Vísir


Vísir - 28.12.1978, Qupperneq 8

Vísir - 28.12.1978, Qupperneq 8
8 Sophia Loren og Anthony Franciosa I nýjustu myndinni, Firepower. Hlakka til bess að verða gömul ## Sophia Loren óttast ekki ellina eða hrukk- urnar sem ellinni vilja fylgja. „Ég hlakka til þess að verða gömul"/ segir hún. „Ég óttast það ekki, vegna þess að gamlar konur á Italíu eru virtar mikils. Og satt að segja, er engin ástæða fyrir konur i dag, sem eru f immtugar eða sextugar að líta út fyrir það. Það eru til svo ótal mörg brögð í dag sem má nota". Og áfram: „Þar fyrir utan er sagt, að konum bjóð- ist bestu hlutverkin, þegar þær eru komnar yfir sextugt. Sjáið bara Katharine Hepburn, og tvoaf Oskurunum henn- ar þremur, sem hún vann ekki fyrr en í ell- inni. Kannski ég fái ann- an Öskar þegar ég er orðin gömul. Reyndar á ég ekki von á öðrum slíkum á næstunni. Þeir virðast haldnir ein- hverjum hleypidómum gagnvart aðlaðandi kon- um". - Gloria og Gloria.... Gloria og verkin hennar Leikkonan Gloria Swanson starir þarna framan í sjálfa sig, eða öllu heldur skúlptúr, sem hún gerði sjálf á ár- inu 1964. Höfuðið er i eðlilegri stærð, og hefur veriðtil sýnis í jólamán- uðinum ásamt fleiri skúlptúrum og olíumál- verkum sem Gloria hef- ur sjálf gert. Sýningin hefur verið í Hamilton Galleries í London. Flest verkin eru til sölu. Það má svo geta þess að Gloria er orðin 79 ára gömul. Þær hafa veriö ráönar á hin ýmsu sklp I bandarlska flotanum. Fimm fara ó sjóinn Meira en tvö hundruð ára gömul venja hefur verið brotin innan bandariska sjóhersins. Þar til þótti það ekki við hæfi að konur ynnu skyldustörf um borð I öðrum skipum en sjúkra- og flutninga- skipum i Atlantshafs- og Kyrrahafsf lotanum. Þessar fimm konur á meðfylgjandi mynd hafa verið ráðnar á kaf- bátamóðurskip, birgða- skip fyrir tundurspilla og viðgerðaskip. I Umsjón: Edda Andrésdóttir Fimmtudagur 28. desember 1978. VÍSIB Hrollur. Viltu lfta á eyraö á mér?

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.