Morgunblaðið - 25.02.2001, Qupperneq 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2001 43
Goðaborgir 1
Falleg 104,6 fm 4ra herb. íbúð á fyrstu hæð með sérinn-
gangi. Komið er inn í flísalagt anddyri með skáp og fata-
hengi. Inn úr anddyri er komið inn í hol, til vinstri er svefn-
herbergisgangur með tveimur rúmgóðum herbergjum, inni
í hjónaherberginu eru góðir fataskápar og einnig lítil geym-
sla eða fataherbergi. Skápar í hinum herbergjunum einnig.
Beint úr holi er herbergi og stofan rúmgóð og björt með
útgangi í sérgarð, eldhús er fallegt með góðum innrétting-
um og borðkrók, ágætis útsýni úr eldhúsi. Til hægri í holi
er bað með flísum. Þar er sturta og tengi fyrir þvottavél og
þurrkara. Þetta er góð eign á fínum stað í Grafarvogi. Laus
frá miðjum mars til 1. apríl. V. 12,5 m.
Opið hús frá kl. 13-17 sunnudaginn 25. febrúar.
Ólafur og Guðrún munu taka vel á móti ykkur.
SUÐURLANDSBRAUT 728 FM
Til leigu og afhendingar nú þegar úrvals húsnæði sem hentar vel fyrir hvers-
kyns iðnað og þjónustu. Mikil lofthæð. Þrennar innkeysludyr.
Vagn Jónsson ehf. Fasteignasala
Skúlagata 30, sími: 561 4433
Sími 533 3444, heimasíða www.thingholt.is
hjá Þorgrími og Ástu í STÓRGLÆSILEGU 209 FM EINBÝLI Á EINNI HÆÐ
ÁSAMT CA 58 FM BÍLSKÚR. HÚSINU FYLGIR GLÆSILEGUR GARÐUR.
Húsið er vel búið og fallega innréttað og í því eru fjögur svefnherbergi, tvær
stofur, tvö baðherbergi, þvottahús og því fylgir stór bílskúr og lítið tréhús.
Opið hús - Njarðargrund 4 í Garðabæ
Opið hús verður í dag, sunnudaginn 25. febrúar, milli kl. 15 og 17
Laugavegur - glæsiíbúð Vorum að fá í
einkasölu 109 fm einstaklega fallega hæð við
Laugaveginn. Mikil lofthæð, 3,5 m. Stórar og
miklar stofur. Eign sem þú verður að sjá. V. 14,9
m. 2932
Mosfellsbær - LAUS Vorum að fá í sölu
mjög fallega 91 fm íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli
við Urðarholt. Parket og flísar á gólfum. Bað-
herb. flísalagt og ný blöndunartæki. Sturtuklefi
og bað. Vandaðar innr. Áhv. u.þ.b. 5 millj. Falleg
eign. V. 12,0 m. 2933
Garðaflöt - Garðabæ Fallegt einbýlishús á
einni hæð ásamt bílskúr alls142 fm Húsið skipt-
ist í forstofu, stóra stofu og borðstofu, þrjú
svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottahús
m/bakútgangi. Bílskúr innréttaður sem einstak-
lingsíbúð. Stór gróinn garður. Endurnýjað bað-
herbergi og parket á gólfum. Flott eign.
V.19,9m. 2935
Leirubakki Vorum að fá í sölu fallega 60 fm
2ja herb. íbúð á 2. hæð. Gott skipulag. Flísar og
nýlegt parket á gólfum. Rúmgott eldhús. Gott
þvottahús/vinnuherb. með síma- og tölvulögn-
um í íbúð. Nýtt gler. Suðvestur svalir. Áhv. 3,4
millj. byggsj. V. 8,3 m. 2694
Húsahverfi - m. bílskúr Falleg 108 fm íb.
með sérinngangi á 3. hæð í fallegu 5-býli auk 26
fm bílskúrs við Garðhús. Glæsilegt eldhús með
vönduðum innr. og tækjum. Fallegt útsýni til
suðurs og vesturs. Þvottahús í íbúð. Íb. er nán-
ast fullbúin, en þó vantar lokafrágang á baði og
gólfefni að hluta. Áhv. 7,6 millj. Laus strax. V.
13,9 m. 2938
Reynimelur Vorum að fá í sölu 3ja-4ra herb.
87 fm íbúð á þessum vinsæla stað. Nýlegt park-
et á gólfum. Nýuppgert baðh. flísalagt í hólf og
gólf. Hús í góðu ástandi. Óviðjafnanlegt útsýni.
V. 12,3 m. 2937
Suðurmýri Vorum að fá í sölu afar fallegt 124
fm parhús. Húsið er á tveimur hæðum. Gegn-
heilt eikarparket á öllum gólfum. Baðherbergis-
gólf flísalögð og eikarinnrétting á baði ásamt
sturtu og baði. Suður-svalir. Þrjú svefnherbergi.
Fallegar innréttingar. Stór stofa. Bílskýli. Fallegt
útsýni. Þessa er vert að kíkja á. V. 19,9 m. 2940
Háabarð - Hafnarfirði Vorum að fá í sölu
fallegt tæplega 200 fm einbýli. Húsið er á tveim-
ur hæðum m/glæsilegu útsýni. Fjögur svefn-
herb, möguleiki á fleirum. Tæpl. 40 fm bílskúr
og geymsla. Fallegt og gott umhverfi. Stór lóð.
