Morgunblaðið - 10.01.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKEMMDARVERK hafa verið
unnin í Húsaskóla í Grafarvogi að
undanförnu. Um jólin voru brotnar
fjölmargar rúður í skólanum, kveikt
var í ruslageymslu skólans á föstu-
daginn og í fyrradag var öflug
sprengja sprengd á klósetti skólans
og splundraðist eitt klósettið en eng-
an sakaði.
Einar Ásbjörnsson, rannsóknar-
lögreglumaður í Grafarvogi, segir að
hluti rúðubrotanna sé upplýstur en
rannsókn standi þó enn yfir.
Skemmdarverk
í Húsaskóla
HAFSTEINN Jóhannsson, skip-
stjóri á Eldingunni, sem ásamt sjö
öðrum lagði upp í siglingu í kjöl-
far Leifs heppna, Bjarna Herjólfs-
sonar og fleiri landkönnuða til
„Vínlands hins góða“ síðasta sum-
ar hefur nú vetursetu á Íslandi.
Hann hyggur á aðra siglingu á
slóðir víkinga, að þessu sinni í
austurátt.
Í vor hyggst Hafsteinn stjórna
þriggja mánaða leiðangri frá Ís-
landi til Írlands og Skotlands, með
viðkomu í Færeyjum og Suður-
eyjum, Orkneyjum og Hjaltlandi.
Frá Bretlandseyjum fara þeir um
Ermarsund til Þýskalands og um
Kílarskurðinn yfir á Eystrasalt og
enda svo ferðina í Noregi. „Við
ætlum að loka hringnum og fara
aftur heim eins og víkingarnir,“
segir Hafsteinn.
Hann segist lengi hafa haft
áhuga á að kanna þær leiðir sem
forfeður Íslendinga sigldu fyrir
um þúsund árum. Ferðin til Vín-
lands hafi enn eflt áhugann og
jafnframt staðfest að þær frá-
sagnir sem til eru af ferðum nor-
rænna manna til Ameríku eru á
rökum reistar. Á siglingunni
höfðu þeir „Vínlandsgátuna“, bók
Páls Bergþórssonar, fyrrverandi
Veðurstofustjóra, til hliðsjónar.
„Hefðum við ekki haft kort og
siglingatæki hefðum við hagað
okkar nákvæmlega eins og víking-
arnir,“ segir Hafsteinn. „Við hefð-
um farið sömu leið ef við hefðum
ekki vitað hvað var framundan.
Ef þú hefur land á stjórnborða þá
fylgir þú því en sjáirðu land á
bakborða þá ferðu yfir. Annars
ertu á leið inn fjörð,“ segir Haf-
steinn. Þessi aðferð bar landkönn-
uðina forðum að ströndum Am-
eríku. „Þetta passar allt eins og
hnefi í hanska,“ segir Hafsteinn.
Vínlandsferð Eldingar hófst sl.
vor fyrir sunnan Björgvin í Nor-
egi þar sem Hafsteinn er búsett-
ur. Höfð var viðkoma í Færeyjum
og á Hjaltlandi. Frá Íslandi var
lagt af stað áleiðis til Grænlands
4. júlí. Leiðangursmenn höfðu
hvorki gervihnattasíma né önnur
langdræg fjarskiptatæki , en tóku
upp þann sið á siglingu að kasta
daglega út flöskuskeyti með
kveðju frá áhöfninni og upplýs-
ingum úr dagbók. Voru það eink-
um upplýsingar um staðsetningu
og hvernig miðaði.
Eitt svar hefur borist, frá Emm-
anuel Fournier, sem búsettur er í
þorpinu Grande-Vallée á Gaspé-
skaga við sunnanverðan Lárens-
flóa. Skeytinu var kastað út við
eyna Anticosti sem leiðang-
ursmenn nefndu reyndar Pálsey
eftir Páli Bergþórssyni.
Upphaflega voru átta manns í
áhöfn Eldingar, sex Íslendingar,
Færeyingur og Norðmaður. Þeir
sem sigldu Eldingunni til Vest-
urheims frá Grænlandi voru auk
Hafsteins þeir Rúnar H. Sigdórs-
son, leiðangursstjóri, Valdemar I.
Sigurjónsson, Viktor Sigurðsson,
Ármann Dan Árnason og Daniel
Røyrvik. Á Grænlandi fóru tveir
frá borði sem sigldu með frá Ís-
landi; Gunnlaugur Melsted og Ax-
el Skaubo. Ármann og Viktor
þurftu einnig að snúa heim áður
en að heimsiglingu kom. Þeir fjór-
ir sem eftir voru sigldu skútunni
aftur heim til Íslands frá St.
