Morgunblaðið - 13.01.2001, Page 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu eða leigu glæsilegt
verslunar-, þjónustu- og skrifstofuhús-
næði á einum besta stað á Akureyri
Fasteignin Hvannavellir 14 er til sölu eða leigu. Um er að ræða hús-
næði á þremur hæðum og eru tvær neðri hæðir hússins lausar til af-
nota nú þegar. Stærð hússins er 2.861,6 fm. Þriðja hæðin er í útleigu
með langtímaleigusamningi. Fjölmörg bílastæði eru við húsið og
hentar það vel til reksturs fyrir hvers konar verslunar-, þjónustu- eða
skrifstofustarfsemi.
Með eigninni fylgir lóð og grunnur, ásamt teikningum, fyrir 1.000 fm
hús. Mögulegt er að kaupa eða leigja eignina í minni einingum.
Allar frekari upplýsingar veitir
Björn Guðmundsson, Fasteignasalan
BYGGÐ, Strandgötu 29, Akureyri.
Símar 462 1744 og 462 1820,
fax 462 7746
Vífilfell á Akureyri óskar eftir að ráða sölumann
á Norðurlandi. Um framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Ringsted í
síma 891 7907
Sölumaður
ÁHUGAMENN um útivist að vetrarlagi sjá eflaust fram
á góða daga upp til fjalla nú í vetur. Félagar í Björg-
unarsveitinni Súlum lögðu á sig ferð í vikunni upp á
Öxnadalsheiði en þar skoðuðu þeir m.a. aðstæður til ís-
klifurs í þessum fossi í Kotárgili í Norðurárdal. Hafa
þeir alltaf hugann við að æfa sig fyrir erfið verkefni.
Í Kotárgili
Morgunblaðið/Gunnlaugur Búi Ólafsson
Félagar í Björgunarsveitinni Súlum á Akureyri voru að æfa ísklifur í
Kotárgili í Norðurárdal.
HINN árlegi KA-dagur verður hald-
inn í KA-heimilinu sunnudaginn 14.
janúar kl. 14.
Hápunktur dagsins verður krýn-
ing á íþróttamanni KA árið 2000 en
að auki verða ýmsar uppákomur í
íþróttasal félagsins. Þá verður boðið
upp á kaffiveitingar og eru KA-menn
og velunnarar félagsins hvattir til að
mæta í KA-heimilið á sunnudag.
KA-dagurinn á sunnudag
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 á morgun, sunnudag.
Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.
Fundur Æskulýðsfélagsins kl. 17 í
kapellu. Morgunsögur á þriðjudag
kl. 9. Mömmumorgunn kl. 10 til 12
næsta miðvikudag. Eygló Aradótt-
ir barnalæknir flytur erindið: Hiti,
hósti og hor í nös. Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12 á fimmtudag.
Bænaefnum má koma til prest-
anna. Léttur hádegisverður í Safn-
aðarheimilinu á eftir.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamkoma
og guðsþjónusta á morgun, sunnu-
dag, kl. 11. Sameiginlegt upphaf.
Foreldrar eru hvattir til að mæta
með börnunum. Séra Hannes Örn
Blandon þjónar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, bæn kl.
19.30 og almenn samkoma kl. 20.
Heimilasamband kl. 15 á mánudag.
Hjálparflokkur kl. 20 á miðviku-
dag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bæna-
stund kl. 20 í kvöld, laugardags-
kvöld. Sunnudagaskóli fjölskyld-
unnar kl. 11.30 á morgun.
Aldursskipt kennsla þar sem allir
fá eitthvað við sitt hæfi. G. Theo-
dór Birgisson sér um kennsluna.
Vakningasamkoma kl. 16.30 sama
dag. Flutt verður fjölbreytt lof-
gjörðartónlist og Yngvi Rafn
Yngvason predikar. Fyrirbæna-
þjónusta og barnapössun.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl.
18 á laugardag og kl. 11 á morgun,
sunnudag, í Péturskirkju, Hrafna-
gilsstræti 2.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Messa
verður fyrir allt prestakallið í
Möðruvallakirkju sunnudaginn 14.
janúar kl. 14:00. Mætum öll og
njótum samveru í húsi Guðs.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30. Almenn
samkoma á Sjónarhæð, Hafnar-
stræti 63, kl. 17 sama dag. Fundur
fyrir 6–12 ára börn á Sjónarhæð kl.
17.30 á mánudag.
Kirkjustarf
www.mbl.is