Morgunblaðið - 25.02.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.02.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN18/2–24/2  RAFIÐNAÐARSAM- BAND Íslands hefur sam- ið við Launanefnd sveit- arfélaga fyrir hönd átta rafvirkja hjá Norðurorku á Akureyri, sem aflýstu boðuðu verkfalli. Samn- ingurinn verður kynntur fyrir rafvirkjunum eftir helgi.  SJÁVARÚTVEGS- RÁÐUNEYTIÐ hefur staðfest þá tillögu Haf- rannsóknastofnunar að heildarloðnukvóti yf- irstandandi vertíðar verði 900 þúsund lestir og þar af fái Íslendingar ríflega 818 þúsund lestir.  KÖNNUN ráðgjaf- arfyrirtækis leiðir í ljós hagkvæmni sameiningar RARIK og Veitustofnana Akureyrarbæjar og hefur ríkisstjórnin boðið Ak- ureyrarbæ til viðræðna um sameiningu, með flutning höfuðstöðva RARIK frá Reykjavík til Akureyrar í huga. Flestir starfsmanna RARIK eru andvígir flutningnum.  MIKILL meirihluti lækna og almennings er hlynntur uppbyggingu miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði, sam- kvæmt könnun Gallup fyrir Íslenska erfðagrein- ingu.  RÍKISENDURSKOÐUN hefur lagt til í skýrslu sinni um Landhelgisgæsl- una að bjóða megi út flugrekstur stofnunar- innar, taka upp stefnu- mótun og fela samgöngu- ráðuneytinu málefni hennar í stað dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Hótel Búðir brann til kaldra kola EKKI er enn vitað um eldsupptök eft- ir að Hótel Búðir á Snæfellsnesi brann til kaldra kola á skammri stundu sl. miðvikudag. Enginn var í húsinu þeg- ar eldurinn kom upp og hótelið hafði ekki verið í rekstri síðan haustið 1999. Á Búðum var starfrækt hótel með 25 herbergjum og voru áform um að end- urbæta það fyrir sumarið. Elsti hluti hótelsins var frá árinu 1836 og frá árinu 1947 var nokkrum sinnum byggt við það, að stærstum hluta árið 1986. Samið við flug- umferðarstjóra FLUGUMFERÐARSTJÓRAR hafa gert skammtímasamning við ríkið og á þeim tíma á að vinna að varanlegri lausn í kjaradeilum þeirra. Eftir að verkfall flugumferðarstjóra hafði stað- ið í 16 klukkustundir á þriðjudag var komist að samkomulagi. Fyrir verkfall slitnaði upp úr samningaviðræðum þar sem ríkið gerði kröfu um að flugum- ferðarstjórar afsöluðu sér verkfalls- rétti, en ríkissáttasemjari náði deilu- aðilum saman á ný. Deilt um tungumál á flutningi íslenska lagsins í Eurovision LAGIÐ Birta eftir Einar Bárðarson hefur verið valið framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva í Kaupmannahöfn í maí. Deilt hefur verið um á hvaða tungumáli lag- ið verður flutt en Mörður Árnason, fulltrúi í útvarpsráði, sem vildi að lagið yrði sungið á íslensku og fékk það samþykkt í útvarpsráði, ætlar að leggja til við útvarpsráð að það breyti afstöðu sinni og flytjendur Birtu fái að ráða sjálfir á hvaða máli lagið verður flutt. Vilji lagahöfundar og fleiri stend- ur til þess að lagið verði flutt á ensku. INNLENT RÚSSAR hafa lagt fram tillögur um samevrópskt eldflaugavarnakerfi og hvetja Evrópuríkin til að gaumgæfa það vandlega. Ræddi Vladímír Pútín, forseti Rússlands, tillögurnar við George Robertson, framkvæmdastjóra NATO, í Moskvu sl. þriðjudag en þá ítrekaði hann einnig að Rússar litu á stækkun NATO sem ógnun. Tillaga Rússa er í hnotskurn sú að um verði að ræða færanlegar eldflaugar sem hafðar verði þar sem hættan er talin mest. Þótt tillögu Rússa sé í raun ekki tekið mjög alvarlega hefur henni samt verið fagnað sem eins konar viðurkenningu þeirra á því að ástæða sé til að vera á varðbergi fyrir hugsanlegri eldflaugaárás á Evr- ópuríki. Pútín þakkaði Robertson fyrir að hafa unnið að bættum samskiptum NATO og Rússa eftir loftárásirnar á Júgóslavíu en varaði hins vegar við til- hneigingu sumra vestrænna ríkja til að draga upp of dökka mynd af Rússlandi. Írakar hafa í hótunum ÍRAKAR hafa hótað hernaðaraðgerð- um