Morgunblaðið - 05.01.2001, Page 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 15
YFIR 20 starfsmenn, 13 hjá Stáltaki
á Akureyri og átta hjá Vélaverk-
stæði Dalvíkur, hafa fengið upp-
sagnarbréf á síðustu dögum. Hákon
Hákonarson, formaður Félags
málmiðnaðarmanna, sagði að staðan
hjá járniðnaðarmönnum á svæðinu
væri engan veginn nógu góð „og
ekki í neinu samræmi við það góð-
æristal sem ég heyri hér allt í kring-
um okkur, því miður“.
Hákon sagði að ekki hefði verið
mikil verkefni að fá á þessu svæði
og menn hefðu ekki borið gæfu til
þess í nógu ríkum mæli að sækja út
fyrir svæðið til að afla verkefna.
„Útgerðarmenn munu væntanlega
halda að sér höndum en þeir standa
frammi fyrir nokkuð grimmri kjara-
deilu, að því er virðist. Það getur
leitt til þess að útgerðarmenn dragi
það að panta slipptökur og koma
með skip í umfangsmiklar aðgerðir
sem hægt er að fresta.“ Hákon
sagði að því væri ekki að leyna að
verkefnastaðan nú um áramót væri
mun verri en verið hefur og að það
ylli mönnum miklum vonbrigði. Allir
járniðnaðarmenn á Vélaverkstæði
Dalvíkur, átta að tölu, hafa fengið
uppsagnarbréf en að sögn Hákons
hefur verið lítið að gera hjá fyr-
irtækinu undanfarna mánuði. Þá
sagði Stáltak á Akureyri upp 13
manns á dögunum vegna verkefna-
skorts en þar er um að ræða járn-
iðnaðarmenn og verkamenn.
Þurfum að sækja á
stóriðjumarkaðinn
„Það er því ekki eins bjart yfir
okkur og við vildum og þetta er ekki
heldur í takt við það sem við heyr-
um hjá öðrum starfsstéttum. Við
þurfum með einhverjum ráðum að
gera útrás frá þessu svæði og koma
okkur fyrir í öðru vinnuumhverfi en
þessum hefðbundna skipaiðnaði.
Þar er ég að tala um virkjanafram-
kvæmdir, bæði við ný verkefni og
viðhaldsverkefni sem til falla hér
norðanlands. Einnig þurfum við að
gera innrás á stóriðjumarkaðinn og
blanda okkur í slaginn sem þar er ef
við ætlum að standa jafnfætis öðr-
um landshlutum.“
Uppsagnir hjá fyrirtækjum í járniðnaði á Akureyri og í Dalvíkurbyggð
Verkefnastaðan um áramót
mun verri en verið hefur
„BÍLLINN stendur fyrir utan
Síðuskóla tilbúinn til notkunar en
starfsleyfi hefur ekki fengist enn,“
sagði Egill Jónsson tannlæknir á
Akureyri aðspurður um hvort hann
væri farinn að stunda tannlækning-
ar í sérinnréttuðum rútubíl sínum
fyrir slíka starfsemi. Bíllinn er tæp-
lega 12 metra langur, í honum er
aðstaða fyrir tvo tannlækna og eins
og komið hefur fram hyggst Egill
nota bílinn við grunnskóla bæjarins
og jafnvel utan Akureyrar.
Egill stendur í stórræðum á fleiri
sviðum, því sem kunnugt er fékk
hann fyrstu verðlaun í samkeppni
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins á
síðasta ári. Verðlaunin hlaut hann
fyrir nýstárlega viðskiptahugmynd
um framleiðslu staðlaðra postulíns-
fyllinga sem komið geta í stað hefð-
bundinna plast- og silfurfyllinga.
Stofnað hefur verið fyrirtækið
Globodent vegna verðlaunahug-
myndarinnar og er undirbúnings-
vinna í fullum gangi að sögn Egils.
Ekki hefur enn fengist starfsleyfi
til tannlækninga í bílnum og stóð
Egill frammi fyrir því að sækja um
slíkt leyfi til Sivjar Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra. Hann sættir
sig hins vegar ekki við að geta ekki
fengið starfsleyfi hjá yfirvöldum á
Akureyri og hyggst reyna fyrir sér
aftur og til þrautar á heimslóðum.
