Vísir - 03.01.1979, Qupperneq 14
14
Auglýsing
um rannsóknarstyrki EMBO í sameinda-
líffræði.
Sameindallffræöistofnun Evrópu (European Molecular
Biology Organization, EMBO) hefur i hyggju aö styrkja
vlsindamenn sem starfa I Evrópu og Israel. Styrkirnir eru
veittir bæöi til skamms tima (1 til 12 vikna) og lengri
dvalar, og er þeim ætlaö aö efla rannsóknarsamvinnu og
verklega framhaldsmenntun I sameindallffræöi.
Skammtlmastyrkjum er ætlaö aö kosta dvöl manna á i
erlendum rannsóknastofum viö tilraunasamvinnu, eink-
um þegar þörf veröur fyrir slikt samstarf meö litlum
fyrirvara. Langdvalarstyrkir eru veittir til allt aö eins árs
I senn, en umsóknir um endurnýjun styrks til eins árs I
viöbót koma einnig til álita. Umsækjendur um lang-
dvalarstyrki veröa aö hafa lokiö doktorsprófi. Umsóknir
um styrki til dvalar utan Evrópu og ísraels koma til álita,
en þær njóta minni forgangs. 1 báöum tilvikum eru auk
dvalarstyrkja greidd fargjöld styrkþega milli landa.
Umsóknareyöublöö og nánari upplýsingar fást hjá Dr. J.
Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology
Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022.40, Vestur
Þýskalandi.
Umsóknir um skammtimastyrki má senda hvenær sem
er, og er ákvöröun um úthlutun tekin fljótlega eftir mót-
töku umsókna. Langdvalarstyrkjum er úthlutaö tvisvar á
ári. Fyrri úthlutun fer fram 30. aprll, og veröa umsóknir
aö hafa borist fyrir 20. febrúar, en siöari úthlutun fer fram
31. október, og veröa umsóknir aö hafa borist fyrir 31.
ágúst. Vegna þess aö umsækjendur eru venjulega kvaddir
til viötals, er nauösynlegt aö umsóknir berist áöur en
frestur rennur út.
A árinu 1979 efnir EMBO einnig til námskeiöa og vinnu-
hópa á ýmsum sviöum sameindaliffræöi. Skrá um fyrir-
huguö námskeiö og vinnuhópa er fyrir hendi I mennta-
málaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavlk.
Menntamálaráöuneytiö,
28. desember 1978.
aÓNSKÓLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR.
Innritað
verður í vorönn í Hellusundi 7,
miðvikudaginn 3. janúar og
fimmtudaginn 4. janúar
kl. 16-19 búða dagana _íhúsi
Tónskólans við Fellaskóla verður innritað
sunnudaginn 7. janúar kl. 14 —16. í undir-
búningsdeild og kórsöng er enn hægt að
innrita nokkra nemendur, að öðru leyti er
skólinn nær fullskipaður.
Umsóknir þarf að staðfesta með greiðslu
námsgjalda áður en kennsla byrjar.
Kennsla hefst mánudaginn 8. janúar sam-
kvæmt stundaskrá. Skólastjóri
blaðburóarfólk
óskast!
Bergstaðastrœti
Ingólfsstrœti
Grundarstig
Hallveigarstígur
Laufósvegur
Bókhlöðustígur
Miðstrœti
Kambsvegur
Dyngjuvegur,
Hjallavegur,
Kambsvegur.
Rauðúrholt I.
Einholt
Hóteigsvegur
Rauðarórstígur
Skúlagata
Borgartún
Laugavegur
134-160 Skúlatún
Nes I
Lindarbraut,
Melabraut,
Miðbraut.
VISIR
Miövikudagur 3. jantiar 1979 vism
Þeir uröu númer tvö og þrjú i heimsmeistarakeppninni I diskódansi i London. Hver veröur tslands-
meistari hér heima?
HVER VERÐUR ÍS-
LANDSMEISTARI
í DISKÓDANSI?
SKRÁIÐ YKKUR TIL ÞÁTTÖKU
I SÍMA VÍSIS, 86611
Þaö er fariö aö styttast i
fyrsta hlutann af keppninni um
tslandsmeistaratitiiinn . i
diskódansi. Næsta sunnudag, 7.
janúar, hefst dansinn á fuilu i
óöaii, en þaö eru Óöal og Visir
sem efna til þessarar keppni. Og
þetta er I fyrsta sinn sem
tslandsmeistari i diskódansi
veröur kjörinn.
