Morgunblaðið - 10.01.2001, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur
sent erindi til ríkislögreglustjóra um
að embættið rannsaki frekar við-
skipti Búnaðarbanka Íslands hf. og
Hlutabréfasjóðs Búnaðarbankans
með hlutabréf Pharmaco hf. á ár-
unum 1999 og 2000. Er það mat
Fjármálaeftirlitsins að bankinn hafi
haft innherjaupplýsingar um félagið
en átt viðskipti með hlutabréf þess á
sama tíma sem er brot á lögum um
verðbréfaviðskipti
Búnaðarbankinn telur aftur á
móti að engar reglur hafi verið
brotnar og hefur óskað eftir því að
fá að kynna sér gögn málsins frekar
í samræmi við reglur stjórnsýslu-
laga. Þeirri ósk hefur Fjármálaeft-
irlitið hafnað og telur að málsmeð-
ferðarreglur stjórnsýslulaga eigi
ekki við.
Vilja nánari upp-
lýsingar um brot
Pálmi Jónsson, formaður banka-
ráðs Búnaðarbanka Íslands, segir
að bankinn hafi óskað eftir því að fá
upplýsingar um einstök atriði sem
Fjármálaeftirlitið teldi að gætu falið
í sér brot. „Okkur var synjað um
það og vitum því ekki hvaða brot er
verið að tala um. Á meðan við vitum
það ekki er erfitt að svara því um
hvað er að ræða. Við gerðum ráð
fyrir að við fengjum að gera það
með því að setja fram okkar athuga-
semdir og skýringar en okkur hefur
verið synjað um það.
Því hefur bankinn ákveðið að
kæra ákvörðun eftirlitsins og hefur
falið Gesti Jónssyni hrl. að annast
málið.“
Bankinn finnur ekkert at-
hugavert við viðskiptin
Fjármálaeftirlitið telur að Búnað-
arbanki Íslands hf. og Hlutabréfa-
sjóður Búnaðarbankans hafi búið yf-
ir trúnaðarupplýsingum um
Pharmaco hf. á tímabilinu apríl til 7.
júní 1999 og viðskipti bankans og
sjóðsins með hlutabréf í félaginu á
því tímabili kunni að hafa falið í sér
brot á lögum um verðbréfaviðskipti.
Jafnframt telur Fjármálaeftirlitið
að rannsaka þurfi frekar viðskipti
sömu aðila með hlutabréf í Phar-
maco frá 7. júní 1999 til mars 2000
og því hafi eftirlitið sent málið til
Ríkislögreglustjóra.
Vegna athugunar Fjármálaeftir-
litsins hefur bankaráð og banka-
stjórn Búnaðarbankans látið fara
fram ítarlega skoðun á öllum við-
skiptum bankans, Hlutabréfasjóðs
Búnaðarbankans og Fjárfestingar-
sjóðs bankans með hlutabréf í
Pharmaco á því tímabili sem ósk
Fjármálaeftirlitsins um nánari
rannsókn Ríkislögreglustjóra nær
til. Sú athugun hefur ekki leitt í ljós
að reglur hafi verið brotnar, sam-
kvæmt upplýsingum frá Búnaðar-
bankanum.
Að sögn Pálma var um lítil við-
skipti að ræða á fyrra tímabilinu og
að innra eftirlit bankans hafi ekki
getað séð að neinar reglur hafi verið
brotnar á því síðara. Því sé óskað
eftir upplýsingum um bæði tímabilin
sem tilgreind eru í tilkynningu Fjár-
málaeftirlitsins til bankans.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, vildi ekki tjá
sig um málið að svo stöddu.
Viðskipti BÍ með bréf Pharmaco til ríkislögreglustjóra
Bankinn kærir ákvörð-
un Fjármálaeftirlits
Viðskipti/23
RÍKISSJÓÐUR ber ábyrgð á lífeyr-
isgreiðslum til grunnskólakennara
sem eru komnir á eftirlaun. Þetta er
í samræmi við samning sem sveit-
arfélögin og ríkið gerðu með sér árið
1996 þegar rekstur grunnskólans
var færður frá ríkinu til grunnskól-
ans. Ekki liggur fyrir um hve miklar
upphæðir er að ræða en þær skipta
milljörðum.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að verið væri að skoða þetta
mál í fjármálaráðuneytinu en flest
benti til að ábyrgðin á þessum skuld-
bindingum hvíldi hjá ríkissjóði.
Samkvæmt reglum B-deildar Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins mið-
ast lífeyrisgreiðslur til ellilífeyris-
þega við grunnlaun eftirmanns í
starfi. Í nýgerðum samningi ríkisins
við framhaldsskólakennara og í
samningi sveitarfélaganna við
grunnskólakennara er verið að
hækka grunnlaun verulega. Grunn-
laun byrjanda í kennslu í framhalds-
skóla, sem er með BA- eða BS-próf,
hækka úr tæplega 110 þúsund á
mánuði í 175 þúsund. Hliðstæðar
breytingar verða í samningi grunn-
skólakennara þótt upphæðirnar séu
heldur lægri. Ríkið er ábyrgt fyrir
því að greiða kostnað við þau bættu
lífeyrisréttindi sem samningur fram-
haldsskólakennara felur í sér. Ríkið
er einnig ábyrgt fyrir því að greiða
kostnað við stærstan hluta af
lífeyrisskuldbindingum til grunn-
skólakennara sem hlýst af samningi
sveitarfélaganna við grunnskóla-
kennara enda er mestur hluti þeirra
kominn til meðan grunnskólakenn-
arar voru enn starfsmenn ríkisins.
