Morgunblaðið - 10.01.2001, Síða 46
MINNINGAR
46 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Allt sem maður tek-
ur sér fyrir hendur á
maður að gera vel, það
er dyggð. Svo mörg
voru þau orð, en dæmin
sem sanna það eru mý-
mörg. Það borgar sig að vinna af al-
úð og að vera heiðarlegur í viðskipt-
um. Það eitt skapar raunverulegan
auð. Við ungt fólk sem tökum að okk-
ur hin ýmsu verkefni og störf í dag
gerum okkur kannski ekki alltaf
grein fyrir þessari staðreynd. Við
gerum okkur ekki grein fyrir því á
hverju samfélagið okkar byggðist
upp og hver undirstaða velmegun-
innar er. En svarið er alltaf eins,
undirstaðan er vinna heiðarlegra
manna.
Þegar Sveinn Björnsson bóndi var
ungur vissi hann áreiðanlega ekki
hvers lags tímamót hann ætti eftir að
lifa, hann gat örugglega ekki ímynd-
SVEINN
BJÖRNSSON
✝ Sveinn Björns-son fæddist á
Víkingavatni í
Kelduhverfi 30. júní
1915. Hann lést 16.
desember síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Garðskirkju
í Kelduhverfi 6. janú-
ar.
að sér þær samfélags-
og hugarfarsumbætur
sem áttu eftir að eiga
sér stað í landinu. En
samt var hann einn af
þeim mönnum sem
kom þessum breyting-
um á. Hann vann heið-
arlega alla sína ævi og
sá fyrir sér og sínum,
og hann setti sig ekki
upp á móti því að börn-
in hans menntuðu sig
og tæku þátt í hinni öru
þróun samfélagsins.
Hann var þakkláti
bóndinn sem svo ófá
skáld hafa gert að ævistarfi sínu að
túlka. Vissulega er það merkilegt
starf, að fá að eiga svo stóra hlut-
deild í hringrás náttúrunnar sjálfrar.
Að fá að sjá sannan afrakstur vinnu
sinnar, að vera í aðstöðu þar sem
hver er sjálfum sér bestur, eða verst-
ur. Við þannig aðstæður dugar oft
ekkert annað en harka og óbilgirni.
En ég sjálfur fékk að kynnast
Sveini Björnssyni sem skapmiklum,
en þó barngóðum sögumanni. Í
Sveini vó til jafns mikil lífsreynsla og
fyrirmyndar hugmyndaflug, sem bjó
til þær mest spennandi sögur ég hef
heyrt nokkurn mann segja af sjálf-
um sér. Hann hafði gaman af að
segja okkur barnabörnunum sögur,
af því að hann vissi að við ólumst
ekki upp í sama umhverfi og hann
sjálfur. En þó að umhverfið sé
breytt, þá gilda alltaf sömu lögmál í
öllu mannlegu samfélagi; heiðarleg
vinna er dyggð. Þessu er auðvelt að
gleyma í hröðu og athygliskrefjandi
amstri nútímans, en saga af Sveini
Björnssyni sögð af Sveini Björnssyni
var góð leið til að ná áttum.
Sögur sagðar af Sveini verða því
miður ekki fleiri, en sögurnar af hon-
um munu lifa áfram í öllum þeim sem
voru svo heppnir að fá að kynnast
honum. Sveinn Björnsson leysti öll
verk vel úr hendi á langri ævi og kom
heiðarlega fram við alla samferða-
menn sína. Það er dyggð sem gerir
hann að mikilmenni í mínum augum,
einu því mesta sem sáð hefur í jörð
þessa hrjóstruga en jafnframt ást-
sæla lands.
Vænt er að kunna vel að búa,
vel að fara með herrans gjöf,
hans verkum sér í hag að snúa,
honum þakka fyrir utan töf,
en sér og öðrum gera gott,
gleðjast og forsmá heimsins spott.
(Eggert Ólafsson.)
Ég veit að Guð er þakklátur fyrir
það hversu vel þú fórst með allt sem
hann gaf þér, og hann veit einn að
heiðarleiki þinn lifir í afkomendum
þínum og öllum öðrum mönnum sem
fengu að kynnast þér.
Og fyrir það er ég einnig þakk-
látur, afi minn. Vertu blessaður.
Bergur Ebbi.
Ég ætla að segja nokkur orð um
konu sem ég hef þekkt allt mitt líf.
Ég hef alltaf litið á Júlíönu sem
mömmu mína. Þú studdir mig og
styrktir þegar ég átti erfitt. Þú varst
alltaf svo hress og kát allan þann
tíma sem ég þekkti þig sama hvað
gekk á.
Ég samhryggist innilega öllum
ástvinum hennar Júlíönu. Guð blessi
minningu þína því hún verður alltaf í
mínu hjarta.
Þorbjörn Unnar Oddsson
(Bjössi).
JÚLÍANA
VIGGÓS-
DÓTTIR
✝ Júlíana Viggósdóttir fæddist íReykjavík 2. ágúst 1929. Hún
lést 14. desember síðastliðinn og
fór útför hennar fram frá Foss-
vogskirkju 28. desember.
!"#"$%&'
!"
#$ "
!" $% &% #
! ""#
!
! " ! #$$%&
'!( ! #$)( & *)( + ,$$%&
*-" ! #$$%& % /*!%#$)( &
( * ! #$)( & 0* , %1, !$$%&
* ! #$$%& ( " 2* * )( &
3 ! #$$%& 4 !)$ "%)$)( &
* 526 !- %$)(
! *" *"$*%),%)
!" #" "$"%
$ #&&%
!
"
# !
% & ! ! "
!
!
""# $%&'(
!# &"'( )&'*"
$%& +" &"''*"
,"%&-# &"''*".
!! ""!
# $% &&"& ''
(&&"& '')
"
"##$
!"#! $%!
& !"#
'"" ( !"# )
!!"# $$
! "
# %#&#' () # & ) *+
#,
!( () # #
# (+
"*+ & +
-"! .)# + %#/ 0 & #1) () #
2# 23# +& 2# 2# 23# 4
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er,
að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina