Alþýðublaðið - 30.11.1989, Page 1

Alþýðublaðið - 30.11.1989, Page 1
Sjálfstœdimenn höföu forystu um vantrauststillögu: Hættulegur og segir Jón Baldvin Hannibalsson um málflutning Sjálfstœöisflokksins og spyr um umboö Porsteins Pálssonar til aö draga þann flokk niöur í svaöiö. óábyrgur leikur Bjarni Benediktsson og Olafur Thors myndu snúa sér við i gröfinni, sagði Jón Baldvin Hannibalsson i vantraustsum- ræðunum í gærkvöldi og átti þá við málflutning formanns Sjálfstæðisflokksins. A-mynd/E.ÓI. „Sjálfstæðisflokkur- inn er að leika hættuleg- an og óábyrgan leik sem skaðar hagsmuni ís- lands á sama tíma og við tökumst á við eitt ábyrgðarmesta hlutverk sem Islendingar hafa tekist á herðar í þýðing- armiklum milliríkjamál- um, ekki aðeins til að gæta okkar hagsmuna heldur og allra EFTA-ríkjanna. Nú velur Sjálfstæðisflokkurinn þennan tíma til að snúa við blaðinu í stað þess að leita eftir samstöðu lýð- ræðisflokkanna eins og hann gerði hér áður í þýðingarmikium al- þjóðamálum“, sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra ■ sam- tali við Alþýðublaðið í gær. Jón segir ennfremur að í Ijósi þess að Sjálfstæðis- menn hafi hingað til verið sammála þeirri stefnu sem hann hefur fylgt í EFTA-EB viðræðunum, þá sé þetta upphlaup óskiljanlegt. Jón ítrekaði þessi ummæli sín i umræöum um vantrausts- stillögu Sjálfstæðisflokks, Kvennalista og Frjálslyndra hægrimanna í gær. Jón segir að sú ákvörðun Sjálfstæðisflokksins að velja þennan tíma til að flytja vantraustið, þegar verið er að ræða Evrópu- málefnin, sé skilið á þann veg í Brússel að stjórnarand- staðan á Islandi geri djúp- stæðan ágreining við þá stefnu sem utanríkisráð- herra hefur mótað fyrir hönd íslands og sem for- maður ráðherraráös EFTA í þeim könnunarviðræðum sem fram hafa farið milli EFTA og EB á þessu ári. „Þetta vekur spurningar um það hvort formaður ráðherraráðs EFTA verði ekki utanríkisráðherra eftir kvöldið í kvöld og hvort engin pólitísk samstaða sé á Islandi um málið" sagði Jón. „Sjálfstæðisflokkurinn hóf þetta upphlaup með því að vefengja rétt utanríkis- ráðherra til að taka áfram þátt í þessum viðræðum fyrir hönd íslands og sem formaður EFTA, nema fyrir lægi þingsályktunartillaga samþykkt af Alþingi. Sam- kvæmt stjórnarskrá hefur utanríkisráðherra svokall- að stöðuvald til að gera milliríkjasamninga fyrir ís- lands hönd án þess að leggja efni þeirra eða inni- hald fyrirfram fyrir Al- þingi. Ef hér er um að ræða mikilvæg mál sem varða stjórnskipan eða afsal landsréttinda þá er ótvírætt að enginn slíkur samningur hefur gildi, bindur hvorki þing né þjóð, fyrr en hann hefur verið lagður fyrir Al- þingi. Það er vegna þess að þegar gengið er til samn- inga við erlenda aðila um mikilvæga þjóðarhags- muni getur það verið óæskilegt og beinlínis hættulegt að gera það allt að opinni bók fyrirfram. Ut- anríkisráðherrar Sjálfstæð- isflokksins, eins og t.d. Bjarni heitinn Benedikts- son og Geir Hallgrímsson hafa alla tíð gætt þessarar grundvallarreglu. Enda væri annars verið að gefa mjög hættulegt fordæmi, enginn veit hverskonar samsteypustjórnir hér verða myndaðar síðar. Sjálfstæðismenn spyrja um umboð. Ég spyr um um- boð formanns Sjálfstæðis- flokksins til að draga Sjálf- stæðisflokkinn niður í svað- ið“ sagði Jón. Boðskapur Þorsteins Pálssonar í umræðunum í gær var að ríkisstjórnin hefði ekki komið sér saman um marktæka stefnu í Evr- ópumálunum og að utan- ríkisráðherra færi í þær viðræður umboðslaus. Ut- anríkisráðherra hefði mis- tekist að ná breiðri sam- stöðu um málið og reyndi í vandræðum ríkisstjórnar- innar að koma ábyrgðinni yfir á stjórnarandstöðuna. Atkvæðagreiðsla um van- traustið hafði ekki farið fram þegar Alþýðublaðið fór í prentun í nótt. Taugatitringur í Briissel: Einar Ben baðst afsökunar Einar Benediktsson sendiherra í Briissel neyddist til þess í gær að biðja afsökunar á fjarveru formanns ráð- herraráðs EFTA á fundi í Evrópuþinginu þar sem utan- ríkisráðherra átti að sitja fund með þingmönnum EFTA og utanríkismálanefnd Evrópuráðsins í Brússel. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra átti að sitja þann fund sem formaður ráðherraráðs EFTA og tala máli sam- takanna í viðræðum við Andriessen, varaformann Evrópu- bandalagsins, en várð að fresta för sinni vegna vantrauststil- lögu stjórnarandstöðunnar. Sögusagnir bárust út um að stjórn- in væri fallin og það vegna Evrópumálefnanna og kom fregn sú verulegu róti á viðræðumenn. Sendiherrann þurfti að full- vissa fundarmenn um óbreytta afstöðu íslendinga til áfram- haldandi viðræðna. Thatcher í kröppum dansi Einar Guðjónsson hefur tekið að sér að skrifa fréttir og fréttapistla frá Lundúnum fyrir Alþýðublaðið. í fyrsta pistli sínum sem birtist í blaðinu í dag, gerir Einar grein fyrir hrapandi stjörnu Margrétar Thatchers forsætis- ráðherra Bretlands. Thatcher á nú við mikla erfiðleika að etja, bæði við stjórn landsins og innan eigin raða. í upphafi næstu viku verður for- maður íhaldsflokksins kosinn og hefur óþekktur þingmaður boðið sig fram gegn Thatcher. Þótt þingmaðurinn eigi ekki mikla möguleika gegn járnfrúnni getur þó farið svo að mót- framboðið opni veginn fyrir Haseltine fyrrum varnarmálaráð- herra Bretlands að formannsstól íhaldsflokksins breska. Sjá bls. 5 Fullt samkomulag um uirdisaukaskattinn: Ein ÞREP OG 24,5% Ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi um virðis- aukaskattinn. Aðalatriði þess eru að skatturinn tek- ur gildi um áramótin eins og stefnt var að, hann verður í einu þrepi og það 24,5% en ekki 26%. End- urgreiðsla verður á þær matvörur sem um hefur verið rætt, en skattígildið verður 14% í stað 13%. Á næsta ári verður athugað- ur möguleikinn á tveimur þrepum og öðrum útfærsl- um. Lækkun skatthlutfallsins hefur í för með sér 1.900 milljón króna tekjutap fyrir ríkissjóð. Þessu tekjutapi á að mæta með hækkun tekju- skattshlutfallsins um 2 pró- sentustig og á það að auka tekjurnar um nálægt 2.800 milljónir króna. Helmingi þess tekjuauka á hins vegar að verja til að hækka per- sónuafslátt og barnabætur og við það hækka skattleysis- mörk úr áætluðum 51.455 krónum á mánuði í 52.466 krónur, en samkvæmt minn- isblaði hagdeildar fjármála- ráðuneytisins er gert ráð fyrir því að persónuafsláttur og barnabætur hækki um 7,5% um áramótin en ekki um 3,5% eins og fjárlagafrum- varp gerði ráð fyrir. Samtals felur þetta í sér um 1.400 króna tekjuauka fyrir ríkis- sjóð. Niðurstaðan ætti að vera að skattbyrði lágtekjufólks og barnafjölskyldna verði svip- uð á fyrri helmingi næsta árs og hún er í dag, jafnvel ívið lægri. í heild þyngist skatt- byrðin þó og mest hjá há- tekjufólki. því gati sem enn stendur eftir á að mæta með sérstök- um tekjuskatti á orkufyrir- tæki upp á 200—300 milljónir króna og sérstökum „meng- unarskatti" á bifreiðar upp á 300—400 milljónir króna. Orkuskatturinn mun sam- kvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins einkum ná til hita- veitna Reykjavíkur og Suður- nesja. Mengunarskatturinn kemur þannig út að hann ;verður 3—3,50 krónur á kíló eða um 3.000 krónur á „vísi- tölubílinn". Þrátt fyrir að virðisauka- skatturinn eigi að lækka úr 26% í 24,5% verður ekki hróflað við þeim undanþág- um sem samkomulag hafði náðst um. Á ríflega tveggja klukkustunda ríkisstjórnar- fundi er hófst um hádegið í gær lagði forsætisráðherra fram þá tillögu sem nú hefur hlotið samþykki. Hagdeild fjármálaráðuneytisins reikn- ar með að 24,5% virðisauka- skattur með áðurnefndum endurgreiðslum muni hafa í för með sér 0,5% lækkun á framfærslukostnaði, 2% lækkun á matvælum alls og um 8,5% lækkun á mjólk og kjöti. í gær lá fyrir samþykki stjórnarflokkanna fyrir þess- ari útfærslu. Áfram á að kanna áhrif þess að taka upp tveggja þrepa kerfi á næsta ári, hvort slíkt geti leitt til meiri lækkunar á matvælum, enda sé innheimta skattsins tryggð og tekjutap bætt. Á þingflokksfundi Alþýðu- flokksins var gerð sérstök samþykkt um samkomulag þetta og birtist það á bls. 3.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.