Vísir - 30.11.1978, Síða 5
vism Fimmtudagur 30. nóvember 1978
„Stœrsta verkefni okkar er
bygging íbúða fyrir aldroðo"
— segir Ágústa Þorkelsdóttir ú Refsstað
Agústa Þorkelsdóttir á Refsstað
sést hér i ræðustól.
Mynd: JA
,,Við höfum nýlokið við
stærsta verkefni kvenfélagsins
til þessa og það er bygging
fbúða fyrir aldraða,” sagði
Agústa Þorkelsdóttir á Refsstað
I Vopnafjarðarhreppi en hún er
formaður kvenfélagsins Lindar-
innar. t kauptúninu er starfandi
annað kvenfélag sem heitir
Kvenfélag Vopnafjarðar.
„Þaðvar fhitt inn i IbUðirnar i
mars en þær eru 6 talsins. Fjór-
ar eru einstaklingsibUöir en hin-
ar tvær eru ætlaðar hjónum.
Býggingin tók um 1 1/2 ár. Við
fengum 20% af Utlögðum
kostaaöi greidd hjá Bygg-
ingarsjóöi aldraðra samkvæmt
reikningum. HUsnæðismála-
stofnunin lánaði siðan út á
hverja ibUð.
Bæði kvenfélögin höfðu
safnaö i þetta verkefni I 11 ár.
Viö áttum um 1 milljón er fram-
kvæmdir hófust. Verðbólgan
hafði leikið sjóði okkar grátt,
þvi við höfðum ætiö lagt fé i
banka.
Framlög kvenfélaganna og
gjafir námu hins vegar 6-7
milljónum er heildardæmið var
gert upp.
Sjóðir okkar eru hins vegar á
þrotum eftir þetta stóra verk-
efni. Aðalfjáröflunarleiðin hefúr
verið basar sem venjulega er
haldinn fyrir jólin, þar bjóðum
við upp á ýmislegt góögæti,þar á
meöal lax Ur Hofsá. Viö höfum
einnig aflað tekna með þvi aö
rækta kartöflur og selja i
fjáröflunarskyni.” Aöspurö
sagði AgUsta aö Lindin hefði
veriðstofnuö 1921, en kvenfélag
Vopnafjarðar hins vegar um
aldamótin.” Upphaflega var
Lindin stofnuð sem deild út úr
kvenfélaginu á Vopnafirði sem
varð fljótlega sjálfstæö.
„Astæðurnar eru fyrst og
fremst erfiðar samgöngur. Ég
get nefnt sem dæmi aö við erum
svo til alveg innilokuð núna,
ófæröin er svo mikil.
Kvenfélögin hafa alltaf haft
eitthvert samstarf og haldiö
sameiginlegan fúnd einu sinni á
ári. Viö teljum hins vegar að
samgönguörðugleikar og mis-
munandi atvinnuhættir á þess-
um stöðum geri það að verkum
að æskilegrasé að hafa sitthvort
kvenfélagið i sveitinni og
kauptúninu.’.’
—BA
Tankvœðing byrjuð í sveitinni
— rœtt við Friðrik Sigurjónsson hreppsstjóra
Vopnafjarðarhrepps
„Þaðer mjög mikið byggt hér
miðað við að ibúar eru ekki
fleiri,en sveitin ogkauptúnið eru
einn hreppur. lbúar 1. desember
f fyrra voru 867 alls, þar af 257 i
sveitinni,” sagöi Friðrik Sigur-
jónsson hreppstjóri í Vopna-
fjarðarhreppi, Noröur Múla-
sýslu.
„Við erum með slldarverk-
smiðju hér á Vopnafiröi. Þaö
gekk allvel með rekstur hennar
i fyrra en það viröist vera dauf-
ara Utlit með þetta nUna.
Hér er yfirdrifin atvinna en
hins vegar er litið um að að-
komufólk komi hér I vinnu. Við
erum með einn skuttogara,
Bretting(sem er um 460 lestir.
Það er i þaö minnsta að vera
aðeins með eitt skip. Hér er
einnig trilluUtgerð og smærri
bátar.