Skiptir milljörðum
Ekki liggur fyrir í fjármálaráðu-
neytinu eða hjá Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins hvað lífeyrisskuld-
bindingar ríkisins hækka mikið með
þessum samningum. Geir H. Haarde
sagði að verið væri að taka það sam-
an. Hann sagði þó ljóst að samningur
grunnskólakennara væri mun dýrari
en samningur við framhaldsskóla-
kennara. Starfandi grunnskólakenn-
arar eru tæplega 4.000 en fram-
haldsskólakennarar eru um 1.300.
Um 2/3 kennara sem hafið hafa töku
lífeyris eru grunnskólakennarar.
Geir tók fram að þær tölur um líf-
eyrisskuldbindingar, sem Pétur
Blöndal alþingismaður hefði nefnt,
væru ekki réttar en hann hefur sagt
að samningur framhaldsskólakenn-
ara leiði til þess að lífeyrisskuldbind-
ingar ríkisins hækki um 14 milljarða.
Geir sagði að verið væri að gera sam-
bærilegar breytingar á launakerfi
framhaldsskólakennara og gerð var
á launakerfi nær allra annarra stétta
háskólamanna árið 1997.
Ríkið ber ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum sem leiðir af samningi grunnskólakennara
Óljóst hver
kostnaður er
Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson
HAFNSÖGUBÁTURINN Þróttur
hefur verið í stöðugum siglingum
um smábátahöfnina í Hafnarfjarð-
arhöfn undanfarna daga til að rjúfa
ísinn sem hamlar smábátaflotanum
för. Sérstaklega þarf að brjóta ísinn
fyrir plastbátana sem komast lítt
áleiðis án aðstoðar Þróttar.
Þróttur var smíðaður 1963 og
gegndi fyrstu árin hlutverki fiski-
báts. Upp úr 1970 var báturinn svo
gerður að hafnsögubáti Hafn-
arfjarðarhafnar og hefur lóðsað
skip um höfnina í þrjá áratugi. Sá
gamli verður senn leystur af hólmi,
að minnsta kosti hvað varðar erf-
iðustu verkin, því nýr hafn-
sögubátur er í smíðum og er vænt-
anlegur í febrúar. Nýi báturinn er
mun stærri og öflugri en Þróttur og
hefur hann hlotið heitið Hamar.
Verður hann m.a. notaður sem
dráttarbátur þar sem togkraftur
hans er 13 tonn en Þróttur dregur
aðeins um þrjú tonn.
Hafnsögumenn bæjarins segja al-
vanalegt að smábátahöfnina leggi í
tíðarfari eins og verið hefur á suð-
vesturhorninu, þegar mikið frost
og stillur leggjast á eitt. Þegar
hvessir á ný kemst hreyfing á sjó-
inn og öldurnar brjóta ísinn. Þá
mæðir minna á Þrótti og ferðum
hans fækkar. Á fimmtudag og
föstudag hlýnar í veðri og spáir
Veðurstofan rigningu eða súld um
sunnan- og vestanvert landið og
3–8 stiga hita.
Aðstoðar smábátana
BYGGING rannsókna- og nýsköp-
unarhúss við Háskólann á Akureyri
verður einkaframkvæmd og munu
þeir sem reisa bygginguna einnig
reka hana. Í húsinu verður starfsemi
á vegum Háskólans á Akureyri og
um 20 ríkisstofnana af ýmsu tagi,
auk þess sem ætlunin er að bjóða
svokölluðum sprotafyrirtækjum upp
á aðstöðu í húsinu.
Áætlað er að verksala verði þann-
ig heimilað að reisa u.þ.b. 6.000 fer-
metra hús en sú starfsemi sem þegar
er fyrirhuguð í húsinu mun nýta um
4.000 fermetra.
Síðar í þessum mánuði verður
ljóst hvernig forvali verður háttað en
stefnt er að því að niðurstaða fáist úr
því 24. febrúar nk. Bráðabirgðagögn
vegna útboðs ættu að liggja fyrir í
byrjun mars og endanleg útboðs-
gögn í lok þess mánaðar. Verklok
eru áætluð í upphafi árs 2003.
Einkafram-
kvæmd
á Akureyri
Um 6 þúsund /32
♦♦♦
LOKAGENGI hlutabréfa deCODE
genetics Inc., móðurfélags Íslenskr-
ar erfðagreiningar, var 7,9375 doll-
arar á hlut á Nasdaq-hlutabréfa-
markaðnum í New York í gær.
Lækkuðu bréfin um 8,63% frá síð-
asta viðskiptadegi. Er þetta í fyrsta
skipti sem lokagengi félagsins fer
niður fyrir átta dollara á hlut. Um
miðjan dag í gær var gengi bréfanna
komið niður í 6,6875.
Svokölluðu læsingartímabili, þ.e.
banni við sölu á hlutabréfum félags-
ins, lýkur 14. janúar næstkomandi
en fyrsta viðskiptadag þar á eftir,
mánudaginn 15. janúar, verða fjár-
málamarkaðir í Bandaríkjunum lok-
aðir í minningu Martin Luther King.
deCODE und-
ir 8 dollara