Vísir - 09.04.1979, Side 11
vism Mánudagur 9. april 1979.
cinrrvirt*
11
Júgúslavneskur nálastungulæknir (heimsðkn:
MEGRUN MED
NÁLASTUNGUM
- Nýlum strauma líkamans, seglr
dr. Medved irá Portoroz
„Þessu er beitt aöallega við
ýmsum þeim kvillum sem
evrópskir læknar geta litið átt við
með hefðbundnum aðferðum, svo
sem ofnæmi, exem og psoriasis,
migreni, þrálátum verk.ium
oþh. Þá höfum við hjálpað fólki
að megra sig,þvl með náíunum er
einnig hægt að minnka matar-
lyst”, sagði dr. Medved,
júgóslavneskur nálarstungulækn-
ir sem dvelst hér á landi um þess-
ar mundir.
Dr. Medved sagði að
nálarstunguaðferðin nýtti ýmsa
strauma sem likaminn hefði
sjálfur yfir að ráða. Væri unnt
með nálunum að lina mjög þján-
ingar, bak- og höfuðverki sem
læknar á Vesturlöndum hefðu
hingað til aðeins getað gefið
verkjatöflur við.oft með mistjöfn
un árangri. Notaðar eru þrenns
konar nálar, úr gulli, silfri og
stáli. Stálnálarnar eru notað við
þær lækningar sem lúta beint að
likamanum en hinar fremur við
það sem að höfðinu snýr, höfuð-
verkjum, migreni og svo við
megrunaraðgerðir.
Það er ferðaskrifstofan Sam-
vinnuferðir-Landsýn sem fengið
hefur dr. Medved hingað til lands,
en ferðaskrifstofan hefur skipu-
lagtferðir Islendinga á heilsuhæli
i Portoroz sem hann veitir for-
stöðu. Þar stundar hann bæði
hefðbundnar lækningar og nálar-
stungur og tók læknirinn sem
dæmi um aðferðir sinar að við
psoriasis væru framkvæmdar 10
nálarstungurþrisvarsinnum með
nokkrum hléum á milli.
Eysteinn Helgason, fram-
kvæmdarstjóri Samvinnuferða-
Landsýn, sagði að margir Islend-
ingar hefðu hlotið góðan bata hjá
dr. Medved i Júgóslaviu og þvi
hefði hann verið fenginn til lands-
ins til kynningar. Hann verður til
viðtals á skrifstofu Samvinnu-
ferða-Landsýnar næstu daga.
Dr. Medved heldur hér sýnikennslu í nálarstungum fyrir blaöamenn
Visis. „Fórnarlambiö” heitir Eyja Þ. Einarsdóttir.
Fullkominn
kiöabunaöur
fyrir alla fjölskylduna
Þegar hönnun og framleiðsla skíða er annars vegar
standa fáir - ef nokkrir - Austurríkismönnum á
sporði. Nú býður Sportval ótrúlegt úrval hinna
heimsfrægu skíða þeirra - og allir finna skíði við sitt
hæfi.
Fjölskyldur, byrjendur, áhugamenn, keppendur, -
lelðin liggur í Sportval.
Sportval
I Vió Hlemmlorq-simar V
Hlemmtorg-simar 14390 & 26690
SALOMON 727
Frönsk tækni, byggð á áratuga reynslu, nýtur sín til
fulls í Salomon öryggisbindingunum, - „öruggustu
öryggisbindingunum"
Caber. Allir eru sammála um fegurð og gæði (tölsku
Caber skónna. Þægilegir en traustir - sannkölluð
meistarahönnun og framl.eiðslfl.
Einn keppendanna á fullri ferö. Vfsismynd ÞG
Bræðurnir Jón
og ómar unnu
I Bifreiðaiþróttaklúbbur
Reykjavikur stóð fyrir 370 km
löngu ralli á laugardaginn. t
keppnina voru skráðir 27 bflar
og voru strangar öryggiskröfur
gerðar til útbúnaðar þeirra,
þess m.a. krafist að inni i þeim
væri komið fyrir sérstöku velti-
búri.
Ekið var um Reykjanes,
Krisuvik, Grimsnes, Selfoss, i
gegnum Stokkseyri og tii baka
til Reykjavikur. Fimm eða sex
bflar heltust úr lestinni, ýmist
vegna bilunar, skemmda eða
útafkeyrslu.
1 fyrsta sæti urðu ómar og
Jón Ragnarsáynir.
—ss—
Þessi komst ekki alla leiö. VIsismynd:GVA.