Vísir - 08.02.1979, Blaðsíða 23
VÍSIR
Fimmtudagur
8. febrúar 1979
Söfnuðu 34 milljónum
„Getum bœtt okkur
upp minni þorskveiði"
— segir Aðalsteinn Sigurðsson fiskifrœðingur og
bendir ó að skarkolastofninn sé hólfnýttur
,,Við ættum að geta
að nokkru bætt okkur
upp minni þorskveiði
með þvi að auka
skarkolaveiðarnar.
Núna er skarkolastofn-
inn ekki nema hálfnýtt-
ur,” sagði Aðalsteinn
Sigurðsson fiskifræð-
ingur i samtali við Visi.
Hann sagði að ástæðan fyrir
slæmri nýtingu skarkolans væri
tviþætt. Annars vegar væri rót-
gróin andúð á dragnótaveiðum,
sem þó væri byggð á misskiln-
ingi, og hins vegarörðugleikar á
vinnslu sem hæfir góðum
markaði.
„Við getum ekki verið þekkt fyrir aö nota ekki svona stofn fyllilega,” segir Aðalsteinn Sigurðsson.
Vísismynd: JA
Faxaflóa ætti að opna
Samkvæmt lögum er F.axaflói
lokaður fyrir dragnót og botn-
vörpu.
„Ég tel hiklaustaðhleypa eigi
dragnót i Faxaflóann,” sagði
Aðalsteinn. „Þetta er ósköp
meinlaust veiðarfæri þegar það
er rétt notað og það eru fá veið-
arfæri sem vernda eins þorsk-
inn ogdragnótmeð nógu stórum
möskvum.
Þegar ég byr jaði að starfa hjá
Hafrannsóknastofnuninni fyrir
aldarfjórðungi var 90 mm
möskvastærð leyfileg. Siðan
1976 hefur möskvastærðin verið
takmörkuð við 170 mm i pokan-
um og 135 mm i öðrum hlutum
vörpunnar. Nú hefur Fiski-
félagið og Hafrannsóknastofn-
unin mælt með þvi að möskvar
allrar vörpunnar verði 170 mm
og ég geri ráð fyrir að það nái
fram að ganga.
Því hefur veriö haldið fram,
að möskvar dragnótar leggist
saman i drætti, en það á ekki við
rök, að styðjast. Þvert á móti
hefur verið sannað með neðan-
s já var 1 j ósm y ndum að
möskvamir haldast opnir.”
Tilraunir með flök-
unarvélar
Aðalsteinn kvaðst telja, að
erfiðleikar í markaðsöflun fyrir
skarkola, væru fyrst og fremst
vegna þess að hingað til hefur
hann verið fluttur Ut heilfrystur
eða isaður. Það yrði til þess að
fiskurinn væri frystur tvisvar,
þar sem hann seldist helst ekki
öðru visi en flakaður.
Á siðasta hausti var hafin
tilraun með notkun flökunarvél-
ar fyrir skarkola i Keflavik og ef
framhaldverður á þeim tilraun-
um ætti að vera hægt að auka
mjög sölumöguleika á skarkola,
sérstaklega i Bretlandi.
Fiskæti eyðist litið
Gagnrýni á dragnót hefúr
einnig beinst að þvi að hún
eyöileggi botngróöur og þar
með æti fiska. Aðalsteinn sagði
hins vegar að tilraunir heföu
sýnt, að ekki væri ástæða til aö
óttast um botndýrin fyrir drag-
nótinni. Það sýndi lika það
magn botndýra þar sem tog-
veiðar hefður verið stundaðar
áratugum saman, svo sem i
Norðursjó.
Aðrar þjóðir koma til
,,Við getum ekki verið þekkt
fyrir að nota ekki svona stofn
fyllilega,” sagði Aðalsteinn.
„Auk þess megum við búast við
þvi að fá ekki að sitja einir um
hálfnýtta stofna. Ef gengið
veröur frá hafréttarsáttmála
með ákvæði um rétt strand-
þjóða til að nýta sin mið, þá
verður þeim sennilega gert
skylt að leyfa öðrum þjóðum að
nýta illa nytta stofna.
