Morgunblaðið - 13.01.2001, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 33
Fágun
fagmennska
Gullsmiðir
KURAN Kompaní leikur í Hömrum
á Ísafirði í dag, laugardag, kl. 17.
Kuran Kompaní er skipað fiðluleik-
aranum Szymon Kuran og rafgítar-
leikaranum Hafdísi Bjarnadóttur.
Dúettinn var stofnaður á síðasta ári
og hefur síðan þá leikið víða.
Á tónleikunum mun dúettinn leika
frumsamda tónlist í bland við djass-
standarda og frjálsan spuna. Tónlist
kompanísins er blanda úr ýmsum
áttum, m.a. djassi, klassík, rokki,
þjóðlögum og ýmsu öðru. Kuran
Kompaní hefur gefið út eina geisla-
plötu með frumsömdu efni. Miðaverð
á tónleikana er 1.200 kr. en ókeypis
fyrir nemendur 20 ára og yngri.
Kuran Kompaní: Hafdís Bjarna-
dóttir rafgítarleikari og Szymon
Kuran fiðluleikari.
Kuran
Kompaní
í Hömrum
ALEXANDER Steig opnar sýningu í
sýningarrýminu garður – udhus –
küche á morgun, sunnudag, kl. 4 á Ís-
landi og kl. 2 í Danmörku og Þýska-
landi. GUK er í garðinum við Ártún 3
á Selfossi, í skúr við Kirkebakken 1 í
Lejre í Danmörku og í eldhúsinu í
Callinstrasse 8 í Hannover.
Steig er ungur þýskur myndlistar-
maður sem lauk mastersnámi við
myndlistarháskólann í Hannover árið
1998 og vinnur nú að doktorsverkefni
við háskólann í Hildesheim.
Í fréttatilkynningu segir að hann
vinni gjarnan með myndbönd og sjón-
vörp og tengsl þess við áhorfandann
og hlutverk eftirlitsmyndavéla í sam-
félaginu sé honum einnig hugleikið.
Ennfremur segir: „Í verkinu Toky
Sheetahs last employment sem Alex-
ander hefur gert fyrir GUK hefur
hann krufið hlutverk sjónvarpsins og
skipt einu tæki á þrjá staði. Í skúrn-
um í Lejre sjáum við sjónvarpsmynd-
ina sem snjó án þess að ná nokkurri
sjónvarpsstöð, í eldhúsinu í Hannover
heyrist aðeins truflanahljóðið og í
garðinum á Selfossi stendur sjón-
varpstækið sjálft, eitt og yfirgefið, í
snjónum og hefur lokið hlutverki
sínu. Tækið var framleitt á sjöunda
áratugnum í Japan, flutt til Þýska-
lands og notað þar í áratugi. Það
ferðast svo til Selfoss og lýkur þar
sínu göfugu ævistarfi. Hægt er að
sameina sjónvarpið á ný með því að
fara á alla staðina þrjá.“
Slóðin: http://www.simnet.is/guk.
Alexander
Steig sýnir
í GUK
♦ ♦ ♦