gegn Kúveit og Sádi-Arabíu hættu þau ekki að sjá Bandaríkjamönnum og Bretum fyrir flugvöllum sem notaðir eru til árása á Írak. Eru það meðal ann- ars viðbrögð þeirra við árásum breskra og bandarískra þotna á ratsjár- og loft- varnastöðvar í Írak fyrir rúmri viku en þær voru endurteknar í minna mæli á fimmtudag. Mikill ágreiningur er um árásirnar innan NATO og hafa til dæm- is Frakkar og Spánverjar gagnrýnt þær auk nokkurra arabaríkja. Banda- ríkjamenn viðurkenna að núverandi refsiaðgerðir gegn Írak hafa ekki haft nein áhrif í þá átt að koma Saddam Hussein Íraksforseta frá og segjast vera að hugleiða að breyta þeim þannig að þær taki fyrst og fremst til vopna- sölu til landsins. Rússnesk tillaga um eldflaugavarnir  MIKIÐ öngþveiti er í tyrkneskum efnahags- málum en á fimmtudag féll gengi gjaldmiðilsins, lír- unnar, um tæp 30%. Hún rétti þó verulega úr kútn- um á föstudag. Er fjár- málakreppan í Tyrklandi rakin til stjórnmálalegrar óvissu í landinu en vegna hennar hafa erlendir fjár- festar lagt á flótta og mik- ill fjármagnsflótti hefur verið úr landi. Komust vextir í 5.000% um stund en voru í 1.200% á föstu- dag  MIKILL viðbúnaður er í Bretlandi vegna gin- og klaufaveikinnar, sem þar er komin upp, en hún hef- ur fundist á þremur stöð- um. Er reynt að einangra sýktu svæðin en helst er hallast að því að sóttin hafi borist til landsins með inn- fluttu kjötmeti. Er þetta gífurlegt áfall fyrir bresk- an landbúnað en segja má að allur útflutningur land- búnaðarafurða frá Bret- landi hafi verið bannaður. Allur flutningur búfjár innanlands hefur verið bannaður í viku.  EINN af starfsmönnum bandarísku alríkislögregl- unnar, FBI, hefur verið ákærður fyrir að njósna fyrir Rússa um langt skeið. Er hann talinn hafa valdið landi sínu miklum skaða og meðal annars komið upp um KGB-menn sem voru á mála hjá Banda- ríkjamönnum. Á hann yfir höfði sér dauðadóm verði hann fundinn sekur. ERLENT SÓLVEIG Þorvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Almannavarna ríkis- ins, segist hafa fengið staðfestingu á því að þjálfun íslenskra björgunar- sveitamanna sé í takt við þær að- stæður sem þeir kunna að mæta þegar náttúruhamfarir dynja yfir. Sólveig er nýkomin heim eftir tæp- lega mánaðardvöl í Gujarat-héraði á Indlandi en þar starfaði hún í svokölluðu UNDAC-teymi (United Nations Disaster Assessment and Co-ordination Team) á vegum Sam- einuðu þjóðanna við mat og samhæf- ingu aðgerða björgunarsveita í kjöl- far stóra jarðskjálftans sem dundi þar yfir 26. janúar síðastliðinn. Á blaðamannafundi í gær, sem efnt var til vegna heimkomu Sól- veigar, sagði hún að gríðarleg vinna hafi verið fólgin í samhæfingu þess erlenda björgunarsveitarliðs sem starfaði á skjálftasvæðunum því tryggja þurfti að einn staður fengi ekki margfalda aðstoð á meðan aðrir fengju enga. Íslenska reynslan sannaði sig Að sögn Sólveigar fengu einstak- lingar innan UNDAC-teymisins verkefni eftir styrkleika þeirra. „Ég fékk það verkefni að vera í tengslum við björgunarsveitirnar þar sem ég hef mikla reynslu af slíku starfi,“ segir hún og bætir við að þar hafi ís- lenska björgunarsveitareynslan sannað sig. Hún segir aðstæðurnar í Bhuj, sem er sú borg sem fór einna verst út úr skjálftanum, hafa verið mjög erfiðar. „Það var ekkert raf- magn, ekkert vatn, engar búðir – ekki neitt. Því þurftum við að koma með allt með okkur.