Morgunblaðið - 13.01.2001, Síða 66
MESSUR
66 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Tilfinningaleg
tjáskipti
STEFÁN Jóhannsson fjölskylduráð-
gjafi kemur í heimsókn í hjónastarf
Neskirkju n. k. sunnudagskvöld 14.
janúar og ræðir um efnið tilfinninga-
leg tjáskipti. Eins og nafnið ber með
sér fjallar erindið um það hvernig
hjón/fólk í sambúð tjáir tilfinningar
sínar hvort við annað eða tjáir ekki.
Stefán Jóhannsson hefur langa
reynslu af ráðgjöf í fjölskyldumálum,
lærði og starfaði sem slíkur vestur í
Bandaríkjunum á sínum tíma. Fyr-
irlestur hans hefst kl. 20:00 og er öll-
um opinn.
Halldór Reynisson.
Barna- og
æskulýðsstarf
Árbæjarkirkju
BARNA- og unglingastarf kirkjunn-
ar hefst aftur sunnudaginn 14. janúar
eftir gott jólafrí.
Sunnudagaskólinn er á hverjum
sunnudegi kl. 13. Þar er mikið sungið
og sprellað. Hlýtt á skemmtilegar
sögur úr biblíunni og annar fróðleikur
á boðstólum.
Á sunnudagskvöldum eru æsku-
lýðsfélögin með fundi sína frá kl. 20-
22. Samverurnar eru ætlaðar 8.-10.
bekkingum. Kirkjuprakkarar, börn á
aldrinum 7-9 ára eru á mánudögum
kl. 16-17. TTT-starf fyrir börn frá 10-
12 ára eru sömuleiðis á mánudögum
kl. 17.30-18.30. TTT-starf í Ártúns-
skóla er á þriðjudögum kl. 17.10-
18.10.
Það er boðið upp á uppbyggilegar
samverur fyrir alla aldurshópa í Ár-
bæjarkirkju og allir eru boðnir vel-
komnir að taka þátt í skemmtilegu
starfi.
Starfsfólk Árbæjarkirkju.
Lifandi steinar –
námskeið
um trúarvöxt
FRAMUNDAN er námskeiðið „Lif-
andi steinar“ á vegum Reykjavík-
urprófastsdæmis vestra í samstarfi
við Hallgrímskirkju og Leikmanna-
skóla þjóðkirkjunnar.
„Lifandi steinar“ er fullorðins-
fræðslunámskeið um hvernig tengja
má trúna og hversdagslífið. Því er
m.a. ætlað að hjálpa fólki að nálgast
trúarlegan uppruna sinn að nýju og
þroskast í tilbeiðslu. Þá mun þátttaka
í námskeiðinu vekja fólk til vitundar
um mikilvægi samfélags í trúariðkun
og uppljúka helgihaldi og táknmáli
þess á nýjan hátt. Loks má nefna að
námskeiðið er einnig vel til þess fallið
að virkja þau sem eru leitandi að
trúarlegri festu og endurnýjun.
Námskeiðið er öllum opið. Það
verður haldið í suðursal Hallgríms-
kirkju sex miðvikudagskvöld kl. 20-22
frá 17. janúar til 21. febrúar ásamt
með einum laugardegi, 3. febrúar, kl.
10-15. Kostnaður hvers þátttakanda
er kr.
3.500.- og er innifalinn matur í há-
degi á helgarsamveru. Sr. María
Ágústsdóttir og frú Jónanna Björns-
dóttir munu leiðbeina á námskeiðinu
ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni.
Safnaðarstarf
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Kaffisala Safnaðarfélags Áskirkju
eftir messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11:00. Foreldrar, ömmur og afar eru
hvött til þátttöku með börnunum.
Ungmennahljómsveit undir stjórn
Pálma J. Sigurhjartarsonar. Guðs-
þjónusta kl. 14:00. Prestur sr. María
Ágústsdóttir.
DÓMKIRKJAN: Kristniboðsvígsla kl.
11:00. Biskup Íslands herra Karl
Sigurbjörnsson vígir Salóme Huld
Garðarsdóttur til kristniboðsstarfa.
Vígsluvottar: Birna G. Jónsdóttir,
Jónas Þórisson, Skúli Svavarsson
og sr. Valgeir Ástráðsson. Séra Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson, dómkirkju-
prestur, þjónar fyrir altari.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl.
14:00. Prestur sr. Lárus Halldórs-
son. Organisti Kjartan Ólafsson.
Félag fyrrverandi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl.
11:00. Guðsþjónusta kl. 11:00.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Ólafur Jó-
hannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnastarf kl. 11:00. Umsjón barna-
starfs Magnea Sverrisdóttir. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10:00.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11:00. Sr. Carlos A. Ferrer,
Pétur Björgvin Þorsteinsson
fræðslufulltúi, Sólveig Halla Krist-
jánsdóttir, guðfræðinemi og Guðrún
Helga Harðardóttir, djáknanemi.
Messa kl. 14:00. Einsöngur Erla B.
Einarsdóttir. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Carlos A. Ferrer. Mola-
sopi eftir messu.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11:00.
