Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 31
Vekjaraklukka
aðeins 900 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is
NÝLEGA hafa for-
svarsmenn læknastöðv-
anna í Reykjavík og
hópur hjúkrunarfæð-
inga stofnað félag til
þess að kanna mögu-
leika á því að bæta
þjónustu og auka hag-
kvæmni í rekstri sér-
hæfðrar heilbrigðis-
þjónustu í takt við
nútímaþróun. Sú leið
sem helst kemur til
greina er að reisa sam-
eiginlegt húsnæði til
þess að auka möguleika
á hagræðingu og auk-
inni þjónustu. Með
samvinnu læknastöðvanna mundu
skapast möguleikar á að hafa
sjúkrarúm og hjúkrunarþjónustu
til að auka öryggi og vellíðan sjúk-
linga og sinna fleiri verkefnum.
Málið er á byrjunarstigi og tals-
verð vinna framundan þar til nið-
urstaða fæst.
Reynt hefur verið að gera þess-
ar hugmyndir tortryggilegar með
því að gefa í skyn að þær mundu
leiða til mismununar eftir efnahag.
Rætt hefur verið um einkasjúkra-
hús þar sem fólk þyrfti að greiða
fyrir þjónustu umfram það sem
það ætti tilkall til í hinu opinbera
heilbrigðiskerfi. Sagt hefur verið
að aukinn einkarekstur í heilbrigð-
iskerfinu jafngildi því að taka upp
bandaríska heilbrigðiskerfið með
tilheyrandi mismunun og skorti á
tryggingavernd. Allt þetta er
rangt, en áróður af þessu tagi hef-
ur haldið áfram þó svo að skýr-
ingar um hið gagnstæða hafi kom-
ið fram í fréttum um málið af hálfu
þeirra sem að viðræðunum standa.
Á Íslandi er heilbrigðiskerfið fjár-
magnað að mestu leyti með op-
inberu fé sem skattgreiðendur
hafa greitt og er víðtæk samstaða
um það í þjóðfélaginu.
Fyrir skemmstu skýrði stjórn-
arnefnd ríkisspítalanna frá fjár-
hagsstöðunni í lok ársins 2000.
Halli á rekstrinum hefur verið
talsverður og telur stjórnarnefnd-
in nauðsynlegt að grípa til aðgerða
sem meðal annars gætu falið í sér
aukna gjaldtöku af sjúklingum til
þess að koma á jafnvægi í rekstri
spítalans. Ekki hefur orðið vart við
nein sérstök viðbrögð frá andstæð-
ingum einkarekstrar við þessum
áformum frá sjálfri stjórnarnefnd
ríkisspítalanna. Því er það áleitin
spurning hvort þeir sem gagnrýnt
hafa hugmyndir um einkarekstur
telji að aukin gjaldtaka sé í lagi ef
ríkið á frumkvæði að henni. Auð-
vitað blasir það við að verið er að
gera málið að pólitísku deilumáli
áður en það er komið á nokkurn
rekspöl. Ef þeir sem gagnrýnt
hafa hugmyndir um einkarekstur
eru spurðir að því hvert sé vanda-
málið í spítalarekstrinum svara
þeir undantekningarlaust að það
vanti meiri peninga. Við teljum
hins vegar að það þurfi að breyta
kerfinu þannig að fjármagn fylgi
verkefnum til að skapa kostnaðar-
vitund og samkeppnisskilyrði sem
muni leiða til meiri hagkvæmni.
Á Íslandi hefur umtalsverður
einkarekstur í heilbrigðisþjónustu
tíðkast um áratuga-
skeið. Þjónusta sér-
fræðinga á lækna-
stöðvum utan
sjúkrahúsa hefur
verið öllum aðgengi-
leg og ódýr á alþjóð-
legan mælikvarða en
um hana hefur verið
í gildi samningur
milli Læknafélags
Reykjavíkur og
Tryggingastofnunar
ríkisins sem hefur
tryggt hóflega
kostnaðarhlutdeild
sjúklinga. Víða er-
lendis hefur kerfi
fastra fjárlaga til sjúkrahússtarf-
semi verið lagt af og teknar upp í
þess stað greiðslur fyrir unnin
verk samkvæmt taxta. Nærtakt
dæmi er að í Noregi er verið að
breyta fjármögnun sjúkrahúsa al-
farið í þetta kerfi. Kröfur um að
slíkt kerfi verði tekið upp hér á
landi í stað fastra fjárlaga hafa
verið áberandi undanfarin ár, ekki
síst af hálfu stjórnenda stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík.
Mál þetta snýst um það hvernig
er unnt að veita góða þjónustu á
sem hagkvæmastan hátt til hags-
bóta fyrir almenning og ríkissjóð.
Þjóðin á að gera kröfu til þess að
fjármunum til heilbrigðismála sé
stýrt af ítrustu hagkvæmni og að
til séu valkostir um það hvert fólk
getur sótt þjónustuna án þess að
það komi niður á tryggingavernd.
Ef frekari einkarekstur í heil-
brigðisþjónustu getur stuðlað að
þessum markmiðum er hann æski-
legur.
Valkostir í heilbrigðisþjónustu
Steinn Jónsson
Þjónusta
Þjóðin á að gera kröfu
til þess, segir Steinn
Jónsson, að til séu
valkostir um það hvert
fólk getur sótt
þjónustuna án þess að
það komi niður á
tryggingavernd.
Höfundur er læknir.
KRINGLUNNIÚtsalan er hafin
STRÁKAR!!! ÞAÐ ER STUNDUM GOTT
AÐ VERA NAKINN EN...
...EKKI ALLTAF!!!
30-40% AFSLÁTTUR K R I N G L N N I