Morgunblaðið - 10.01.2001, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 21
www.hanspetersen.is
Fáðu filmuna á
geisladisk.
Deildu minningunum
með vinum þínum á
hanspetersen.is
Fáðu hágæðaútprentun á
ljósmyndapappír í gegnum
hanspetersen.is
Gerðu meira úr
myndunum þínum!
Grundarfirði - Á hverju ári veita
Hollvinasamtök Grundarfjarðar
verðlaun fyrir sérstaklega vel unnin
störf í þágu Grundarfjarðar. Að
þessu sinni var það fjarnám á fram-
haldsskólastigi í Grundarfirði og
flutningsfyrirtækið Ragnar og Ás-
geir ehf. sem þóttu hafa skarað fram
úr með störfum sínum á árinu 2000.
Formaður samtakanna, Gísli Karel
Halldórsson, afhenti verðlaunin.
Fjarnám á framhaldsskólastigi í
Grundarfirði er tilraunaverkefni
sem staðið hefur síðan haustið 1999.
Ýmsir aðilar hafa stutt verkefnið,
svo sem menntamálaráðuneytið og
Rannsóknarráð.
Auðgar bæjarbraginn
Grundarfjörður mun vera eina
sveitarfélagið þar sem öll framhalds-
skólakennslan er fjarkennsla. Verk-
menntaskólinn á Akureyri sér um
kennsluna. Í upphafi voru nemend-
urnir 7 en á yfirstandandi skólaári
eru þeir 11. Nemendurnir mæta í
skólann á hverjum morgni ásamt
umsjónarmanni og stunda nám sitt í
húsnæði grunnskólans í Grundar-
firði.
Þetta fyrirkomulag hefur orðið til
þess að auðga mjög bæjarbraginn í
þorpinu því nú bregður svo við að all-
margir unglingar eru heima allt árið,
en fyrir daga fjarnámsins þurftu öll
ungmenni á framhaldsskólaaldri að
leita sé menntunar í aðra staði. Anna
Bergsdóttir, skólastjóri grunnskól-
ans í Grundarfirði, og Sigríður Finn-
sen, oddviti Eyrarsveitar, tóku við
verðlaununum.
Flutningafyrirtækið Ragnar og
Ásgeir ehf. er stærsta flutningafyr-
irtæki landsins í einkaeigu. Það hef-
ur verið atvinnulífinu í Grundarfirði
mikil lyftistöng, enda eru umsvifin
mikil. Fyrirtækið á 11 stóra flutn-
ingabíla auk ýmissa minni bíla og
tækja og er flota þessum ekið dag og
nótt um allt land. Flutningurinn er
fyrst og fremst fiskur, bæði ferskur
og frystur. Feðgarnir Ragnar Har-
aldsson og Ásgeir Ragnarsson tóku
við verðlaununum.
Hollvinasamtök
Grundarfjarðar-
veita verðlaun
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
Verðlaunahafarnir Sigríður Finsen, oddviti Eyrarsveitar, Anna Bergs-
dóttir, skólastjóri í Grundarfirði, og feðgarnir Ragnar Haraldsson og
Ásgeir Ragnarsson, eigendur Ragnars og Ásgeirs ehf., hampa verð-
launagripunum.
Vestmannaeyjum - Þriðjudaginn 2.
janúar var Fréttapíramídinn afhent-
ur í 13. skipti. Fréttapíramídinn er
verðlaun sem vikublaðið Fréttir í
Vestmannaeyjum afhendir þeim ein-
staklingi eða félagi sem þykir hafa
skarað fram úr í Vestmannaeyjum.
Að þessu sinni fór afhendingin fram á
veitingastaðnum Prófastinum að við-
stöddum hundrað gestum. Arnar
Sigurmundsson, stjórnarformaður
Eyjaprents, sem gefur út vikublaðið
Fréttir, bauð gesti velkomna og rakti
í stuttu máli tilurð verðlaunanna sem
nú voru afhent í 13. skipti eins og áð-
ur sagði og í öll skiptin hefur lista-
maðurinn Grímur Marinó Steindórs-
son hannað verðlaunagripina.
Ómar Garðarsson, ritstjóri Frétta,
gerði síðan grein fyrir niðurstöðum
ritstjórnar Frétta en að þessu sinni
voru tveir hópar verðlaunaðir og einn
einstaklingur. Bára Grímsdóttir tón-
listarmaður hlaut Fréttapíramídann
fyrir framlag sitt til menningarmála.
