Vísir - 08.02.1979, Page 10
10
Fimmtudagur 8. febrúar 1979
Útgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davlð Guðmundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Hörður Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri"
erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón með Heluarblaöi: Arni
Þórarinsson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Jónina
Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson,Oli
Tynes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Þor-
valdur Friðriksson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljós-
myndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Jón Oskar
Hafsteinsson, Magnús Ölafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur:
Siðumúla 8. Slmar 86611 og 82260.
Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611.
Ritstjórn: Siðumúla 14 slmi 86611 7 llnur.
Askrift er kr. 2500 á mánuöi
innanlands. Verð I
lausasölu kr. 125 eintakið.
Prentun Blaöaprent h/f
Nauðsyn víðtœkari
Fríhafnarrannsóknar
„Þetta er tóm della og algjörlega rangt hjá ykkur"
sagði Ólafur Thordersen, fríhafnarstjóri, í viðtali við
Vísi, þegar bornar voru í haust undir hann fréttir blaðs-
ins um meint misferli hjá stofnuninni, þar sem fram
kom grunur um að áfengi og sælgæti hefði verið selt á
hærra verði en verðskrár sögðu til um. Fríhafnarstjór-
inn bætti við „Ég vil eindregið mótmæla því að þetta sé
rétt."
Lögreglurannsókn hefur nú leitt í Ijós, að fréttir Vísis
um þetta mál voru réttar og ekki er nóg með að játningar
allmargra manna liggi fyrir um aukagjaldið heldur er
misferlið staðfest í bókhaldsgögnum Fríhafnarinnar.
Þar kemur f ram að vörur úr Fríhöfninni í f lugvélar Arn-
arflugs hafa verið seldar með aukaálagi en ekki sam-
kvæmt verðskrá.
Það er því orðið Ijóst, að ákveðin áfengistegund var
seld með 25 senta álagi umf ram verðskrá og verð á ýms-
um tegundum sælgætis var hækkað verulega við sölu
umfram skráð verð.
Þeir hefðu betur látið vera að skrif a utanríkisráðherra
bréfið í nóvember, fríhafnarstarfsmennirnir 30, þar
sem þeir sögðu að vörur hefðu ekki samkvæmt þeirra
bestu vitund verið seldar vísvitandi á of háu verði. í þvi
stóð einnig: „væntum vér þess, að rannsóknin hreinsi oss
af þessum áburði og jafnframt, að hinn „trausti" heim-
ildarmaður Vísis komi fram í dagsljósið."
f tilefni þessa bréfs sagði Vísir í forystugrein 10.
nóvember 1978: „Alvörurannsókn á þessu máli og öðru,
sem afvega hefur farið í Fríhöfninni, getur aldrei
hreinsað alla starfsmenn stofnunarinnar, — þótt hinir
saklausu yrðu hreinsaðir af þeim grun, sem nú hefur
fallið á þá."
Það hefur sýnt sig að ekki eru allir saklausir í sam-
bandi við misferlið varðandi aukagjöldin á vínið og sæl-
gætið, en þótt rannsókn lögreglustjóraembættisins á
Kef lavíkurf lugvelli sé lokið, er ekki þar með sagt að öll
kurl séu komin til grafar. Gögn rannsóknarinnar eru nú
komin til ríkissaksóknara og það er hans að taka ákvörð-
un um framhald málsins.
Miðað við takmörk þeirrar rannsóknar, sem þegar
hefur farið fram, virðist óhjákvæmilegt að láta fara
fram framhaldsrannsókn bæði varðandi þau atriði, sem
rannsóknardómarinn á Kef lavíkurf lugvelli einskorðaði
sig við og ýmislegt annað sem athugavert hef ur verið við
starfsemi þessa stóra ríkisfyrirtækis.
Utanríkisráðherra fól lögreglustjóranum á Kefla-
víkurflugvelli rannsókn Fríhafnarmálsins, en eftir að
henni lauk sendi ráðherra gögnin til ríkissaksóknara.
