Vísir - 30.05.1979, Side 11
n
VÍSIR
Miövikudaeur 30. mai 1979
Svona losar maCur skóreimar og hver segir aö skórgetiekki veriö kafbátur? Imyndunarafliö er óbeislaö á þessum bæ
• „BORÐA DRULLUKOK-
! UR í ÞYKJUSTUHHI”
- sumar
krakkanna
komið
,,Ég kann ekkert aö elda nema
drullukökur” Tinna Trausta-
dóttir 5 ára.
Traustadóttir 5 ára. Hver er
Steinunn? „Steinunn er fulloröin
og er núna aö læra á bil,mamma
min er flfnk að keyra bil”.
„Besti maturinn finnst mér
HANDBORGARAR en
égkannekkert aö eldasjálf nema
drullukökur. Ég veit að þær eru
góöar af þvi aö ég boröa þær i
þykjustunni”.
,,Þær skamma okkur stundum i
drekkutimanum” Brynjólfur
isaksson 6 ára.
Skotin i Hólmari,
Misjafn mælikvarði er einatt
lagöur á þaö hvort sumariö sé
komiö. BHeigandinn notar stund-
um nagladekkin til viömiöunar,
garöeigandinn gróöurfariö og a 11-
flestir eru hailir undir lóukenn-
inguna. Börnin hafa hins vegar
sinn sérstaka mælikvarða. Hjá
þeim er sumarið komiö þegar
hægt er aö fara át ,,á peysunni”.
Og vitaskuld er viömiöun barn-
anna ætiö nákvæmust. Þannig
gripum viö nokkur börn léttfætt
og tindrandi I peysuveörinu I gær.
Þau höföu auövitaö sitt til mál-
anna aö leggja en athafnir ein-
kenna þau þó fremur en orö, enda
var blaðamaðurinn oröinn skó-
laus aö loknum viötölum. Tveir
drengir undu sér þá vel I hinu
horni svæðisins. Skórnir þjónuöu
nú mikilvægu hlutverki kafbáta i
leik þeirra.
Binna...
„Éger skotin iHólmari.Binna,
Atla, Hróa og Einari. Þaö er bara
„Handborgarar”
„Ég ætla aö veröa hjúkrunar-
kona af þvi aö ég ætla aö vinna
meö Steinunni”, sagöi Tinna
„Strákarnir eru svo skemmti-
legir, þeir eru alltaf aö strlöa
mér” Harpa Marla Hreinsdóttir
5 ára.
af þvi aö þeir eru svo skemmti-
legir og eru alltaf aö striöa mér
en mér finnst Binni sætastur”,
sagöi Harpa Maria Hreinsdóttir,
5 ára.
„Mér finnst fiskur ekki góöur
hérna og þær hafa hann mörg
þúsund sinnum á viku. Fiskurinn
heima er miklu betri þvi amma
lætur smjör á hann og stappar
hann þá veröur hann svo góöur”.
„Sólin verður til hjá
guði”
„Ég kann bara aö skrifa Binni
en heiti samt allt þetta”, og svo
sagöi hann aö pabbi sinn ynni i
banka og léti fólk stundum fá pen-
inga en „mest tekur hann peninga
af fólki þegar hann er aö rukka”,
sagöi Brynjólfur Isaksson 6 ára.
„En sólin veröur til hjá guöi”,
sagöi Binni þegar viö spuröum
hann hvort þaö væru konurnar
sem pössuöu hann sem byggju til
sólina. „Þær eru stundum aö
skamma okkur i drekkutimanum
ef viö erum óþekk en ég er aldrei
óþekkur” Og nú vildi hann láta
flugvél fljúga yfir og dreifa pipar
yfir mannfólkiö til aö krydda til-
veruria en félögum hans haföi nú
lánastaöfylla vasa blm. af sandi.
„Lögregla”
„Maöur byrjar aö veröa kall 27
ára en fyrst veröur maöur stór 23
ára eins og mamma. Hún er búin
aö vera 23ára lengi,kannski i' ár”,
sagöi Ingólfur Gunnarsson 4 ára.
„Ég ætla aö veröa LÖGREGLA
og taka menn og setja þá i fang-
elsi og setja þá I baö þar”.
Hvaö langar þig mest til aö
eiga? (Og ekki stóö á svarinu)
„Mig langar mest til aö eiga bara
konu.helst Gunnu af þvi hún er
svo skemmtileg. Jú, mamma
hennar leyfir þaö vist”.
—ÓM.
,,Mig langar helst til aö eiga
konu” Ingólfur Gunnarsson 4
ára.
■ I
16.-19. ágúst 1979
Ventanlegir þátttakendur athugið:
Fyrri frestur til að skila þátttökuum-
sóknum er miðvikudaginn 27. júní nk.
og sá síðari er miðvikudaginn 11. júlí nk.
Keppnisreglur eru fáanlegar á skrifstofu
Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur,
Hafnarstrœti 18.
Skrifstofan er opin öll miðvikudagskvöld
frá kl. 20-22, sími 12504