Vísir - 24.01.1979, Side 5

Vísir - 24.01.1979, Side 5
5 VlSIR Miövikudagur 24. janúar 1979. „Nafnlausi sönghópurinn": „VILJUM VERA HVETJANDI OG JÁKVÆÐ" — syngja í matar- og kaffi- hléum ó vinnustöðum — Nafnlausi sönghópurinn? Jii, er þaö ekki hópurinn sem spiiaði og söng fyrir okkur i kaffitlman- um um daginn? Nafnlausi sönghópurinn er eil- efu manna hópur, sem hefur æft og útsett lög og texta, og flutt á samkomum og vinnustöðum. Hópurinn hefur vakið athygli, hvar sem hann hefur komið fram, bæði fyrir vandaðan flutning og ekki siður fyrir textana. Skoðanir manna á efni textanna eru mjög skiptar og sýnist sitt hverjum. Vísir fór á æfingu hjá Nafn- lausa sönghópnum og fiskaði upp nokkrar upplýsingar. Kom fyrst fram 1. maí ’78. Hópurinn var stofnaður I april I fyrra. Nokkrir menn innan kórs Alþýöumenningar fengu þá hug- mynd að stofna ballööuhóp, sem kæmi fram sjálfstætt og án tengsla viö kórinn, sem nú er hættur að starfa. Þaö markmiö var sett, aö hópurinn kæmi fyrst fram 1. mai og þaö varö úr. — Hvers vegna þetta nafn? „Þaö komu fram margar uppástungur um nafn á hópinn enn ekkert var nothæft. Viö vor- um þvi' nafnlaus þegar viö kom- um fram fyrst og vorum kynnt sem „Nafnalausi sönghópurinn”, Þetta nafri hefur svo fest viö hóp- inn, enda engin betri tillaga kom- iö”. — Einhver sérstakur tilgang- ur! „Viö viljum flytja fólki fram- sækna tónlist, meö góöum textum og viö vandaöan undirleik. Viö viljum fá fólk til aö hugsa, viljum vera hvetjandr og jákvæð. Textarnir fjalla um samstööu alþýöu manna viö ýmsar aöstæð- ur, gegn auövaldi og heimsvalda- stefnu. Alþýðu-popp. — Tónlistarstefna? „Þaö er engin sérstök tónlistar- stefna rikjandi. Viö spilum allt frá þjóölögum upp i (eöa niöur i) „punk”. Þaö má e.t.v. kalla tón- list okkar alþýöu-popp. Hingaö til höfum viö aöallega flutt erlend lög meö þýddum text- um, en nú tökum viö fyrir fleiri Islensk lög, sum frumsamin, enda eru ágætis laga- og textasmiöir i hópnum. Nú erum viö að æfa upp nýja dagskrá og stefnum að þvi aö koma fram á sem flestum stöö- um, svo sem á félagsfundum i stéttarfélögum, samkomum og árshátiðum. Viö fórum mikiö á vinnustaöi i sumar. Viö lékum gjarnani' mat- ar- og kaffihléum og var skemmtilegt aö fylgjast með viö- brögöum fólks. Viö vorum óþekktur hópur, sem bauöst til aö skemmta starfsfólkinu ókeypis. Enginn vissi, viö hverju mátti bú- ast, þannig aö fyrst I staö rikti mikil þögn, en eftir fyrstu lögin fór fólkiö aö taka viö sér og flest- um var skemmt, aö því er okkur vir tist. Eftir aö hafa flutt okkar dag- skrá röbbuöum viö viö fólkiö, spuröum hvernig þvl heföi likaö, hvaö væri gott og skemmtilegt og hvaö ekki. Þannig höfum viö reynt aö gera fólki til hæfis, þó án þess aö gleyma aö segja þaö, sem okkur býr i brjósti. Viö viljum gjarnan, aö fleiri fylgi okkar fordæmi og segi og leiki þaö, sem þeim býr I brjósti”. Enginn hljómsveitar- stjóri. — Verkaskipting? ,,Viö höfum engan hljómsveit- arstjóra. Við vinnum allt i hóp- vinnuogútetjum á æfingum. Það byrjar stundum á þvi, aðeinhver stingur upp á lagi eöa texta. Sá raulare.t.v. lagið ogsiðanbætum viö inn röddum og hljóöfær- um. Þar sem hópurinn er svona stór, 9-11 manns, þá býöur slfkt