V. 18,5 m. 2944
Æsufell - lyftublokk Vorum að fá í sölu vel
skipulagða 54 fm íbúð á 7. hæð í góðu lyftuhúsi.
Parket og flísar á flestum gólfum. Góðar innr.
Gott útsýni. Suðursvalir. Lögn f/þvottavél í íbúð.
V. 7,6 m. 2939
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
O ið i k d f á kl 9 18 d f á kl 12 15Símatími sunnudag milli kl. 12 og 14
Mjóddin - verslunarhúsnæði
Vorum að fá í einkasölu
mjög gott verslunarhús-
næði í Mjóddinni við
hliðina á Íslandsbanka.
Húsnæðið skiptist í 201
fm glæsilegt verslunar-
húsnæði á jarðhæð og
206,7 fm mjög gott hús-
næði í kjallara sem
einnig er nýtt sem versl-
unarhúsnæði. Hentar
mjög vel fyrir t.d. veit-
ingastað eða verslun.
Til afhendingar fljótlega.
Borgartúni 22
105 Reykjavík
Sími 5-900-800
Opið hús í dag
Glæsilegt 138 fm sérbýli sem er sérhæð
og ris, ásamt nýlegum 26 fm bílskúr. Sér-
inng. og sérgarður með góðri verönd.
Neðri hæð: Forst., þv.hús, snyrting, stór-
ar stofur og stórt eldhús með Alno-innr.
Efri hæð: 3 stór herbergi, hol og ný-
standsett baðherbergi. Suðursvalir.Vand-
aðar innr. og gólfefni. Glæsilegt útsýni.
Áhv. 3,7 millj. Bygg.sjóður ríkisins.
4,9% vextir.
Verð 16,5 millj.
Gísli og Ingibjörg taka á móti gestum
í dag á milli kl. 14 og 16.
RANGÁRSEL 2 - SELJAHVERFI
NEMENDALEIKHÚSIÐ frum-
sýnir Stræti (Road) eftir Jim
Cartwright 2. mars næstkomandi.
Verkið segir sögur af fólki sem býr
í niðurníddu hverfi í ónefndri borg.
Það sýnir grámyglaðan hversdags-
leika fólks sem hefur orðið undir í
þjóðfélaginu, þjakað af mennta- og
atvinnuleysi, og þráir að fara eitt-
hvað annað í leit að lífshamingj-
unni.
Um það bil þrjátíu persónur eru í
leikritinu og eru þær túlkaðar af
átta nemendum bekkjarins. Leik-
stjóri verksins er Ingólfur Níels
Árnason. Stræti er fyrsta leik-
stjórnarverkefni Ingólfs á Íslandi,
en hann lauk leikstjórnarnámi á
Ítalíu árið 1999 og hefur starfað þar
þangað til núna.
Stræti er annað verkefnið af
þremur sem Nemendaleikhúsið
sýnir í vetur. Það fyrsta var Ofviðr-
ið eftir William Shakespeare, sem
var sýnt fyrir fullu húsi 28 sinnum.
Þriðja og síðasta verkefnið verður
Platanov eftir Anton Tchekhov.
Vegna mikilla anna í Nemenda-
leikhúsinu var aðeins keyptur rétt-
ur til sýningar á 15 sýningum. Enn
er ekki byrjað að auglýsa sýning-
arnar opinberlega, en eigi að síður
er nú þegar uppselt á fimm sýn-
ingar. Þeir sem vilja ná sér í miða
áður en opinber sala hefst geta
hringt í Nemendaleikhúsið í síma
552 1971 og pantað miða.
Stræti er sýnt í nýju leikhúsi
skólans, Sölvhólsgötu 13. Miðaverð
er 500 krónur.
Nemendaleikhúsið frumsýnir
Stræti eftir Jim Cartwright
Á FUNDI kúabænda víða af land-
inu, sem haldinn var í Borgarfirði
nýverið, var ákveðið að hefja und-
irbúning að stofnun Nautgriparækt-
arfélags Íslands (NRFÍ). Stofnfund-
ur félagsins er fyrirhugaður í næsta
mánuði. „Markmið félagsins verður
að stuðla að vexti og viðgangi naut-
griparæktar á Íslandi, þannig að
tryggt verði eftir föngum að hún fái
staðist þá samkeppni við innfluttar
nautgripaafurðir sem þegar er hafin,
og allt bendir til að muni fara mjög
harðnandi í náinni framtíð,“ segir í
fréttatilkynningu. Einnig segir:
„Markmiðum sínum hyggst félag-
ið ná með því að vinna að sem örust-
um erfðaframförum í kúastofninum
á Íslandi hvað varðar heilbrigði, af-
urðasemi, líkamsbyggingu gripa og
arðsemi, en án notkunar vaxtarauk-
andi lyfja, hormóna eða annarra
slíkra aðferða, sem rýrt gætu traust
manna á hreinleika og hollustu af-
urðanna. Félagið mun m.a. stuðla að
innflutningi á erfðaefni til að ná fram
ofangreindum markmiðum og beita
áhrifum sínum þannig að við setn-
ingu ræktunarmarkmiða verði ævin-
lega tekið mið af nauðsynlegri hag-
kvæmni í búrekstrinum.“
Vilja stofna
nautgripa-
ræktarfélag