í stað þess að senda málið aftur til yfirvalda á Kefla-
víkurf lugvelli er því liklegtog eðlilegt að ríkissaksóknari
feli Rannsóknarlögreglu ríkisins framhaldsrannsókn
málsins og lögð verði áhersla á að svið rannsóknarinnar
verði víkkað, þvi að Ijóster að um alvarlegt misferli hef-
ur verið að ræða varðandi rekstur og f jármál Fríhaf nar-
innar undanfarin ár.
Meðal þeirra spurninga, sem þarf að fá svör við eru
þessar: „Hverjir báru ábyrgð á því að aukagjald var
lagt ofan á vörur Fríhaf narinnar?" „Hver voru tengslin
milli rýrnunar vörubirgðanna í Fríhöfninni og auka-
álagsins, sem starfsmenn settu á ákveðnar vörutegund-
ir?" og „Hvað varð um það fé sem viðskiptavinir
greiddu óafvitandi umfram það verð, sem þeir áttu að
greiða samkvæmt gjaldskrá fyrirtækisins?"
Siguröur Benediktsson og Þorbjörn Sigurgeirsson viö flugvéiina. Afturhluti véiarinnar vfsar aö okkur
en þar eiga skrúfan og afturvængurinn eftir aö koma.
„Hún verður tilbúin um páskana og fer í loftið
einhvern tfma í aprfl, ef allt fer samkæmt áætlun",
sagði Sigurður Benediktsson, verkfræðingur. Hann
er ásamt Þorbirni Sigurgeirssyni, prófessor, aö
smiða flugvél í húsnæði Svifflugfélags Reykjavík-
ur f Nauthólsvik.
Flugvél þessi er tveggjasæta og
ólik öörum litlum flugvélum I út-
liti. Hún er hönnuö af sænsk-ætt-
uöum Bandarikjamanni, Burt
Rutan, og er kölluö „Vari Eze”
„Rutan kallaöi vélina þessu
nafni, vegna þess aö þaö er auö-
velt aö smiöa hana”, sagöi
Siguröur.
„Sænsku orrustuþoturnar,
Viggen, eru meö litla framvængi
og stóra afturvængi eins og
vélar Rutans, og stærsta vélin,
sem hann hefur hannaö, heitir
„Vari Viggen”.
Þessi vél okkar er mjög lltil,
vænghafiö er 6,60 metrar og
samanlagöur vængflötur fram- og
afturvængja er aöeins 6 fermetr-
ar, sem er helmingi minni en á
litlu Cessnunni og rúmlega þaö.
Hámarkshraöi Cessnunnar er um
180 km á klst. meö 100 hestafla
vél, en hámarkaðshraöi okkar
vélar veröur rúmlega 300 km. á
klst. meö aðeins 85 hestafla vél”.
Aö sögn Siguröar, næst þessi
mikli hraöi m.a. vegna þess,
hversu létt vélin er. Þyngd henn-
ar er aöeins 275 kg og flugþunginn
er 455 kg. Flugþol vélarinnar er
allt aö 6 timum og flugsviöiö er
1400 km.
Enn eitt, sem gerir vél þessa ó-
lika öörum flugvélum er, aö
hreyfillinn er aö aftan.
„Þaö er straumfræöilega betra
að hafa hreyfilinn aö aftan, þvi þá
blæs skrúfan hvergi á flugvélina
og þvi verður mótstaöan minni”,
sagöi Siguröur, en hann er læröur
flugvélaverkfræöingur.
Þarf malbikaða braut.
„Þaö er eini gallinn viö þessa
vél, að hún þarf góöa flugvelli,
helst malbikaöa, Þaö er vegna
þess, hve litil hjólin eru. Svo
lendir hún á afturhjólunum og þar
Siguröur kominn I flugstjórasætiö. Mælarnir eru enn ekki komnir I stjórnboröiö en þess veröur nú ekki
langt að biöa.