Þaö var gert mikiö átak i
hafnarmálunum i fyrra. Undan-
farið hafa veriö lagöar leiðslur
fyrir rafmagn á bryggjunni.
1 sumar var lagt töluvert af
oliumöl á göturnar. Þaö munu
vera um 70% allra gatna I kaup-
tUninu sem hafa fengið oHumöl.
1 sveitinni eru 45 býli i byggð.
Þar er aö byrja tankvæðing.
Sveitin býr yfir miklum
radctunarmöguleikum bæöi á
landi og I veiöiám. Þar eru þr jár
veiöiár. 1 Hofsá veiddust á
siðast liðnu sumri 1334 laxar. 1
Vesturdalsá veiddust 500 laxar
og I Selá veiddist 1391 lax. 1 án-
um eru laxarnir að meðaltali
um 4 1/2-5 kiló.” —BA
„Fyrsti visir að léttum iðnaði"
— segir Una Einarsdótfir
Saumastofunni Hrund
„Þessi saumastofa er fyrsti
vfeirinn að léttum iðnaði hér I
Vopnafirði”, sagði Una Einars-
dóttir sem er framkvæmda-
stjóri Saumastofunnar Hrund-
ar. Hún kvaðst jafnframt vera
verkstjóri yfir framleiðslunni,
en þess má geta að Una hefur
verið ihreppsnefndinni frá 1974.
„Þaö er rúmt ár slðan stofnað
var hlutafélag til að koma þess-
ari saumastofu af stað. Viö hóf-
um hins vegar ekki framleiöslu
fyrren I mai. Við vinnum hér Ur
ofoum og prjónuðum ullardUk
fyrir Alafoss og Sambandið.
Stærstu hluthafarnir eru sveit-
arfélagiö og kaupfélagið”.
Aöspurö sagöi Una aö 10 kon-
ur ynnu hálfsdagsstarf, en tvær
væru i fullri vinnu. Starfræksla
saumastofunnar hefði boöiö
konunum upp á aukna mögu-
leikatil vinnuutan heimilis. Að-
ur heföi tæpast verið um annaö
að ræða en vinna I fiski eða
verslunum.
„Það hefur gengiö vel með
framleiðsluna sjálfa og hUn hef-
ur staðist ströngustu gæöakröf-
ur. Það eru hins vegar töluverö-
ir fjárhagslegir örðugleikar.
Við fleytum okkur með
greiösluvixlum frá Alafossi og
Sambandinu, en siöan eru
bankaútibúin ekki redöubúin að
kaupa þá af okkur.
Samgöngur eru einnig mikl-
um erfiöleikum háðar. Vopna-
fjörður er einangraöur yfir
vetrarmánuðina. Miklar endur-
bætur hafa verið geröar á flug-
veHinum, þótt hann standist
ekki ströngustu kröfur. Það er
oft á tfðum unntað fljúga hingaö
þótt ófært sé á nágrannavöllun-
um.
Við notum bilferðir yfir sum-
ariðtH að koma framleiöslunni.
Þaö er hins vegar mjög erfitt að
treysta á skipin. Við getum
þurft að senda vörur fyrst til
Reykjavikur, þótt endastöðin sé
Akureyri. Það er þvi ekki, um
annað að ræða en stóla á flugið
þó það sé afskaplega dýrt”.
—BA—
STYRKIÐ ÍSLENSKAN IÐNAÐ!
Höfum fengið úrval af ódýrum veggsamstceðum,
| borðstofuborðum og stólum. Gjörið svo vel og lítið inn
^ til okkar og skoðið hið mikla húsgagnaúrval.
ITRESMIÐJAN VERSUÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MEST
k 06 KJÖRIN BEST-
^ ^ » P ■ ■ GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR.
LAUGAVEGI 166
SÍMAR 22229 22222
HVERFISGÖTU 32.
OPIÐ A LAUGARDÖGUM KL. 10-12.
mussur - margar geróir,
Úrval af blússum og skyrtum - Húfu-
treflarnir vinsœlu í mörgum litum.