John’s á Nýfundnalandi. Leiðang-
ursmenn borguðu fyrir ferðina úr
eigin vasa en fengu styrk frá
nokkrum fyrirtækjum sem fólst í
afslætti á vörum.
Hafsteinn lauk við smíði segl-
skútunnar Eldingar sem er 62 fet
fyrir rúmum áratug. Árið 1991
sigldi hann henni einsamall hring-
inn í kringum hnöttinn og tók
aldrei land þá átta mánuði sem
ferðin stóð. Samtals hefur Elding-
unni verið siglt um 58.000 sjómíl-
ur, sem er rúmlega tvöfalt ummál
jarðarinnar. Samanlögð sigl-
ingaleið Eldingarinnar í sumar
var um 7.000 sjómílur eða um
13.000 km. Hafsteinn kveðst munu
halda áfram að sigla á meðan
heilsa leyfir.
„Og það er sem betur fer ekki
útlit fyrir að hún sé að gefa sig,“
segir Hafsteinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafsteinn Jóhannsson hefur siglt á seglskútunni Eldingu vegalengd sem samsvarar tvöföldu ummáli jarðar.
Hafsteinn
á Eldingu
lokar
hringnum
BÆJARRÁÐ Vestmannaeyja hefur
samþykkt að veita rekstraraðilum
Herjólfs leyfi fyrir vínveitingum um
borð í skipinu. Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir
bæjarstjórn hafa samþykkt um-
sóknina um léttvínsleyfi naumlega
með fjórum atkvæðum gegn þrem-
ur. Leyfið er veitt með fyrirvara um
samþykki Siglingastofnunar og
Vegagerðarinnar.
„Ég lít þannig á að samþykki
þessir aðilar leyfið sé málið komið í
örugga höfn. Við teljum þetta að-
eins eðlilegan farveg í þeirri þróun
sem orðið hefur í samgöngumálum
hér á landi. Flugvöllurinn hér í Eyj-
um og Reykjavíkurflugvöllur eru
t.d. báðir með áfengisleyfi svo þetta
er aðeins í ætt við auknar kröfur
viðskiptavina um þjónustu á ferða-
lögum,“ sagði Guðjón. Spurður
hvort gerðar yrðu kröfur um aukna
gæslu um borð í Herjólfi í kjölfar
áfengisveitinga sagði hann það eiga
eftir að koma í ljós en farið yrði eft-
ir öllum tilmælum frá Siglingastofn-
un.
Á fundi bæjarstjórnar var einnig
samþykkt að veita leyfi fyrir frekari
útvíkkun á starfsemi ferjunnar þar
sem kvöldsiglingar, almennt
skemmtanahald og ýmsar aðrar
uppákomur gætu orðið liður í
rekstrinum.
„Þetta eru hugmyndir sem verið
er að vinna að og menn eru að meta
stöðuna og þreifa sig áfram. Nú er
tíðin róleg í ferðamennsku en við
gætum séð fram á skemmtilegar
nýjungar þegar á vordögum,“ sagði
Guðjón og kvaðst telja aukna fjöl-
breytni eiga eftir að hafa jákvæð
áhrif á bæjarbrag Eyjanna.
Samskip tóku við rekstri Herjólfs
um áramótin.
Vínveiting-
ar um borð
í Herjólfi
BORGARSTJÓRI hefur ráðið
Önnu Kristínu Ólafsdóttur aðstoð-
arkonu sína frá og með 1. mars nk.
Anna Kristín hefur verið búsett í
Bandaríkjunum sl. 5 ár en hún lauk
meistaraprófi (MPA) í opinberri
stjórnsýslu og stefnumótun frá La
Follette School of Public Affairs,
við Háskólann í Wisconsin í Madis-
on, í maí á síðasta ári. Í frétt frá
skrifstofu borgarstjóra segir að
Anna Kristín hafi gegnt starfi sér-
fræðings hjá ríkisendurskoðun
Wisconsinþings síðan hún lauk
námi og m.a. athugað hvernig
stefnu þingsins í ýmsum málaflokk-
um er framfylgt og metið leiðir til
úrbóta. Á árunum 1990-1996 var
hún aðstoðarstjórnmálafulltrúi við
sendiráð Bandaríkjanna í Reykja-
vík.
