Morgunblaðið - 13.01.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarð-
ar hefur samþykkt að fela
bæjarverkfræðingi að afla
nauðsynlegra leyfa og sjá
um að Hafnarfjarðarbíó við
Strandgötu verði rifið. Til
stendur að byggja á lóðinni
nýtt verslunarhús og verði
innangengt úr því í versl-
anamiðstöðina Fjörð.
Kristinn Magnússon,
bæjarverkfræðingur í
Hafnarfirði, sagði í samtali
við Morgunblaðið að bær-
inn hefði verið að eignast
húsið undanfarin ár og
hefði keypt síðasta eignar-
hlutann á síðasta ári. Engin
starfsemi er lengur í hús-
inu en þar var hárgreiðslu-
stofa til áramóta.
Á dögunum varð tjón í
vatnsflóði í kjallaranum og
urðu þá skemmdir á eigum
listamanns, sem fengið
hafði aðstöðu í kjallaranum
til bráðabirgða.
Kristinn sagði að lengi
hefði verið talað um að rífa
húsið.
Hann sagði stefnt að því
að innangengt væri frá
Strandgötunni og inn í
verslanamiðstöðina en
ákvörðun um það lægi þó
ekki fyrir. Skipulagsferli
vegna nýbyggingarinnar er
ólokið og bæjarverkfræð-
ingurinn sagðist ekkert
þora að segja til um hve-
nær framkvæmdir gætu
hafist.
Hrikalega
lélegt hús
Hvað varðar niðurrif
Hafnarfjarðarbíós verður
næsta skref að sækja um
leyfi hjá byggingarfulltrúa
og bygginganefnd að rífa
það. Kristinn kvaðst stefna
að því að hægt yrði að fara
að rífa húsið upp úr næstu
mánaðamótum.
Að sögn hans er Hafnar-
fjarðarbíó hrikalega lélegt
hús og orðið ónýtt. „Það
virðist byggt upp úr kassa-
fjölum,“ sagði hann. Und-
anfarin ár hefur starfsemi
smám saman verið að
hverfa úr húsinu.
Hafnarfjarðarbíó
verður rifið
Hafnarfjörður
FYRIR borgarráði liggur til-
laga frá borgarstjóra um að
efnt verði til hugmyndasam-
keppni um skipulag lóðar fyrir
tónlistarhús, ráðstefnumið-
stöð og hótel og fleira á svæð-
inu í grennd við Austurhöfn.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að um-
ræða og tillögur, sem fram
hafa komið undanfarið um
tónlistarhús, svæðið við Hafn-
arhúsið og fleira sem varðar
framtíð þessa svæðis, hafi leitt
í ljós að horfa þurfi á svæðið í
stærra samhengi og hafa í
huga tengsl mannvirkja við
nærliggjandi hús og götur og
miðborgina.
Borgarstjóri sagði að með
hugmyndasamkeppninni væri
verið að kalla eftir hugmynd-
um um hvernig menn gætu
séð fyrir sér fyrirkomulag á
þessu svæði og hvaða starf-
semi þar ætti að fara fram.
Tekur til Arnarhóls
og Hafnarhúss
Ein af forsendum hug-
myndasamkeppninnar verður,
að sögn borgarstjóra, bygging
tónlistarhúss, ráðstefnuhúss
og hótels á lóðinni þar sem nú
er Faxaskáli. Eftir er að skipa
dómnefnd og ganga frá for-
sögn fyrir keppnina en hún
mun ná til svæðis sem afmark-
ast af Norðurstíg, Klappar-
stíg, Sæbraut, Tryggvagötu
og Hafnarstræti, þ.e. innan
svæðisins eru Arnarhóll, at-
hafnasvæði SVR við Hverfis-
götu, reiturinn þar sem eru
Hafnarhúsið og Grófarhúsið,
svo og miðbakkinn.
Borgarstjóri sagði aðspurð
að væntanlega yrði gengið frá
samningum ríkis og borgar
um byggingu tónlistarhúss,
ráðstefnuhúss og hótels á
Faxaskálalóðinni á næstunni.
Stefnt væri að því að hug-
myndasamkeppninni yrði lok-
ið um mitt þetta ár og verði
niðurstöður meðal þeirra
gagna sem fara til þeirra fjár-
festa sem rætt er við um þátt-
töku í tónlistarhússverkefn-
inu. „Okkur finnst þetta svo
mikilvægur reitur að við þurf-
um að reyna að virkja sem
flesta og fá sem mesta um-
ræðu og teljum hugmynda-
samkeppni vel til þess fallna
að ná þessu fram,“ sagði borg-
arstjóri.
Í tillögunni til borgarráðs
kemur fram að meðal mark-
miða keppninnar sé að laða
fram hugmyndir um hvernig
svæðið geti litið út miðað við
þá starfsemi og nýtingu sem
fyrirhuguð verður samkvæmt
forsögn að samkeppninni.
Einnig að stuðla að umræðu
meðal borgarbúa um hlutverk
svæðisins og mannvirkja sem
þar eru eða verða og leiða
fram áhugasama aðila og leita
hugmynda um bestu lausnir á
skipulagi svæðisins.
Samkeppni um nágrenni
Arnarhóls og Austurhafnar
Miðborg
!
"
#
$%
#
&
"
% ' " ( $
% &
"
)
*
+" +" ! ,
(
%
!" -
VETURINN hefur verið
mildur það sem af er, að
minnsta kosti lætur hríð-
arveðrið bíða eftir sér. Bygg-
ingamenn taka þessu sjálf-
sagt fagnandi, t.d. þeir sem
vinna við uppbyggingu Ás-
landshverfisins í Hafnarfirði
með Snæfellsjökulinn í bak-
sýn.
