Morgunblaðið - 10.01.2001, Síða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 57
ÚTSALAN HEFST Á MORGUN
NÝTT KORTATÍMABILLAUGAVEGI 95-97 KRINGLUNNI
JÓLAÚTVARPIÐ fm Óðal 101,3
hljómað í Borgarnesi stuttu fyrir
jólahátíðina en það voru krakkarnir í
Nemendafélagi grunnskólans ásamt
Indriða Jósafatssyni, æskulýðsfull-
trúa í félagsmiðstöðinni Óðali, sem
stóðu fyrir útsendingunum.
Jólaútvarpið er árlegur viðburður
og var þetta í áttunda skiptið það fór í
loftið. Undirbúningur jólaútvarpsins
tók tvær til þrjár vikur og voru allir
bekkir í grunnskólanum með klukku-
tíma langa þætti. Nokkir krakkanna
eru sérmenntaðir tæknimenn og taka
allt upp sjálfir. Gerðar voru leiknar
og lesnar auglýsingar fyrir fyrirtæki
á staðnum sem borga frá 1.000 krón-
um og upp í 30.000 fyrir auglýsingu.
Einstaklingar áttu þess kost að fá
sendar jólakveðjur lesnar síðasta út-
sendingardaginn sem var föstudag-
urinn fyrir 500 krónur. Útvarpið er
því góð tekjulind fyrir nemenda-
félagið ásamt árshátíð sem haldin er í
mars. Nemendur höfðu margir lagt
nótt við dag í vinnu og undirbúning
eins og t.d. hann Þorkell Stefánsson
sem var búinn að vinna 72 tíma við út-
varpið frá mánudegi og fram á mið-
vikudagskvöld.
Aðspurður sagði Þorkell að hann
hefði mætt í tvær kennslustundir á
meðan á útvarpsundirbúningnum
stóð en hann var einn af tæknimönn-
umum. Sagan segir að einn morg-
uninn hafi pabbi hans fundið hann
sofandi og örmagna af þreytu í for-
stofunni heima hjá sér.
Allir sem fluttu útvarpsþátt þurftu
að skila handriti sem var ritskoðað af
útvarpsstjóranum Arndísi Huld Hák-
onardóttur ásamt Indriða æskulýðs-
fulltrúa og voru veitt verðlaun fyrir
besta handritið í lokahófi sem haldið
var. Það var Flosi Hrafn Sigurðsson
sem vann til verðlauna fyrir þátt um
hljómsveitina Bloodhound Gang.
Útvarpsvinna
er lærdómsrík
Indriði, sem er potturinn og pann-
an á bak við hugmyndina að jólaút-
varpinu, hafði séð útvarpsvinnu í öðr-
um félagsmiðstöðvum og fannst hún
virka sem góð viðbót við félagsstarfið.
„Útvarpsvinna er nám, það er nám
fyrir tæknimenn, það er nám í ís-
lensku, handritagerð og framsögn og
þjálfun í að koma fram,“ segir Indriði.
„Upphaflega byrjaði þetta sem jóla-
útvarp og hefur haldist sem átaks-
verkefni, og staðið í allt að 6 daga en 4
dagar koma best út því þá er hægt að
halda uppi vönduðu efni alla dagana.“
Samkvæmt Indriða er grunnskól-
inn orðinn mjög virkur í samstarfinu,
því hver bekkur hafði klukkutíma-
dagskrá til umráða. Þeir kennarar
sem nýttu sér þáttagerð sem tæki í
kennslu og til að fá meiri fjölbreytni í
íslenskunámið höfðu flotta dagskrá.
Skólinn hefur verið með í þessu fram-
taki frá upphafi og er áhuginn alltaf
að aukast. Indriði fullyrðir enn-
fremur að sumir krakkar læri meira
við útvarpsvinnuna en þeir myndu
gera á sama tíma í skólanum.
Tækniþekking nemenda er til kom-
in vegna plötu- og tækjanámskeiðs
sem boðið er upp á í félagsmiðstöð-
inni. Þegar fengið var stórt hljóðkerfi
fyrir níu
árum var ákveðið að krakkarnir
tækju sk. plötu- og tækjapróf, og öðl-
ast við það skírteini sem gerir þeim
kleift að komast inn í „plötukompu“
en þangað fer enginn skírteinislaus.
Alls eru núna 44 krakkar með þetta
próf, og hluti af þeim tekur þátt í út-
varpinu. Indriði segir að gaman sé að
fylgjast með þessum krökkum, þeir
verða flest mjög tæknilega sinnaðir.
Hér er t.d. einn nemandi, Stefán
Vignir Skarphéðinsson, sem hannaði
heimasíðu þar sem finna mátti allt um
Útvarp Óðal og hægt að hlusta á það í
beinni útsendingu en það kom sér vel
fyrir gamla nemendur sem ekki náðu
útsendingum. Slóðin að vefnum er
http://odal.vefurinn.is/ og þar er hægt
að lesa meira um útvarpsreksturinn
og skoða myndir.
Ungir og
upprenn-
andi
útvarps-
menn
Ljósmynd/Guðrún Vala Elísdóttir
Stoltir útvarpsmenn ásamt bakhjarli sínum,
Indriða Jósafatssyni æskulýðsfulltrúa.
Ljósmynd/Guðrún Vala Elísdóttir
Krakkarnir í Borgarnesi lögðu hart að sér við að gera
Útvarp Óðal sem best úr garði.
Grunnskólanemendur í Borgarnesi