Hvorki bíll, flugvél né skip
„Ég ætla að láta á það reyna
hvort eitt bæjarfélag getur ekki af-
greitt smámál áður en því verður
skotið til ráðherra. Ég sætti mig
ekki við svona „af því bara“ og
„ekki benda á mig“ svör. Tækni-
deild bæjarsins vísaði málinu frá en
ég hef skrifað deildinni aftur. Heil-
brigðisfulltrúi lýtur á þetta sem
fasteign en tæknideildin sem bíl en
þetta er hvorki bíll, flugvél eða skip
og það verður að taka á þessu máli
eins og það er. Og ef bæjarfélagið
getur ekki tekið á því, sem það hef-
ur heimild til, á þessi staður ekki
framtíð fyrir sér. Mér finnst það
vera grundvallaratriði að fá úr því
skorið hvort Akureyringar og
Norðlendingar ætli að skjóta öllum
málum til ráðherra af því þeir geta
ekki ákveðið sig heima fyrir.“
Fjölmargir tannlæknar á Akur-
eyri hafa kvartað yfir þeirri ætlan
Egils að bjóða upp á tannlækna-
þjónustu fyrir grunnskólabörnin í
rútubílnum og telja að með slíkri
starfsemi sé verið að stíga skref
afturábak. Einnig telja þeir að loft-
hæðin í bílnum sé ekki boðleg. Egill
sagði að foreldrar hins vegar hafi
lýst yfir mikilli ánægju með þetta
framtak. Einnig væru tannlæknar í
Reykjavík búnir að lýsa yfir
ánægju með þetta framtak og hefðu
tekið svo djúpt í árina að lýsa því
yfir að þetta væri framtíðin í tann-
lækningum og að bjóða þjónustuna
með þessum hætti.
Tannfyllingarverksmiðja í
undirbúningi
Egill sagði að undirbúningur
vegna reksturs tannfyllingarverk-
smiðju væri í fullum gangi, m.a.
samsetningu hennar, hvernig fyll-
ingar væru best gerðar og eins
væri unnið að því að ráða fram-
kvæmdastjóra. Sótt hefur verið um
einkaleyfi fyrir hugmyndinni á al-
þjóðavísu en slíkt ferli tekur um
eitt ár.
„Ég hef rætt þetta mál við ýmsa
kollega og þeir eru þess fullvissir
að þetta sé hluti af framtíðartann-
læknastofunni. Það var selt hlutafé
í fyrirtækinu fyrir tugi milljóna
króna fyrir áramót, m.a. meðal vina
og kunningja, en stærsti einstaki
hópurinn er starfsfólk í tæknigeir-
anum. Kaupþing er að leita eftir
fagfjárfestum, aðilum með þekk-
ingu á sölu- og framleiðslumálum
til að taka þátt í uppbyggingu fyr-
irtækisins.“
Ekki hefur enn fengist starfsleyfi fyrir tannlæknastofu Egils Jónssonar á hjólum
Reynir af-
greiðslu á
heimaslóðum
Morgunblaðið/Kristján
Tannlæknabíll Egils Jónssonar hefur verið staðsettur við Síðuskóla á Akureyri en ekki hefur enn fengist
starfsleyfi fyrir þessa 7–8 milljóna króna fjárfestingu hans.
ROSKINN maður slasaðist alvar-
lega í hörðum árekstri á Eyjafjarð-
arbraut á Akureyri í gærmorgun.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
FSA og þaðan áfram í sjúkraflugi til
Reykjavíkur.
Lögreglan á Akureyri hafði af-
skipti af fimm umferðaróhöppum frá
því í gærmorgun og fram á miðjan
dag. Í þremur tilfellum urðu slys á
fólki og fjórir bílar úr tveimur hörð-
um árekstrum eru gjörónýtir.
Á Eyjafjarðarbraut, á móts við
flugskýlin á Akureyrarflugvelli, var
fólksbíl ekið í veg fyrir jeppa og
hafnaði fólksbíllinn utan vegar og
jeppinn úti í vegkanti við árekstur-
inn. Ökumaður fólksbílsins, sem var
einn í bílnum, var sem fyrr sagði
fluttur með sjúkraflugi til Reykja-
víkur. Ökumaður og farþegi jeppans
voru fluttir á slysadeild til aðhlynn-
ingar en meiðsli þeirra voru ekki tal-
in alvarleg.
