Morgunblaðið - 10.01.2001, Page 17

Morgunblaðið - 10.01.2001, Page 17
Tölvu- og rekstrarnám N Á M S A M H L I ‹ A S T A R F I Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 skoli@raf.is · www.raf.is Áhugavert og raunhæft starfsnám sem hannað er með þarfir atvinnulífsins í huga. Markmið með náminu er að útskrifa nemendur með hagnýta þekkingu á bókhaldi, rekstri og tölvunotkun í fyrirtækjum. Námið hentar þeim vel sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum og auka sérþekkingu sína. Kennslustundir eru alls 280 og skiptast í bókhald og rekstur 120 stundir og tölvunotkun 160 stundir. Nánari upplýsingar í síma 568 5010 • Verslunarreikningur • Grunnatriði bókhalds • Virðisaukaskattur • Launabókhald • Úrvinnsla og afstemmingar • Tölvubókhald • Ársreikningur • Fingrasetning • Windows umhverfið • Word ritvinnslan • Excel töflureiknirinn • Internetið og tölvupóstur • Kynning á umbrotsforriti • Samsteypa: Word/Excel Rekstrarnámið Grundvallaratriði tvíhliða bókhalds. Gerð rekstrar- og efnahagsreiknings. Helstu reglur um virðisaukaskatt, útreikning og útfyllingu skilagreina og hugtökin skattskylda, skattverð og skatthlutfall skilgreind. Útreikningur á launum og launatengdum gjöldum. Afstemming á eigna- og skuldareikningum og uppgjöri virðisaukaskatts. Gerð ársuppgjörs samkvæmt skattalögum. Framsetning rekstrar- og efnahagsreiknings. Fjallað um helstu kennitölur sem í notkun eru hvað varðar arðsemi, nýtingu fjármagns, greiðsluhæfi og fjárhagslegan styrkleika fyrirtækis. Tölvunámið Æfingar í fingrasetningu. Farið yfir helstu hluta á skjá Windows umhverfisins og nemendum kennt að vinna í gluggaumhverfi og aðlaga það eigin þörfum. Helstu atriði ritvinnslu svo sem inndráttur, dálkar, töflur, myndir og prentun. Reiknilíkön í töflureikni, útlitsmótun, prentun og gerð myndrita. Kennd er notkun algengra reiknifalla svo og helstu atriði gagnavinnslu. Gerð eru raunhæf verkefni þar sem reynir á samvinnu ýmissa forrita. Afritun gagna og flutningur milli bókhaldsforrits og Excel töflureiknis. Kennd notkun umbrotsforrits og gert raunhæft verkefni. Vefskoðarar og tölvupóstur. Boðið er upp á morguntíma fjórum sinnum í viku eða kvöldtíma þrisvar í viku. Lengd námsins er ein önn. Kennslugreinar:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.