Morgunblaðið - 13.01.2001, Page 67
Innritun fer fram frá kl. 9-12 virka
daga á skrifstofu prófastsdæmisins í
s. 510 1000.
Kvennakirkjan
í Seltjarnar-
neskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guð-
þjónustu í Seltjarnarneskirkju
sunnudaginn 14. janúar kl. 20.30.
Umfjöllunarefni messunnar er:
Hvernig notum við trú okkar á nýju
ári. Er það feimnismál að segjast
trúa? Hvernig vill Kvennakirkjan efla
starf sitt og trú. Ræðukonur eru
Elísabet Þorgeirsdóttir og Ninna Sif
Svavarsdóttir. Kór Kvennakirkjunn-
ar leiðir almennan söng við undirleik
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kaffi á
eftir í safnaðarheimilinu.
Fimmtudaginn 18. janúar kl. 17.30
verður síðdegisboð, sem er öllum op-
ið, í Þingholtsstræti 17. Þar verður
haldið áfram umræðum umumfjöllun-
arefnið í messunni.Kaffi og heitar
vöfflur á boðstólum.
Kynningarfundur á 12 sporastarfi í
Laugarneskirkju
Kynningar-
fundur á 12
spora-starfi
NÆSTKOMANDi mánudagskvöld
kl. 20:00 verður haldinn kynningar-
fundur í Laugarneskirkju á hinu
merka 12 spora-starfi sem mjög hef-
ur rutt sér til rúms innan kirkjunnar
að undanförnu. Um er að ræða kerf-
isbundna samveru í smáum kynskipt-
um hópum þar sem unnið er með
skaddaðar tilfinningar samkvæmt
bókinni „Tólf sporin, andlegt ferða-
lag“. Hefur tveggja ára reynsla Laug-
arnessafnaðar af þessu starfi verið
frábær og mælum við stolt með þessu
tilboði fyrir allt fólk og hvetjum við
flesta til að koma á kynningarfundinn
sem haldinn verður í kirkjuskipinu.
Barnastarf í
Selfosskirkju
BARNASTARFIÐ heldur áfram í
Selfosskirkju. Sunnudagaskólinn
mun tengjast messunni kl. 11 og hefst
14. janúar. Krakkaklúbburinn, starf
fyrir 6-9 ára börn, verður áfram á
miðvikudögum og hefst 17. janúar kl.
14. Nýjar bækur eru komnar og einn-
ig límmiðar.
Berglind, Eygló og Guðbjörg.
Grafarvogskirkja. AA-hópur kl. 11.
Fríkirkjan Vegurinn: Almenn sam-
koma kl. 14. jölskyldusamkoma kl. 11.
Brauðsbrotning. Samkoma kl. 20.
Brauðsbrotning. Högni Valsson préd-
ikar. Allir hjartanlega velkomnir.
KEFAS: Samkoma í dag laugardag
kl. 14. Ræðumaður Björg R. Pálsdótt-
ir. Mikil lofgjörð og fyrirbæn. Kaffi
og spjall að lokinni samkomu. Allir
hjartanlega velkomnir. Þriðjud: Al-
menn bænastund kl. 20.30. Miðvikud:
Samverustund unga fólksins kl. 20.30.
Fimmtud: Menn með markmið kl. 20.
Föstud: Bænastund unga fólksins kl.
19.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Umsjón:
Hreiðar Örn Stefánsson.
Raufarsel: Sunnudag: messa kl.
11.00. Virka daga: messa kl.
18.30.
Riftún, Ölfusi: Sunnudag: messa kl.
17.00.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnu-
dag: messa kl.10.30. Miðvikudag:
messa kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudag messa
kl. 08.30. Laugardag og virka daga:
messa kl. 8.00.
Keflavík -Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudag: messa
kl.14.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Sunnudag: messa kl. 10.00. Mánu-
dag til laugardags: messa kl. 18.30.
Laugardag,
Flateyri: messa kl. 18.00. Sunnu-
dag: Ísafjörður - Jóhannesar-kap-
ella: messa kl. 11.00.
Bolungarvík: messa kl. 16.00.
Suðureyri: messa kl. 19.00.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 16.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Barna-
kórinn Litlir lærisveinar syngur.
Fyrsta samvera á nýju ári. komum
fagnandi saman. Kl. 20.30 kaffi-
húsamessa með Tónsmíðafélaginu
og mörgum góðum söngvurum.
Guðsþjónustan er í Safnaðarheim-
ilinu en þar sitjum við saman við
ljúfa tónlist, lofgjörð, kaffi og kerta-
ljós. Allir velkomnir en börn þurfa að
vera í fylgd fullorðinna svona seint
að kvöldi. Unglingar í æskulýðsfélag-
inu aðstoða. Mán: Kl. 17 æskulýðs-
starf fatlaðra, eldri hópur. Komið
fagnandi.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Kristján Valur Ing-
ólfsson. Athugið að kirkjudagur
Karlakórsins Stefnis verður síðar en
ekki þennan dag eins og auglýst var í
einu bæjarblaða. Barnaguðsþjón-
usta í safnaðarheimilinu kl. 11.15.
Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskólar í Strandbergi og Hvaleyr-
arskóla kl. 11. Munið kirkjurútuna í
Hvamma- og Setbergshverfi. Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Natalía
Chow. Félagar úr kór kirkjunnar leiða
söng. Prestur sr. Þórhildur Ólafs.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Bragi Friðriksson messar. Kór Víði-
staðasóknar syngur. Organisti Úlrik
Ólason. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón Sigríður
Kristín, Edda og Örn. Guðsþjónusta
kl. 14. Orgel og kórstjórn Þóra Vigdís
Guðmundsdóttir. Einar Eyjólfsson.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskól-
inn hefst að nýju í Stóru-Vogaskóla
laugardaginn 13. janúar kl. 11.00.
Foreldrar hvattir til að mæta með
börnum sínum. Afhent nýtt og
spennandi efni. Fermingarfræðslan
er kl. 12.00 sama dag og á sama
stað. Prestarnir.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Sunnudagaskólinn hefst að
nýju á sama tíma. Nýtt og spennandi
efni afhent. Organisti Jóhann Bald-
vinsson. Kirkjukórinn leiðir safnað-
arsönginn. Sr. Friðrik J. Hjartar þjón-
ar. Mætum öll! Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14.00. Sunnu-
dagaskólabörnin hvött til að mæta.
Ásgeir Páll og Nanna Guðrún verða
með okkur. Álftaneskórinn syngur
undir stjórn organistans Jóhanns
Baldvinssonar. Sr. Friðrik J. Hjartar
þjónar. Prestarnir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa og ald-
ursskiptur sunnudagaskóli kl. 11.
Altarisganga. Prestur sr. Ólafur Odd-
ur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju leið-
ir söng. Organisti Einar Örn Einars-
son. Undirleikari í sunnudagaskóla
Helgi Már Hannesson.
SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Morguntíðir sungn-
ar þriðjudaga til föstudaga kl. 10.
Foreldrasamvera miðvikudag kl. 11.
Krakkaklúbbur miðvikudag kl. 14–
14.50. Biblíuleshópur kemur saman
kl. 18. Sakramentisþjónusta að
lestri loknum. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl.
14. Sóknarprestur.
SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal:
Guðsþjónusta verður í Skeiðflatar-
kirkju í Mýrdal sunnudag kl. 14. Kór
Skeiðflatarkirkju syngur undir stjórn
Kristínar Björnsdóttur organista.
Fjölmennum til kirkju í byrjun árs.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra.
Sóknarprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Messa fyrir
allt prestakallið sunnudag kl. 14.
Mætum öll og njótum samveru í húsi
guðs. Sóknarprestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 14.
Organisti Torvald Gjerde. 15. jan:
Kyrrðarstund kl. 18. Sóknarprestur.
MESSUR
2000
GÓÐAR MINNINGAR
Sendu inn ljósmynd og þú átt möguleika
á að fara í menningarferð til Evrópu
Ljósmyndasamkeppni
Reykjavík--Menningarborg 2000, Morgunblaðið -- blað menningar-
borgarársins, Hans Petersen og Kringlan efna til ljósmyndasam-
keppni um góðar minningar sem festar hafa verið á filmu frá
menningarborgarárinu sem er að líða. Efnt verður til ljósmynda-
sýningar á innsendum myndum í Kringlunni 3.--12. febrúar.
Þú gætir unnið!
Tíu myndir verða verðlaunaðar
og þú gætir haft heppnina með þér
1. verðlaun: Helgarferð fyrir tvo til Amsterdam
2. verðlaun: Stafræn myndavél frá Kodak
3.--10. verðlaun: Miðar fyrir tvo í leikhús ásamt gjafa-
bréfi frá Kringlunni og einnota
myndavél með framköllun
➧ Öllum er heimil þátttaka og frjálst er að senda
fleiri en eina mynd.
➧ Skilafrestur er framlengdur til 20. janúar 2001.
➧ Myndum má skila inn í verslanir Hans Petersen í
Reykjavík og á aðra Kodak Express sölustaði um
land allt, merktar 2000 minningar, og eiga
myndirnar að vera á pappír. Einnig má
skila myndum inn á tölvutæku formi á
slóðinni www.hanspetersen.is.
➧ Innsendum myndum verður ekki
skilað til baka og áskilja að-
standendur keppninnar
sér rétt til að nota
myndirnar í aug-
lýsingar á sín-
um vegum.
- blað menningarborgarársins 2000
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 67