starf upp á mikla möguleika, ef tekst aö virkja allar hugmyndirn- ar. En þetta er einnig mjög vandasöm og seinleg aöferö og viö ætlum aö auka verkaskipting- una meira, gera menn ábyrga fyrir viss um þáttum”. — Hvernig er andinn innan hópsins? (Spurningin var reynd- ar óþörf, þvi samkenndin innan hópsins leyndi sér ekki) ,3ann er mjög góöur, alveg sé- lega góöur. Þaö má segja að viö séum eins og ein stór fjölskylda... Nei, annars, ekki segja þaö, fólk myndistraxmisskilja þaö.Þaöer Æfingar „Nafnlausa sönghópsins” fara fram I heimahúsum og þá er oft þröngt um svo stóran hóp. Vlsismynd: ATA Hópurinn hefur fariö á marga vinnustaði og komiö fram i matar- og kaffitimum ókeypis. Hér er hópur- inn i skemmu Eimskipafélagsins. Mynd: Atli Rúnar Halldórsson lika nauösynlegt að andinn sé góöur, þvf viö æfum tvisvar I viku og komum auk þsss fram. Viö stefnum sem fyrrsegir að þvi, aö koma sem mest fram næstu mán- uöi. Þaö er mesta furöa, hvaö þetta hefur gengið vel. Þaö er enginn leikur að hóa saman svo stórum hóp, þviað sjálfsögöuerum viö öll i vinnu eöa i skóla. Þaö er ástæö- an tíl þess, aö viö höfum spilaö minna á vinnustöðum en viö ætl- uöum okkur. Þó höfum við sungiö i báöum skálum Eimskipafélagsins, Bæjarútgerö Hafnarf jaröar, Bæjarútgerö Reykjavikur, á Landspltalanum og fleiri stööum. Einnig fórum viö til Vestmanna- eyja f sumar og skemmtum þar fimm sinnum, m.a. i sambandi við menningardagana „Maöurinn og hafiö”. Tveir trommuleikarar — engar trommur Eitthvaö virtist á reiki me& fjöldann i' hópnum, svo síöasta spurningin átti ekki illa viö. — Hvaö eruö þiö mörg I hópn- um og hvererhljóðfæraskipanin? „Þessa stundina erum viö 11, en sú dýrð stendur ekki lengi. Fanney er aö fara til Vestmanna- eyja og veröur þvi I kauplausu frli. Hvort einhver kemur i staö- inn er óvíst. Annars er mann- skapurinn þessi: Kristján Ingi Einarsson (gitar, bassi, söngur), Eirikur Ellertsson (söngur), Þór- katla Aöalsteinsdóttir (söngur, trommur), Bragi Sigurösson (gít- ar, trommur), Auöur Haralds- dóttir (söngur), Þorvaldur örn Arnason (gltar, bassi, söngur), Sigrún Einarsdóttir (söngur, ásláttur), Fanney Jónsdóttir (Söngur, ásláttur), Margrét örnólfsdóttir (gitar, söngur), Magna Guðmundsdóttir (fiðla, söngur) og Stefán Jóhannsson (gltar). Viö reynum eftir megni aö bæta viö hljóöfærum, eftir þvl sem hljóöfærasjóðurinn braggast. Viö erum t.d. meö tvo trommuleik- ara, en eigum engar trommur. Viö höfum einnig áhuga á aö kaupa mandólin og harmónikku. Þetta kemur allt saman”, voru lokaorö hins samhenta „Nafn- lausa sönghóps”. Ef einhver hefur áhuga á aö ná sambandi viö hópinn, þá er tengill hans og „blaöafulltrúi”, Kristján Ingi Einarsson, f sima 22876. —ATA UNGLINGA DA^SLEIKUR %NÚ c tœkl DIS( í • - -••■ ■ ••■ - • Nú gefst unglingum frá 16 ára aldri tœkifœri til þess aó sjá frábœran DISCO-DANS Ricky Villard f1" skemmtir 2svar í kvöld og gefur ykkur kost á að sjá DISCO-DANS eins og hann gerist bestur í heiminum í dag. aðeins þetta eina skipti Þetta er tækifæri sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. MickieGee sér um fjörió a dansgólfinu og keppir aö heimsmetinu. ójd^ k wmr

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.