Anna Kristín Ólafsdóttir er fædd
árið 1966. Hún er gift Sigurði
Böðvarssyni, krabbameinslækni og
eiga þau þrjú börn.
Kristín A. Árnadóttir sem verið
hefur aðstoðarkona borgarstjóra
frá 1994, að einu ári undanskildu,
tekur við starfi framkvæmdastjóra
þróunar- og fjölskyldusviðs Reykja-
víkurborgar þann 1. febrúar.
Ráðin aðstoð-
arkona
borgarstjóra
MINNINGARSTUND um
Sturlu Þór Friðriksson, sem lést
að morgni nýársdags af völdum
áverka sem hann hlaut í flug-
slysi í Skerjafirði hinn 7. ágúst
sl., var haldin í félagsmiðstöð-
inni Frostaskjóli í Vesturbæn-
um í gærkvöldi.
Minningarstundin var haldin
að frumkvæði vina Sturlu en
hann tók virkan þátt í starfi
félagsmiðstöðvarinnar og var
m.a. formaður unglingaráðs
1998–1999. Guðrún Kaldal, for-
stöðukona Frostaskjóls, telur að
um 130 manns hafi komið í
Frostaskjól til að minnast
Sturlu.
Sturla verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Minningar-
stund í
Frostaskjóli
UMHVERFISRÁÐHERRA hefur
úrskurðað að ekki þurfi lögformlegt
umhverfismat vegna fyrirhugaðra
tilraunaborana við Trölladyngju og
eru boranir þar um það bil að hefjast.
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu
Suðurnesja, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að búið væri að leggja slóða
að borstaðnum og útbúa borplan.
Höggbor væri kominn á staðinn, en
ekki væri byrjað að bora með honum
ennþá. Bora þyrfti fyrstu 70-80
metrana með höggbor áður en hægt
væri að hefja boranir með stóra
bornum, sem bora ætti niður á um
tvö þúsund metra dýpi. Sá bor væri
nú í Svartsengi og væri komin niður
á 500 metra dýpi af um 2.000 metra
holu sem fyrirhugað væri að bora
þar. Gert væri ráð fyrir að það tæki
6-8 vikur að ljúka við borun á þeirri
borholu, en eftir það færi borinn upp
í Trölladyngju og hæfi boranir þar.
Borun lokið í maímánuði
Júlíus sagði að fyrirhugað væri að
bora í Trölladyngju niður á 1.800-
2.000 metra dýpi. Um væri að ræða
rannsóknarholu og ef allt gengi
þokkalega ætti borun holunnar að
geta lokið einhvern tíma í maí-
mánuði.
Borun fer fram á vegum Jarðlind-
ar, sem er samstarfsverkefni Hita-
veitu Suðurnesja, Rafveitu Hafnar-
fjarðar, Hafnarfjarðarbæjar,
Garðabæjar, Kópavogs, Bessastaða-
hrepps og Jarðborana.
Júlíus sagði aðspurður að með
borun holunnar væri verið að huga
að möguleikum á raforkufram-
leiðslu, til iðnaðar, hvort sem væri í
Straumsvík eða Keilisnesi eftir at-
vikum, og síðan hitaveitu ef samn-
ingar gengju þannig að það þætti
hagkvæmt fyrir alla aðila. Fyrsta
skrefið væri hins vegar að kortleggja
hvaða möguleikar væru fyrir hendi.
Borun að hefjast
við Trölladyngju
ÖKUMAÐUR vélsleða slasaðist
töluvert eftir árekstur við bifreið á
Súluvegi ofan Akureyrar í gær-
kvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Akureyri virðist sem
ökumaður vélsleðans hafi ekið á
röngum vegarhelmingi á leið upp
eftir veginum. Ökumaður bifreiðar-
innar sem kom á móti varð ferða
vélsleðans ekki var fyrr en um sein-
an, en skyggni var takmarkað þeg-
ar atburðurinn átti sér stað. Morgunblaðið/Kristján
Ökumaður
vélsleða
slasaðist
♦♦♦
♦♦♦
ÖKUMAÐUR jeppabifreiðar slapp
ómeiddur þegar bifreið valt út af
Vesturlandsvegi í Norðurárdal í
Borgarfjarðarsýslu rétt fyrir klukk-
an sex í gærkvöldi.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi má að öllum líkindum rekja
óhappið til hálku.
Bíllinn var fluttur á brott með
kranabíl en hann var töluvert mikið
skemmdur. Ökumaðurinn var einn í
bílnum.
Bílvelta
í Norður-
árdal