Væntanlegir þátttakendur eru
beönir aö skrá sig sem allra
fyrst, og til þess þarf aöeins aö
hringja i sima Visis, sem er
86611. Þessi keppni er
einstaklingskeppni, en þátttak-
endum er þó heimilt aö dansa
viö annan aöila, — eöa sgm pör.
Allt áhugafólk um dans, hvar
sem er á landinu, 18 ára og
eldra, er velkomiö til þátttöku.
List mjög vel á keppn-
ina
Atvinnudansarar og fólk vel
kunnugt öllum hnútum I dans-
listinni dæmir keppnina, en
yfirdómari veröur Heiöar Ast-
valdsson danskennari. Heiöar,
sem viöstaddur var heims-
meistarakeppnina i diskódansi I
London á dögunum sagöi:
„Mér list mjög vel á þessa
keppni, og sé ekki annaö en aö
hún muni fara fram meö
sóma.” Heiöar sagöi fulltrúa frá
36 löndum i heiminum hafa tek-
iö þátt I heimsmeistarakeppn-
inni, og þaö vakti athygli hans i
hve miklum meirihluta karl-
menn voru I keppninni, eöa
þrjátiu og stúlkurnar sex. 1 úr-
slit komust fimmtán, þar af
fjórtá'n karlmenn. „Þaö viröist
sem karlmenn ætli aö blómstra i
þessari tegund af dansi, en kon-
urnar aö falla i skuggann.”
Heiöar sagöi eina Islenska
stúlku hafa tekiö þátt i keppn-
inni I London. Sú starfar I Kaup-
mannahöfn og heitir Sóley.
Heiöar tók þaö fram aö hún
heföi staöiö sig vel en hins vegar
þætti sér eölilegra aö fulltrúi
Heiöar Astvaldsson var viðstaddur heimsmeistarakeppnina f diskó-
dansi I London á dögunum. Hann veröur yfirdómari i keppninni um
tslandsmeistaratitilinn á vegum óöals og Visis.
Islands væri valinn hér heima.
Og þaö stendur einmitt til, I
beinu framhaldi af þessari
diskókeppni sem byrjar á
sunnudaginn.
Fulltrúi íslands i
heimsmeistarakeppn
valinn.
Hún er hugsuö sem kynning á
keppni sem fer fram siöar á
þessu ári i Óöali, þar sem valinn
veröur fulltrúi íslands i heims-
meistarakeppnina. Væntanlegir
þátttakendur i þeirri keppni,
eiga þvi kost á aö æfa sig i
meistarakeppninni sem nú
veröur hleypt af stokkunum, og
ættu hugsanlega aö geta komiö
sér upp einhvers konar æfinga-
prógrammi. Og Jón Hjaltason i
Óöali hefur góöa von um aö fá
einn af þeim þremur sem efstir
uröu I heimsmeistarakeppninni
til aö sýna i óöali. En meira um
þaö siöar.
Heiöar sagöi aö Islendingar
ættu tvlmælalaust aö geta staöiö
sig vel I heimsmeistarakeppni i
diskódansi, enda margir góöir
dansarar á Islandi.
Hann sagði aö gaman hafi
verið aö sjá hversu mikil áhrif
Travolta hefur haft á dansinn,
þvi hjá flestum dönsurunum
hefði gætt áhrifa frá honum.
Grease hefur einnig haft sin
áhrif, en þess má geta að Heiöar
byrjar aö kenpa dansa úr þeirri
kvikmynd, nú á næstunni.
En nóg um þaö. Þaö er kom-
inn timi til aö væntanlegir þátt-
takendur fari aö hita sig upp
fyrir dansinn, og þá er bara aö
hringja I 86611, simanúmer
VIsis, og láta skrá sig.
Og ekki má gleyma verðlaun-
unum, sem eru glæsileg. Meöal
annars viku feröir til London,
þar sem bestu diskótekin veröa
heimsótt, plötuúttekt I Fálkan-
um og fleiri góö verölaun.
—EA