Eftir hádegi skullu tveir bílar
saman í Skarðshlíð, við gatnamót
Smárahlíðar, og voru ökumenn
beggja bílanna fluttir á slysadeild
FSA til aðhlynningar. Meiðsli þeirra
voru ekki talin mjög alvarleg en báð-
ir bílarnir eru ónýtir. Bílunum var
ekið í gagnstæða átt en ökumaður
annars bílsins sveigði yfir að röngum
vegarhelmingi til að koma í veg fyrir
að lenda aftan á bíl sem var á undan
en skall þá á bíl sem kom á móti.
Á Leiruvegi, rétt við gatnamót
Drottningarbrautar, skullu svo tveir
fólksbílar saman um miðjan dag í
gær. Farþegi úr öðrum bílnum
kenndi eymsla í baki og var fluttur á
slysadeild til aðhlynningar. Báðir
bílarnir voru ökuhæfir eftir árekst-
urinn en nokkuð skemmdir.
Maður slasaðist alvarlega í hörðum árekstri á Akureyri
Fluttur með
sjúkraflugi til
Reykjavíkur
Morgunblaðið/Kristján
Lögreglumenn skoða aðstæð-
ur í Skarðshlíð þar sem tveir
bílar skullu saman og eru þeir
báðir taldir gjörónýtir.
Roskinn maður slasaðist al-
varlega í umferðarslysi á
Eyjafjarðarbraut í gærmorg-
un og var hann fluttur með
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
KONA á þrítugsaldri hefur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra verið
dæmd í 30 daga fangelsi skilorðs-
bundið til tveggja ára vegna líkams-
árásar.
Konan var ákærð fyrir að hafa í júlí
síðastliðið sumar veist að tveimur
ungum konum fyrir utan skemmti-
staðinn Club 13 og skallað þær í and-
litið. Játaði konan fyrir dómi skýlaust
þá háttsemi sem henni var gefin að
sök. Fram kemur í dómi Héraðsdóms
að skömmu fyrir árásina hafi hún
mátt þola svigurmæli frá manni sem
var í tygjum við stúlkurnar sem fyrir
árásinni urðu. Háttsemi hennar var
ekki af þeim sökum réttlætt, en með
hliðsjón af ungum aldri, svo og því að
hún hefur samþykkt að greiða skaða-
bætur þótti rétt að skilorðsbinda
refsinguna. Skaðabætur stúlknanna
voru að upphæð 2.370 krónur hjá
hvorri, þ.e. vegna komu á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Skilorð fyrir
að skalla
tvær stúlkur
SÝNING sem fjallar um grænlenska
óvættinn Tupilak verður opnuð á
kaffihúsinu Kaffi Karólínu á laugar-
dag, 6. janúar. Óvættinn skera Aust-
ur-grænlenskir listamenn úr beini af
miklu listfengi. Á sýningunni verða
slíkir gripir auk stækkaðra ljós-
mynda sem undirstrika ógn og
ófreski Túpilaksins. Haraldur Ingi
Haraldsson mun halda fyrirlestur
um Tupilak og ýmislegt fleira for-
vitnilegt í grænlensku samfélagi kl.
14 á laugardag.
Galdramaðurinn safnar saman
dauðum hlutum. Til dæmis hluta af
sel, hundi, fugli og hluti barnslíks er
ómissandi þáttur. Yfir þessari hrúgu
fer hann með rammar særingar.
Tupilak er einungis skapaður í ill-
um tilgangi. Forvitnilegt er að
grunnatriði túpilaksagna samsvara
íslenskum sögum um uppvakninga.
Sýninguna gerði Haraldur Ingi
Haraldsson Hann er menntaður í
myndlist og sagnfræði og hefur hald-
ið fjölmargar listsýningar og fyrir-
lestra um listir, sagnfræði og þjóð-
fræðileg efni. Hann var fyrsti
forstöðumaður Listasafnsins.
Sýning og
fyrirlestur
♦ ♦ ♦