Tíminn - 07.10.1969, Blaðsíða 13

Tíminn - 07.10.1969, Blaðsíða 13
V í ÞRHWHTDAGtm 7. október 1969. TÍMINN ÍÞRÓTTIR mætir ViSar Símonarson skorar fyrir landsliðið í leiknum á sunnudaginn. — (Tímamynd — Gunnar) Þegar íslenzka landsliðið í hiandknattleik gerir aðeins jafn tefli við sænskt meistaralið, er kannski engin ástæða til að taka ofan fyrir því. En það er nú samt svo, að leikur íslcnzka liðs fyrir leikslok, 14:14, og urðu það lokatölur leiksins. Af einstökum leikmönnum skáru sig úr þeir Einar, Ólafur og Geir, svo og Sigurbergur Sigsteinsson í vörniinni, Einar lék og góðan varn arleik, svo og Ólafur. Hjalti varði nokkuð vel fram í miðjan síðari hálfleik, en missti þá nokfcur skot inn fyrir. Einar og Geir skoruðu 5 mörk hvor, Ólafur 2, Björgvin og Viðar 1 hvor. Nafnarnir Lennart og Dan Erik sen (no. 7 og 3) voru beztu menn Hellas, svo og markvörðurinn, ' Eramhaid á bts. 15 ins gegn Hellas á sunnudagskvöld, var um margt athyglisverður. T. d. er langt síðan að maður hefur séð liðið Ieika jafngóðan varnar leik, þó svo, að sóknarleikurinn hafi ekki verið upp á það bezta, en það má sumpart skrifa á reikning þess, að tvo góða sókn armenn vantaði, en hvorki Ingólf ur Óskarsson né Bjarni Jónsson gátu leikið með lið.inu vegna meiðsla. Lélegur varnarleikur hefur löng um verið höfuðverkur íslenzka landsliðsins og þess verið kraf izt, bæði af okkur blaðamönnum 'og öðrum, að sú hlið yrði lag- færð. Sem betur fer, virðist margt benda til þess, að það verði gert, og frá því sjónarmiði, er undir- ritaður ánægður með leik ís- lenzka liðsins, því að Hellas hef ur mjög góðum sóknarmönnum á að skipa og er Lennart Erifcson þar efstur á blaði, enda talinn með sterkustu leikmönnum Evrópu. Til marks um það, hve Svíun um gekk illa að skora í fyrri Wálfleik, rniá geta þess, að af þeim 3 mörkum, sem þeir skor uðu þá, var einungis eitt skorað utan af velli, hin komu úr víta- köstum. Á sama tíma voru sókn armenn ísl. liðsins mun ákveðn- ari við sænska markið, einkum og sér í lagi Einar Magnússon, sem notaði hæð sína vel og skoraði þrjú glæsileg mörk. í síðari hálfleik jafnaðist leik urinn. Svíarnir, greinilega með betra úthald, léku mun betur en í fyrri hálfleik og tókst að jafna eftir 8 mínútur, 6:6. Aldrei tókst þeim þó að ná yfirhöndinni og íslenzka liðið náði aftur forustu, mest 3ja marka, 11:8, einfcum fyr ir góðan leik þremenninganna, Geirs Hallsteinsson, Einars og Ólafs Jónssonar, en Ólafur var með bezta móti. Spennan var í algleymingi undir lokin. Er ein mínúta var eftir, og staðan 13:13, skoraði Geir glæsi- lega eftir einleik, og virtist ís- lenzkur sigur í höfn, en Svíarnir gáfust ekki upp og skoruðu rétt Alf — Reykjavík. — Á sunnu- daginn voru lið dregin saman í 2. umfcrð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik og drógust FH- ingar gegn ungverska liðinu Hon ved, einhverju allra sterkasta liði álfunnar, en eins og kunnugt er, slógu Ungverjarnir danska meist- araliðið HG út í 1. umferð keppn- innar. Má því segja, að FH-ingar séu jafnóheppnir með dráttinn í 2. umferð og þeir voni licppnir í 1. umferð, en í gegnum 1. umferð sluppu þeir, án þess að leika. Þetta verður í annað sinn, sem FH rnætir Honved í Evrópubikar keppninni, en einmitt í síðustu keppni mæittust liðin í 8-liða keppninni, en 16-liða keppai nú. Þá fór fyrri leikurinn fram í Búdiapest, sannkallaður slaigs- málaleikur, sem Umgverjar unmu með nokkrum mun, en hins vegar unmu FH-ingar Honved í sfðari leik liðanna, sem fram fór í Laug ardalsihöllinni, en efcki með nægi- lega miklum mun. Því miður fengum við efcki al- veg mægilega skýrar upplýsingar, um dráttinn í 2. umferð, en þó f má skilja, að FH eigi rétt á1 heimiaieik á undan. Aanars voru ! 