Organisti Jón Stefánsson. Prestur
sr. María Ágústsdóttir. Barnastarf í
safnaðarheimilinu á sama tíma. Um-
sjón Lena Rós Matthíasdóttir.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11:00. Kór Laug-
arneskirkju syngur. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Jóna Hrönn, Halla og
Andri stýra sunnudagaskólanum.
Prestur sr. Bjarni Karlsson. Messu-
kaffi. Messa kl. 13:00 í dagvistar-
salnum Hátúni 12. Þorvaldur Hall-
dórsson syngur, Margrét Scheving
sálgæsluþjónn, Guðrún K. Þórsdótt-
ir djákni og sr. Bjarni Karlsson þjóna
ásamt hópi sjálfboðaliða. Kvöld-
messa kl. 20:30. Kór Laugarnes-
kirkju syngur við undirleik Gunnars
Gunnarssonar á píanó, Matthías
M.D. Hemstock á trommur, Sigurður
Flosason á saxófón og Jón Rafnsson
á kontrabassa. Prestshjónin sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Bjarni
Karlsson þjóna að orðinu og borð-
inu.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kór eldri borgara Neskirkju
leiðir söng. Prestur sr. Halldór Reyn-
isson. Organisti Reynir Jónasson.
Sunnudagaskólinn og 8–9 ára starf-
ið á sama tíma. Kirkjubíllinn ekur um
hverfið á undan og eftir eins og
venjulega. Safnaðarheimilið er opið
frá kl. 10:00. Kaffisopi eftir guðs-
þjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11:00. Altarisganga. Organisti
Viera Manasek. Sr. Sigurður Grétar
Helgason. Sunnudagaskólinn á
sama tíma. Bjóðum börnin sérstak-
lega velkomin til skemmtilegrar
samveru. Ýmislegt nýtt á döfinni.
Verið öll hjartanlega velkomin.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjón-
usta kl. 14:00. Barnastarf á sama
tíma. Maul eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Pavel Smid. Kirkju-
kórinn syngur. Sunnudagaskólinn kl.
13.00. Fræðsla, söngur og sögur.
Allir eru velkomnir, ungir sem aldnir.
Sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
messar.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Magnús B. Björnsson.
Organisti: Kjartan Sigurjónsson. Kór
Digraneskirkju B hópur. Sunnudaga-
skóli á sama tíma. Leiðbeinendur:
Þórunn, sr. Gunnar og Þóra. Léttur
málsverður í safnaðarsal að lokinni
messu og sunnudagaskóla
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Organisti Lenka
Mátéová. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma í safnaðarheimilinu í um-
sjón Margrétar Ó. Magnúsdóttur.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnar-
son prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju syngur. Organ-
isti Hörður Bragason. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11:00 í Grafarvogs-
kirkju. Prestur sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir. Umsjón: Sigrún og Þor-
steinn Haukur. Undirleikari: Guð-
laugur Viktorsson. Barnaguðsþjón-
usta í Engjaskóla. Prestur sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Sigrún
og Þorsteinn Haukur. Undirleikari:
Guðlaugur Viktorsson. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Barn borið til skírnar.
Salka E. Hjálmarsdóttir og Sandra
Ó. Kristbjarnardóttir leika á trompet.
Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti: Jón
Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjón-
usta í Lindaskóla kl. 11 og í kirkjunni
kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18. Prestarn-
ir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl.
11:00. Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór
Kópavogskirkju syngur og leiðir safn-
aðarsöng. Organisti: Julian Hewlett.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Krakkaguðsþjónusta
kl. 11.00. Mikill söngur og nýr lím-
miði. Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Ágúst Einarsson prédikar. Anna
Margrét Óskarsdóttir syngur ein-
söng. Organisti er Gróa Hreinsdóttir.
Ath. guðsþjónustunni verður útvarp-
að. Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Val-
geir Ástráðsson prédikar. Organisti
er Gróa Hreinsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morg-
unguðsþjónusta kl. 11. Fræðsla fyrir
börn og fullorðna. Samkoma kl. 20.
Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Olaf
Engsbråten prédikar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Léttur hádegis-
verður á eftir. Samkoma kl. 20.
Högni Valsson prédikar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
KEFAS, Dalvegi 24: Almenn sam-
koma kl. 14. Ræðumaður Björg R.
Pálsdóttir. Mikil lofgjörð og fyrirbæn.
Kaffi og spjall að lokinni samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir.
BOÐUNARKIRKJAN: Samkoma kl.
11. Í dag sér Magnea Sturludóttir
um prédikun og Ragnheiður Ólafs-
dóttir um biblíufræðslu. Á laugardög-
um starfa barna- og unglingadeildir.
Súpa og brauð eftir samkomuna. All-
ir hjartanlega velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Vörður L.
Traustason. Lofgjörðarhópurinn
syngur. Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Laugardags-
skóli í dag kl. 13. Sunnudag kl. 20
hjálpræðissamkoma í umsjón majór
Elsabet Daníelsdóttur. Mán: Kl. 15
heimilasamband. Majór Turid Gamst
talar. Fimmtud: kl. 20 lofgjörðarsam-
koma í umsjón majór Turid Gamst.
