Morgunblaðið - 13.01.2001, Page 47
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 47
ÚTSALAN ER HAFIN
NÆRFÖT NÆRFÖT NÆRFÖT
Laugavegi 24, sími 562 4235
fyrir löngu gjörbreytt því sem
mannshöndin þarf að fást við í nýt-
ingu á stærðfræði, allt frá einföldum
reikningi með matarpeninga til flók-
inna stærðfræðilegra athugana og
ákvarðana. En það gerir ekki skiln-
ing á stærðfræði óþarfan. Þvert á
móti er hann bæði mikilvægari en
fyrr og getur hugsanlega orðið eign
miklu fleiri kvenna og karla en
nokkru sinni áður. Víðtækt stærð-
fræðilegt læsi getur orðið eðlilegur
þáttur í almennri menntun ef við
viljum og skiljum tilgang með slíku.
Hér á ég þó við nokkuð annars
konar skilning í stærðfræðinámi en
oft er talað um. Ég bind skilninginn
ekki við það að geta framkvæmt á
blaði eða í reiknitæki alla útreikn-
inga sem þarf til fá fram lausn af-
markaðra viðfangsefna. Þess í stað
beinist athygli að því að þekkja til
stærðfræðilegra aðstæðna, vita
hvers konar viðfangsefni eru af
þeim toga að þau krefjist stærð-
fræðilegrar nákvæmni og rökfestu.
Hvaða svið í mannlífinu eru þess
eðlis að stærðfræðihugtök hjálpi til
að varpa ljósi á þau og veita yfirsýn?
Hvaða liðsinni er í stærðfræði til
þess að ná áttum í ýmiss konar
glundroða og því sem virðist alfarið
óreglulegt? Næmi og eftirtekt, íhug-
un og rökleg eftirfylgja skipta vissu-
lega máli fyrir þann sem ræðst að
þessum spurningum en sá hinn sami
situr ekki í hvert skipti með blýant
sér í hönd og meðhöndlar tákn.
Einhver kann að segja að þetta sé
ekki nóg til þess að um stærðfræði-
legan skilning sé að ræða og séð
undir þröngu sjónarhorni má það til
sanns vegar færa. En það sem ég
fjalla hér um hefur óumdeilanlega
skort í stærðfræðinám allt of
margra, bæði þeirra sem litla stærð-
fræði hafa numið og hinna sem lokið
hafa þar talsverðu námi í framhalds-
skólum og háskólum. Slíkur skortur
hefur orðið til þess að erfitt hefur
reynst að sjá tilgang og samhengi í
þessu námi og menntunargildið oft-
ar en ekki orðið lítið.
Veggspjöld um stærðfræði
Á Íslandi var prentað kynning-
arspjald vegna stærðfræðiársins þar
sem viðburðir voru kynntir. Í ná-
grannalöndum tóku menn, í krafti
fjölmennis, enn stærri skref. Þannig
stóðu Evrópusamtök stærðfræðinga
(Eurpopean Mathematical Society –
EMS) í samvinnu við stærðfræðiárs-
nefndir nokkurra landa að sam-
keppni vorið 1999 um gerð vegg-
spjalda fyrir almenning. Vegg-
spjöldin hafa birst víða, þar sem
straumur fólks á leið um, svo sem í
lestakerfi eða almenningsvögnum. Á
þeim má sjá perlusnekkjuna (naut-
ilus) en sú fallega skel tengist gull-
insniði. Á veggspjöldunum er einnig
sýnt hvaða skyldleika skátahnútar
eiga við líffræðilegar rannsóknir á
hegðan veira. Brotarúmfræðin
(fractal geometry) á þarna einnig
sess en í Morgunblaðinu hefur
reyndar verið að finna einstaka
greinar um hana. Athugun á dýrum
með bletta-skinn er enn eitt dæmið
og gerð stærðfræðilegra líkana til
þess að skoða hvers vegna sum dýr
eru með blettaskinn og önnur rákir.
Gamalkunn þraut Eulers, sem
stærðfræðikennarar hafa oft lagt
fyrir nemendur sína, um brýrnar í
Königsberg er á einu veggspjaldinu.
Hana má t.d. finna í sendingu 2C
veturinn 1998–1999, ef farin er slóð-
in www.ismennt.is/vefir/heilabrot.
Vantar fleiri
íslensk veggsjöld
Mánaðarlega hafa birst í neðan-
jarðarlestinni í London ný og ný
veggspjöld sem gerð voru við Stofn-
un Newtons (Isaac Newton Insti-
tute for Mathematical Sciences). Í
janúar var það sólfífillinn og tengsl
hans við runu Fibonaccis: 1, 1, 2, 3,
5, 8, …. Í apríl voru það stærðfræði-
legar kenningar um eðli og orsakir
hamfara og eitt sinn undir haustið
dulmálskóðar (http://www.cpm.
sees.bangor.ac.uk/rpamath/posters/
posopen.html).
Það væri afar ánægjulegt að geta
birt hérlendis veggspjöld frá EMS
eða Stofnun Newtons með íslensk-
um texta til fræðslu og ánægju fyrir
þá sem leið eiga um víðfarna staði.
Þar skiptir ekki máli þótt árið 2000
sé liðið. Vilji einhverjir, ásamt ís-
lensku nefndinni um Alþjóðlega
stærðfræðiárið 2000, koma að kost-
un slíkra veggspjalda er það ger-
legt.