3ið dregin saman þannig: FH — Honved, Ungverjalamdi. Meistarar Luxemburg — Barce- lona, Spánm. Meistarar Sovétr. — Meistarar' Hollands. Leviski Spartafc — Grashoppers, , Sviss. , Manseille, FrakM. — Red Star, i Júgósil. Framhald á bls. 15. ' Oft 19 leikmenn KR a sigraSi FH b þó aðeirts 4 : 0 Hver verður kosinn? hafi ekki boðið upp á neitt til að hrópa húrra fyrir hvað knatt- spyrnu snertir, skemmtu áhorfend ur sér konunglega á leiknum. Sérstaklega var oft hlegið að tilhurðum leikmannanna í og við pollana, sem voru á vellinum, svo og tilhurðum við mark, FH, en þar fór leikurinn svo að segja allur fram. Var þar oft bjargað á ótrúlegasta hátt, og flæfctust leikmenn þar hver fyrir öðrum, voru stumdum taldir 19 menn í vítateignum, og því þröogt á þingi. Ebki fór á milli mála, hvort liðið var betra. Yfirburðir KR voru eitbhvað svipaðir og yfirburð ir Feyjenoord í 12:2 leiknum við KR á dögunum, og hefði sú markatala hæglega getað komið aftur, en þó hefðu FH-ingarnir mátt taka sig mikið á til að skora tvö mörk, en leiknum lauk 4:0. KR lék með 10 manna fram línu, og var Ellert Sehraim oftast fremsti maður í sókninni. Vörn in hafði ekfcert að gera — t.d. kom „itauða ljónið" Bjarni Felixsson aðeins tvisvar við boltann, en hann kom inná í síðari hálfleik. en hann hefur efcki leikið msð M.fl. KR í nær tvö ár. FH-ingarnir börðust vel í þess um leik, en lítið var um knai.t spyrnu, eða nákvæmar sendingar. Sá sem bjargaði þeim frá stór- tapi var markvörðurinn Helgi bVamhaJd a Dls 15 Klp-Reykjavík. Þrátt fyrir að leikur KR a og FH b á Melavellinum á suimudag, Á laugardag voru leiknir leik irnir á 10. getraunaseðlinum. Potturinn var nú um 172 þúsund krónur og vannst á 11 rétta. 12 réttir og úrslitin í 1. deild urðu þessi. Arsenal—Coventry 0:1 2 Cryst. P.—Newcastle 0:3 2 Derby—Maneh. Utd. 2:0 1 Ipswieh—Sheff. Wed. 1:0 1 Leed® — Stoke 2:1 1 Liverpool—Nott. For 1:1 x Man. City—West Brom. 2:1 1 Boutthamipt—Tottenlham 2:2 x Sunderl.—Chelsea 0:0 x West Ham—Burnley 3:1 1 Wolves — Everton 2:3 2 Aston Villa — Preston 0:0 x Alf — Reykjavík — Mikil þátt- taka er í kosningunni um „Knatt- spyrnumann ársins“, sem hófst í síðustu viku. Því miður urðu þau mistök í sambandi við atkvæða- seðilinn, sem fylgdi, að ein lína féll niður, þar sem átti að standa nafn sendanda. Sem betur fer létu þeir þátttak- endur i kosnimgunni, sem þegar hafa skilað seðlum sínum, þessi misitök ekki á sig fá og hafa flest- ir sikrifaS nöfti sín. Þó hafa nokkr ir seðlar borizt, þar sem nafn sendánda fylgir ekki otg hefur ver- ið ákveðið að taka þá gilda, þar sem ekfci er um marga slíka seðla að ræða. Og kosningunni verður haldið áfram. Hér fylgir seðillinn í annað sinn — að þessu sinni alveg rétt- ur, og eru þeir, sem geymt hafa að senda fyrista seðilinn, beðnir að skila þessum heldur. Knattspyrnumaöur ársins sem „Knattspymumann ársins 1969". Nafo sendanda: HeHoilisfang: Sími Honved LEKUR LANDSLIÐSINS GEFUR GtiO FYRIRHEIT, ÞRÁTT FYRIR JAFNTEFLI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.