Morgunblaðið/Þorkell
Útsýni úr Áslandi
Hafnarfjörður
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
hefur til umfjöllunar tillögu
um að við kaup á strætisvögn-
um verði könnuð kaup á
tveimur vögnum sem nota
metangas.
Að sögn Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgar-
stjóra stendur fyrir dyrum að
kaupa 25 vagna fyrir Stræt-
isvagna Reykjavíkur og tillag-
an gengur út á að við það
tækifæri verði kannaðir
möguleikar á að 1-2 vagnanna
gangi fyrir metangasi.
„Það er til skoðunar,“ sagði
borgarstjóri og kvaðst telja
eðlilegt að leitað verði eftir til-
boðum í 25 venjulega vagna
og jafnframt frávikstilboðum
þar sem gert væri ráð fyrir
tveimur metanvögnum.
Metan-eldsneyti er fram-
leitt af fyrirtækinu Metan
sem er dótturfyrirtæki Sorpu
og framleiðir eldsneytið úr
hauggasi á Álfsnesi. Fram-
leiðslan er á þróunarstigi. Nú
þegar eru til í landinu um 20
bílar sem brenna metangasi.
Í umsögn frá Strætisvögn-
um Reykajvíkur um tillöguna
kemur fram að áfylling met-
ans á vagnana muni taka
margar klukkustundir sem
henti illa og þyrfti að finna
lausn á því. Lausleg athugun
bendi til að kaupverð met-
anknúins strætisvagns geti
verið um 5 m.kr. hærra en dís-
elvagns af sömu stærð. Að
auki þurfi að gera ráð fyrir
stofnkostnaði við dreifikerfi
metangass og rekstrarkostn-
að þess. Því séu nægar for-
sendur, til að hægt sé að taka
ákvörðun um kaup og rekstur
metangasvagna við komandi
útboð, ekki fyrir hendi og fullt
eins heppilegt geti verið að
bjóða metanvagna út sérstak-
lega.
Fær SVR
metan-
vagna?
Reykjavík
Á ANNAN tug manna og
kvenna, sem sóttu um lóðir í
Mosfellsbæ í september sl. en
áttu ekki kost á úthlutun eftir
að reglum var breytt 27. des-
ember, hittust á fundi í fyrra-
kvöld til að ræða aðgerðir í
málinu. Fólkið hefur fengið
lögmann til að vinna með sér
að málinu, að sögn Jóns S. Óla-
sonar, sem hyggst senda
félagsmálaráðuneytinu stjórn-
sýslukæru vegna málsins.
Ráðuneytinu hefur þegar verið
send ein kæra.
Ekki frekari
rökstuðningur
Á fundi bæjarráðs Mosfells-
bæjar í fyrrakvöld var ákveðið
að rökstyðja ekki frekar en
gert var með bókun frá 4. jan-
úar þá ákvörðun bæjarstjórn-
ar að breyta reglum um út-
hlutunina eftir að
umsóknarfrestur rann út.
„Bæjarráð telur ekki rök til
endurúthlutunar á umræddum
lóðum. Alls bárust 262 um-
sóknir um þær 40 lóðir sem
voru til úthlutunar. Vegna
mikils fjölda umsókna um lóð-
irnar var óhjákvæmilegt við
úrvinnslu umsókna að setja
ákveðnar viðmiðunar- og verk-
lagsreglur um þær þar sem
ljóst var að ekki var unnt að
verða við öllum umsóknum
sem fullnægðu þeim lágmarks-
skilyrðum sem kveðið var á um
í reglum sem tilgreindar voru
á bakhlið umsóknareyðu-
blaðs,“ segir í bókuninni frá 4.
janúar.
Jóhann Sigurjónsson, bæj-
arstjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið að bæjarráð
hefði í gær fjallað um bréf Jóns
S. Ólasonar og annars aðila,
sem hinar breyttu reglur úti-
lokuðu frá úthlutun, og ákveð-
ið að standa við bókunina.
Jafnframt hefði bæjarstjóra
verið falið að gera bréfriturum
grein fyrir þeirri afstöðu.
Jón S. Ólason sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að
hann hefði ekki átt von á ann-
arri afgreiðslu frá bæjarráði
en þessari og kvaðst mundu
senda félagsmálaráðuneyti
stjórnsýslukæru strax og hann
fengi skriflegt svar bæjarráðs í
hendur.
Hann telur að með því að
breyta úthlutunarreglum að
loknum umsóknarfresti, þann-
ig að eingöngu bæjarbúar
komu til greina sem lóðarhaf-
ar, hafi bæjarstjórn brotið
gegn leiðbeiningarskyldu og
jafnréttisreglu stjórnsýslulag-
anna.
Bæjarráðið hefur þegar
fjallað um þrjú bréf frá fólki,
sem kvartar vegna þess hvern-
ig staðið var að lóðaúthlutun-
inni, og Jón S. Ólason segist
vita til að fjöldi bréfa sé á leið-
inni til bæjarins. „Það er mikil
reiði í fólki,“ sagði Jón.
Ein kæra þegar
send ráðuneyti
Hann sagði að 10–15 manns,
sem málið varðar, hefðu hist í
fyrrakvöld og ætli að bindast
samtökum um framhald máls-
ins. Lögmaður vinni með
hópnum, sem sé fjölmennari
en fundarboðendur hafi búist
við. Þegar hafi ein kæra verið
send félagsmálaráðuneyti með
kröfu um endurúthlutun lóð-
anna og fleiri muni fylgja í
kjölfarið.
Hópur, sem breyttar úthlutunarreglur komu í veg fyrir að fengi lóðir, hittist á fundi
Bindast samtökum
vegna málsins
Mosfellsbær