjarnan
saman eftir stjórnmálaskoðunum. Hér sjáum við Afþýðuflokksmenn til vinstri og I horninu hafa Alþýðu-
bandaiagsmenn dregið sig saman.