Í næstu grein fjallar Anna Krist-
jánsdóttir, formaður íslensku nefnd-
arinnar um Alþjóðlega stærðfræði-
árið, m.a. um norrænu ráðstefnuna
Stærðfræði 2000 – Meginatriði
fræða og framkvæmda. Meðal þess
sem sagt verður frá eru hugmyndir
og reynsla ungs verkfræðings í Nor-
egi sem ákvað að verða grunnskóla-
kennari og hefur stundað kennara-
nám í Bergen og víðar.
Morgunblaðið/Ómar
Skuggar heilla stærðfræðinga. Þeir gleyma sér yfir aðdáun á skuggum.
ÁRIÐ 2001 er evrópska tungu-
málaárið hjá Evrópusambandinu
og EES-löndunum. Ísland tekur
þátt í því af fullum krafti og er
Jórunn Tómasdóttir verkefn-
isstjóri þess fyrir hönd mennta-
málaráðuneytisins. Markmið árs-
ins er að vekja athygli á
fjölbreytni tungumála og menn-
ingar í Evrópu, vinna að fjöltyngi
Evrópubúa og stuðla að símennt-
un á sviði tungumála. Á Íslandi er
lögð, í tilefni þessa, áhersla á
kennslu, bæði erlendra tungumála
og íslensku á tungumálaári auk
táknmáls. Sérstaklega verður
reynt að höfða til almennings, og
að hvetja fullorðna til að læra ný
tungumál.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins veitir sérstaka styrki í
tilefni ársins og er hægt að spyrj-
ast fyrir um þá hjá mennta-
málaráðuneytinu. Einnig eru skól-
ar hvattir til að nýta svokallaðar
þemavikur (eða opna daga) í þágu
tungumálanna. Jórunn Tóm-
asdóttir veitir upplýsingar um
möguleika þessa tungumálaárs.
Netfang hennar er jorunn.tom-
asdottir@mrn.stjr.is.
Merki ársins er litfagurt og á að
tákna góða sambandið sem ein-
staklingar og þjóðir geta myndað
með því að hlusta á og tala tungu-
málin.
Aðild Íslands mun felast í þátt-
töku í samevrópskum sem og inn-
lendum aðgerðum. Opnunarathöfn
Evrópsks tungumálaárs verður í
Lundi í Svíþjóð dagana 18.-20.
febrúar 2001 en lokaathöfnin
verður haldin í Brussel í desem-
ber. Evrópsk vika tungumálanáms
innan fullorðinsfræðslu stendur
frá 5.-11. maí og Evrópskur
tungumáladagur verður haldinn
26. september. Einnig kemur
margt fleira til, s.s. útgáfa hand-
bókar fyrir tungumálanemendur,
sameiginlegt merki og slagorð.
Gera má ráð fyrir að árlegir
viðburðir hérlendis á sviði tungu-
mála verði tengdir tungu-
málaárinu, s.s. upplestrarkeppni
grunnskólanna, frönsk ljóða-
samkeppni, þýskuþrautin og Dag-
ur íslenskrar tungu. Viðurkenning
fyrir nýbreytni í tungumála-
kennslu, Evrópumerkið (European
Label), verður veitt á árinu. Þá er
ráðgert er að halda ráðstefnu um
tungutækni og einnig er áætlað að
halda málþing um stefnur og
strauma í tungumálakennslu og
þörfina fyrir tungumálakunnáttu í
atvinnulífinu.
A.m.k. verður nóg um að vera.
Merki evrópska tungumálaársins
Hvað á að gera?
LANDSSKRIFSTOFA Leonardó
á Íslandi auglýsir eftir sérfræðing-
um til að meta íslenskar umsóknir í
Leonardo da
Vinci-starfs-
menntaáætlun
Evrópusam-
bandsins.
Næsti umsóknarfrestur er til 19.
janúar og fer matið fram í febrúar.
Gert er ráð fyrir að hver mats-
maður lesi tvær til þrjár umsóknir.
Matsmenn þurfa að hafa góðan
skilning á starfsmenntun og sam-
starfi atvinnulífs og skóla, auk
góðrar enskukunnáttu og tölvulæs-
is. Reynsla af sambærilegum störf-
um og evrópsku samstarfi er kost-
ur, en boðið verður upp á stutt
námskeið fyrir matsmenn áður en
starfið hefst.
Þemaáætlun um
upplýsingasamfélagið
Rannsóknaþjónusta Háskóla Ís-
lands og Evrópusambandið hafa
undirritað samstarfssamning um
aðstoð við íslenska
aðila sem hafa
áhuga á þátttöku í
þemaáætlun ESB um upplýsinga-
samfélagið (IST).
Verkefnið sem kallast IDEAL-
IST er unnið í samstarfi við tengi-
liði áætlunarinnar í þeim 30 ríkjum
sem eru aðilar að rannsóknasam-
starfinu í gegnum 5. rammaáætlun
ESB.
Rannsóknaþjónustan tekur að
sér eftirfarandi verkefni fyrir
ESB: 1. veita upplýsingar um IST
og sjá um allt kynningarstarf á Ís-
landi. 2. vera milliliður milli ESB
og íslenskra þátttakenda í IST. 3.
leita að samstarfsaðilum í Evrópu í
gegnum leitarkerfi IDEALIST
(bæði fyrir íslenska aðila í Evrópu
og fyrir evrópska aðila á Íslandi).
4. aðstoða við hliðstæða starfsemi í
nýjum aðildarríkjum og taka þátt í
upplýsingadreifingu um IST á al-
þjóðlegum ráðstefnum og sýning-
um.
Nánari upplýsingar veitir Rann-
sóknaþjónusta HÍ í síma 525 4900.
Upplýsinga-
skrifstofur um
Evrópumál