Bára hefur haldið uppi miklu tónlist-
arlífi í Vestmannaeyjum, m.a. verið
stjórnandi barnakóra og Samkórs
Vestmannaaeyja sem hún endurvakti
á árinu sem var að líða. Þá hefur hún
verið virk í tónlistarlífinu á lands-
mælikvarða með því að semja tón-
verk og er einnig í þjóðlagahópnum
Emblu sem hefur víða komið fram,
bæði hér heima og erlendis. Bára gat
ekki verið viðstödd afhendinguna þar
sem hún vann að upptökum í Reykja-
vík en eiginmaður hennar, Eyvindur
I. Steinarsson, tók við verðlaununum
fyrir hennar hönd.
Að þessu sinni var ekkert fyrirtæki
verðlaunað en í stað þess ákvað rit-
stjórn Frétta að verðlauna ráðstefn-
una Vestmannaeyjar 2010 sem haldin
var í Vestmannaeyjum sl. haust og
fjallaði um framtíð eyjanna. Tók mik-
ill fjöldi ungs fólks úr Eyjum þátt í
ráðstefnunni og fjöldi fyrirlesara víðs
vegar af landinu. Vestmannaeyjar
2010 þótti takast vel. Fyrir hönd for-
svarsmanna ráðstefnunnar tóku við
verðlaununum Þorsteinn Sverrisson,
framkvæmdastjóri ráðstefnunnar og
forstöðumaður Þróunarfélags Vest-
mannaeyja, og Guðrún K. Sigur-
geirsdóttir ráðstefnustjóri.
Á sviði íþrótta stóð uppúr árangur
handknattleiksliðs kvenna úr ÍBV, en
stúlkurnar urðu Íslandsmeistarar sl.
vor í fyrsta skipti. Það var því auðvelt
val hjá ritstjórn Frétta að afhenda Ís-
landsmeisturum kvenna í ÍBV
Fréttapíramídann fyrir íþróttaafrek
ársins 2000. Stjórn handknattleiks-
deildar og leikmenn voru við afhend-
inguna og tók fyrirliði Íslandsmeist-
aranna, Ingibjörg Jónsdóttir, við
verðlaununum.
Við þetta tækifæri bauð Eyjaprent
gestum upp á kaffi og veitingar auk
þess sem flautusveit tónlistarskólans
undir stjórn Hjálmars Guðnasonar
lék nokkur jólalög og feðgarnir Ey-
vindur og Benedikt fluttu nokkur lög
saman, gestum til óblandinnar
ánægju.
Afhending Fréttapíramídans er
orðin fastur liður í bæjarlífinu í upp-
hafi hvers árs og er ákjósanlegur
vettvangur til þess að færa þeim sem
með dugnaði og elju hafa skarað fram
úr á einhvern hátt og vakið athygli á
mannlífi og menningu í Vestmanna-
eyjum viðurkenningu. Þrátt fyrir það
eru menn sjaldnast sammála en það
kveikir ágætar umræður um hvað við
eigum mikið af hæfileikafólki og góð-
um fyrirtækjum til þess að verðlauna
með Fréttapíramídanum í framtíð-
inni.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Fjölmenni var við afhendingu Fréttapýramídanna.
Fréttapíramíd-
arnir afhentir
Verðlaunahafar Fréttapíramídans 2000.
VERKALÝÐSFÉLAG Þórshafnar
og Skrifstofa stéttarfélaganna á
Húsavík hafa undirritað samstarfs-
samning um félags- og verkalýðsmál
með það að markmiði að efla þjón-
ustu við félagsmenn í Verkalýðs-
félagi Þórshafnar og styrkja um leið
samstöðu verkafólks í Þingeyjar-
sýslum í sameiginlegum hagsmuna-
málum s.s. í byggða-, atvinnu- og
öðrum velferðarmálum sem treyst
geta búsetu á svæðinu.
Samkvæmt samningnum tekur
Skrifstofa stéttarfélaganna á Húsa-
vík að sér ráðgjöf varðandi bókhald,
gerð ársreikninga, daglega fjármála-
umsýslu, skýrslugerð og önnur þau
atriði sem tengjast daglegum verk-
efnum félagsins. Skrifstofan tekur
einnig að sér ráðgjöf við stjórn og
félagsmenn Verkalýðsfélags Þórs-
hafnar vegna kaup-, kjara- og félags-
mála.
Þá fær Verkalýðsfélag Þórshafnar
aðild að fréttabréfi stéttarfélaganna
á Húsavík og skal því dreift á félags-
svæði þess.
Verkalýðsfélag Þórshafnar mun
starfa áfram eins og verið hefur,
fundarhöld og önnur félagsleg starf-
semi verður áfram í höndum félags-
ins og skrifstofa félagsins á Þórshöfn
verður áfram opin eins og verið hef-
ur.
Stéttarfélög
í Þingeyjar-
sýslum taka
upp sam-
starf