Föstud: kl. 21 bænanótt fyrir Ísland
og Færöyjar deild. Allir hjartanlega
velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Sam-
koma kl. 17:00. Kveðjusamkoma
fyrir Salóme Huld Garðarsdóttur,
kristniboða, sem er á förum til Ken-
ýa. Upphafsorð og bæn: Kornelia
Eichhorn. Ávarp: Salóme Huld Garð-
arsdóttir. Söngur: Kangakvartettinn.
Ræða: Skúli Svavarsson. Fundir fyrir
börn á meðan samkoman stendur yf-
ir. Heitur matur eftir samkomuna á
vægu verði. Komið og njótið upp-
byggingar og samfélags. Vaka
20:30. Guðlaugur Gunnarsson
fjallar um efnið: Hvernig er á himn-
um? Á dauða mínum átti ég von,
en… Mikil lofgjörð. Boðið verður upp
á fyrirbæn í lok samkomu. Komum
og lofum Guð saman. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík - Dómkirkja Krists Kon-
ungs: Sunnudag: Biskupsmessa kl.
10.30. Jósefssystur kvaddar.
Messa kl. 14.00. Messa kl. 18.00
(á ensku). Mánudag til laugardags:
messa kl. 18.00. Mánudag, þriðju-
dag og föstudag: messa einnig kl.
08.00. Laugardag: Barnamessa kl.
14.
Reykjavík - Maríukirkja við
(Jóh. 2.)
Brúðkaupið í Kana.
Morgunblaðið/Ómar
VETURINN 1996 var byrjað að
halda svokölluð „Jákvæð námskeið
um hjónaband og sambúð“ á vegum
Hafnarfjarðarkirkju. Í fyrstu var
ætlunin að halda aðeins eitt nám-
skeið fyrir jól og annað eftir, en eft-
irspurnin var slík að námskeiðin
urðu 8 og þau sóttu um 400 manns
þann veturinn. Síðan hafa þessi
námskeið verið haldin reglulega og
sýnir ásóknin í þau að margir vilja
leggja sitt af mörkum til þess að
styrkja hjónaband sitt og fjöl-
skyldulíf. Námskeiðin eru ætluð öll-
um sem eru í hjónabandi eða sam-
búð og ekki aðeins þeim sem eiga við
vandamál að stríða. Á námskeið-
unum er fjallað um samskipti for-
eldra og barna, stjórnun innan fjöl-
skyldunnar og hvernig þessi atriði
endurspeglast í hegðun barna og
unglinga utan fjölskyldunnar. Farið
er í gegnum helstu gildrur sambúð-
arinnar, hvernig fjölskyldumynstr-
um hægt er að festast í, fjallað um
væntingar, vonir og vonbrigði. En
fyrst og fremst eru kynntar þær
leiðir sem hægt er að fara til að
sleppa út úr vítahring deilna og
átaka í sambúð og hvernig styrkja
má innviði fjölsyldunnar. Þau pör er
taka þátt geta síðan skráð sig í
einkaviðtöl mánuði eftir að nám-
skeiðinu lýkur, þyki þörf þar á.
Einnig er vísað til presta og fagaðila
er geta veitt nánari aðstoð, sé þess
óskað. Þó hér sé um að ræða nám-
skeið fyrir hjón og sambúðarfólk,
væri að sjálfsögðu nauðsyn að halda
slík námskeið fyrir alla foreldra,
hvort sem þeir eru í sambúð eða
ekki. Á ofangreindum námskeiðum
hafa þátttakendur einnig bent á, að á
mörgum vinnustöðum ríkir mjög
neikvætt andrúmsloft, baktal og
samskiptaörðugleikar sem starfs-
menn síðan taka með sér heim hvort
sem þeim líkar betur eða verr. Þann-
ig eitrar andrúmsloft vinnustaðar
fjölskyldulífið. Nauðsynlegt er því
að huga að aðstæðum hinna full-
orðnu sem eru fyrirmynd barnanna.
Það eru þannig mikil og stór verk
sem bíða Þjóðkirkjunnar. Hjóna-
starf í söfnuðum landsins er aðeins
hluti af því. Nú hefur „Jákvætt nám-
skeið um hjónaband og sambúð“
verið haldið í samvinnu við Fræðslu-
deild Biskupsstofu um mest allt land
frá árinu 1996 og hafa meira en 1700
pör eða 3400 manns tekið þátt í
þeim. Á vori komandi verður fram
haldið með námskeiðið 6. árið í röð
og er skráning hafin í Hafnarfjarð-
arkirkju sem og á öðrum stöðum um
land allt þar sem námskeiðið fer
fram.
Sr. Þórhallur Heimisson, prestur
í Hafnarfjarðarkirkju og leiðbein-
andi á „Jákvæðu námskeiði um
hjónaband og sambúð“.
Hafnarfjarðarkirkja
Jákvætt námskeið
um hjónaband
og sambúð