Eg held að Islendingum þætti
ekki gott að fá til dæmis Breta
upp að ströndinni til að nýta
skarkolann, sem þeim þótti sár-
ast að sleppa þegar við færðum
landhelgina út. Það er lika hætt
við að aðrar fisktegundir fylgi
eitthvað með.”
—SJ
Þessi neöansjávarmynd, sem Jóhannes Briem tók, sýnir stærö
möskvanna og hvernig þeir haldast opnir i drætti.
í landssöfnun
Hjálparstofnunar
kirkjunnar hafa nú
safnast alls 34,3
milljónir króna og er þó
ekki allt komið inn,
sem lofað hefur verið.
Þessu fé verður variö til að-
stoðar við það fólk, sem mest
liður af matarskorti i þróunar-
löndunum. Einkum verður lögð
áhersla á að halda áfram þvl
starfi sem hafið var á siðasta
ári f Súdan. 1 þvi sambandi er i
athugun hvort hagkvæmt sé að
kaupa afurðir hér á landi.
Söfnuninni er ekki lokið og er
tekið viö framlögum til hjálpar-
starfsins áfram á giróreikning
stofnunarinnar númer 20005.
—SJ
....................i3
Hérumbil
Sigga var aö sækja um
vinnu og lagöi skjöl sin fyrir
vinnuveitandann.
,,Ég sé aö þú ert fædd utan
hjónbands”.
,,Já, aö vissu marki”,
svaraöi Sigga, „pabbi var
giftur en mamma ekki”.
Ólafur
1 Andstaðan
• Þaö vakti nokkra athygli i
sjón varpsþættinum um
skattamálin á þriöjudags-
kvöld, að Sighvatur Björg-
§ vinsson virtist eiga litið
O óuppgert viö Matthias A.
© Mathiesen, fyrrverandi
© fjármálaráöherra.
® Hann beindi máli sinu nær
® eingöngu til ólafs Ragnars
^ Grimssonar, og horföi fast á
^ hann meðan hann geröi grein
^ fyrir þvi aö Alþýöuflokkur-
0 inn væri mjög óánægöur meö
0 stefnuna i efnahagsmáium.
Kvaö svo rammt aö
® þessu að undir lokin gat
• stjórnandinn ekki oröa bund-
X ist og sagði eitthvaö á þá leiö
2 að, „Þú horfir bara alltaf á
Jólaf”.
0 Þetta er dálitiö einkenn-
• andi fyrir pólitikina þessa
• dagana, stjórnarflokkarnir
®deila miklu grimmilegar
®innbyrðis en viö stjórnar-
®andstöðuna.
a Þetta er auövitað nokkuð
^dapurleg einkunn fyrir
• stjórnina. En kannske enn
ttdapurlegri fyrir Sjálfstæðis-
©fiokkinn. Það hlýtur aö vera
®ömurlegt aö vera svo
máttvana I andstööunni að
andstæaingarnir nenna ekki
að rifast viö hann.
Til
Reykvíkinga
„Veistu hvernig á aö
bjarga Reykvlkingi frá
drukknun?”
„Nei ”
Gott.”
Listamanna-
laun
Þaö hefur alltaf veriö rifist
dálitiö eftir aö úthlutunar-
nefnd listamannalauna hefur
skilaö frá sér. Siöasta úthlut-
un er þar engin undantekn-
ing.
Nú hefur hinsvegar oröiö
nokkur breyting á. Hingaötii
hafa menn oröiö óskaplega
vondir ef þeir fengu ekki
neitt. Nú rísa menn upp hver
af öörum til aö skila aftur
laununum.
Kannski er þaö vegna
gagnrýninnar, en svo viröist
sem nefndinhafi hrúgaö öll-
um sem henni gátu
mögulega dottiö I hug, i lista-
mannalaunaflokk.
Arangurinn, eöa kannski.
öllu heldur afleiöingin er sú
aö þaö kemur svo litiö i hlut
hvers aö mönnum finnst
varla ómaksins vert aö taka
viö. . —ÓT