“ Ró komin á skjálftasvæðin Gífurlegt eignatjón varð í skjálft- anum og hrundu jafnvel nýjustu byggingar til grunna enda mældist skjálftinn 7,7 á Richters-kvarðanum og varði í tvær mínútur. Til sam- anburðar má nefna að skjálftinn sem skók Suðurland á þjóðhátíðar- daginn reyndist vera 6,6 á Richter og stóð yfir í um það bil 15 sek- úndur. Hún lýsir hins vegar ástandinu í dag sem rólegu. Nægur matur og læknisþjónusta sé fyrir hendi og þegar UNDAC-teymið hafi yfirgefið svæðið hafi tjöld verið að berast. Ákveðið skipulag sé komið á og nú einbeiti fólk sér að uppbyggingunni. Til dæmis þurfi fólkið að taka af- stöðu til þess hvort það vilji búa á sama stað eða flytja eitthvert annað. Framkvæmdastjóri Almannavarna eftir reynslu af björgunarstörfum á Indlandi Þjálfun íslenskra björg- unarmanna á réttri leið Morgunblaðið/Golli Frá blaðamannafundinum í gær. Frá vinstri: Sólveig Þorvaldsdóttir og Jón Gunnarsson, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. TÓMAS Zoëga, formaður stjórnar siðfræðiráðs Læknafélags Íslands, segir að Íslensk erfðagreining mis- túlki hvað felist í skilmálum alþjóða- samtaka lækna hvað varði gagna- grunna á heilbrigðissviði og því sé það í raun engin frétt að átta af hverjum tíu læknum styðji byggingu slíks grunns sé farið að öllum skil- málum alþjóðasamtaka lækna og vís- indasamfélagsins. Tómas segist hafa verið fyrir hönd Læknafélagsins á einum fjórum fundum Alþjóðasamtaka lækna þar sem mál varðandi gagnagrunna hafi verið fyrirferðarmikil. Í skoðana- könnun Gallups fyrir Íslenska erfða- greiningu komi fram að rúmlega 80% lækna séu fylgjandi uppbygg- ingu miðlægs gagnagrunns á heil- brigðissviði ef farið sé eftir öllum skilmálum alþjóðasamtaka lækna og vísindasamfélagsins. Afstaða al- þjóðasamtakanna að þessu leyti sé alveg ljós og í þeim efnum sé ástæða til að vísa til orða formanns og fram- kvæmdastjóra alþjóðasamtakanna dr. Miltons og dr. Human er þeir hafi komið hingað til lands í októbermán- uði árið 1999. Í umræðum hafi þeir ítrekað að stefna WMA sé sú að virða beri reglur um upplýst sam- þykki, trúnað við sjúklinga og sjálf- stætt siðfræðilegt mat. Það ráði úr- slitum til verndar sjúklingum vegna þátttöku í hvers konar vísindarann- sóknum um allan heim. Tómas segir að á svipuðum tíma hafi farið í gang vinna innan Alþjóða- samtaka lækna sem miði að setningu almennra reglna um gagnagrunna á heilbrigðissviði. Nú liggi fyrir drög, sem hafi verið í vinnslu allt síðasta ár og verði að líkindum samþykkt í lok þessa árs á ársfundi á Indlandi. For- ystumenn Íslenskrar erfðagreining- ar tali um að í þessum drögum komi fram stuðningur við gagnagrunninn eins og hann sé hugsaður hér, en það sé alls ekki rétt. Í drögunum komi hvergi fram þetta hugtak sem þeir kalli ætlað samþykki. „Þetta er auðvitað íslenskum læknum vel ljóst. Það sem Íslensk erfðagreining gerir er að þeir snúa út úr og mistúlka eina setningu í drögunum,“ segir Tómas. Hann segir að sú setning snúi að undanþágu á fullum trúnaði læknis og sjúklings, en þær undanþágur séu mjög þröngar og snúi í fyrsta lagi að upplýsingaskyldu lækna ef börn eru misnotuð, í öðru lagi ef þjóðaröryggi eða öryggi einstaklinga sé stefnt í hættu og í þriðja lagi ef almannaheill krefst þess í mjög afmörkuðum til- fellum, t.d. vegna smitsjúkdóma. Það sé því alls ekki rétt að í þessum drög- um sé að finna einhverjar heimildir fyrir gagnagrunn eins og hér um ræðir. „Það er alls ekki traustvekjandi þegar fyrirtæki snýr út úr vinnu- plöggum alþjóðasamtaka. Það er mjög ótraustvekjandi og málinu síst af öllu til framdráttar. Það sem er kannski athyglisverðast í þessu er að forystumenn Íslenskrar erfðagrein- ingar lýsa sig tilbúna til að fara að reglum alþjóðasamfélagsins, bæði lækna og annarra. Það er í raun og veru fréttnæmt og við íslenskir læknar hljótum að fagna þeirri ákvörðun vegna þess að þá verður mjög stutt í að hægt verði að breyta þessum íslensku lögum í þá átt að þau séu í takt við alþjóðareglur,“ segir Tómas Zoëga ennfremur. Formaður stjórnar siðfræðiráðs Læknafélags Íslands ÍE mistúlkar hvað felst í skil- málum Alþjóðasamtaka lækna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.