Morgunblaðið - 13.01.2001, Síða 75
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 75
Munið gömlu dansana í Húnabúð,
Skeifunni 11 í kvöld kl. 21.30.
Hljómsveitir Þorsteins
Þorsteinssonar og Þórleifs
Finnssonar leika fyrir dansi.
Félag
harmonikuunnenda
HALLÓ — HALLÓ!
HARMONIKUBALL í kvöld í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima. Dansað frá kl. 22.00.
Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur
leika fyrir dansi ásamt gestaspilurum frá
Félagi harmonikuunnenda Suðurnesjum,
(FHUS). Ragnheiður Hauksdóttir syngur.
Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
Helga Jónsdóttir
leikari
Jón Viðar Jónsson
fíl.dr., leikhúsfræðingur
Inga Bjarnason
leiksstjóri
Allar nánari upplýsingar í símum 552 3132 og 866 1659 (Inga)
og 551 7743 og 863 6437 (Jón Viðar)
Ertu að hugsa um að komast
inn í leiklistarskóla?
Þá er betra að mæta vel undirbúinn í inntökuprófið.
Seinni önn námskeiðsins hefst miðvikudaginn 17. janúar nk.
Megináhersla verður lögð á leiktúlkun og greiningu leikrita. Getum
bætt við fáeinum nemendum en eldri nemendur ganga fyrir.
Le Bossu
(Le Bossu)
Æ v i n t ý r a m y n d
Leikstjóri: Philippe de Broca.
Handrit: Philippe de Boca, Jean
Cosmos, Jerome Tonnerre. Aðal-
hlutverk: Daniel Auteuil, Fabrice
Luchini, Vincent Perez. (128 mín.)
Frakkland, 1997. Háskólabíó. Ekki
við hæfi ungra barna.
ÞESSI franska ævintýramynd
ætti aldeilis að vera við hæfi þeirra
sem gaman hafa af skylmingarköpp-
um og hetjum í dulargervi, ástum,
örlögum og
blúnduermum. Le
Bossu er gerð eftir
sígildri skáldsögu
Pauls Fevals sem
sver sig í ætt við
sögur á borð við
Vesalingana,
Skytturnar þrjár
og Cyrano de
Bergerac. Þar seg-
ir frá Lagardere sem er frábær
skylmingarmaður. Hann kemur hin-
um ágæta hertoga af Nevers til
varnar, þegar reynt er að ráða Nev-
ers af dögum ásamt nýbakaðri eig-
inkonu og dóttur. Lagardere tekst
aðeins að bjarga barnungri dóttur-
inni, og elur hann hana upp í leynd.
Þetta er bráðskemmtileg og vel gerð
ævintýramynd, með öllu tilheyrandi.
Þó vantar örlítið upp á kraftinn í
þessari kvikmyndaútgáfu sögunnar,
og þannig jafnast Le Bossu ekki
fyllilega á við bestu ævintýramyndir
sinnar tegundar.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Skylmingar
og blúndu-
ermar
LISTAHÚS Veru bauð rússneskum
og úkraínskum börnum sem búsett
eru á Íslandi ásamt foreldrum sínum
til ekta rússneskrar jólaskemmtunar
á annan í jólum. Vitaskuld bauð Vera
sjálfum rússneska jólasveininum til
veislunnar og skemmti sveinki börn-
unum í sérstökum viðhafnarbúningi
að rússneskum sið sem gestgjafinn
Vera hafði saumaði á hann. Vera lét
ekki þar við sitja heldur aðstoðaði
hún jólasveininn vin sinn við að út-
vega gjafir börnunum handa. Smá-
fólkið þakkaði hlýhug sveinka og
Veru með því að fara með vel valin
jólaljóð á rússnesku við hlýlegar
undirtektir foreldra og annarra við-
staddra.
Rússnesk
jóla-
skemmtun
Sveinki dansaði með börnunum í kringum stórt og fagurgrænt jólatréð.
Börnin voru himinlifandi yfir að hitta jólasveininn og spjalla við hann.