Morgunblaðið - 25.02.2001, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VEGNA vaxandi óánægju hjá skóla-
liðum í Grafarvogi hef ég sett þessi
orð saman. Skólaliðar í grunnskólum
gegna mikilvægum störfum. Þeir
sinna gangavörslu, aðstoða börn í leik
og starfi og aðstoða í eldhúsi og heils-
dagsskóla. Við þetta hafa nú bæst
daglegar ræstingar sem áður voru
unnar af fólki sem kom eftir skólalok.
Við þessar breytingar var eitt sem
ekki breyttist neitt, og það voru laun-
in. Þau eru áfram óbreytt, ekkert
aukalega fyrir aukna vinnu. Samning-
ar voru lausir 1. nóvember 2000, samt
er ekkert að gerast. Byrjendalaun hjá
konu sem er 23 ára fyrir 100 prósent
starf eru 87.771 kr. á mánuði. Þeir
sem eru á dreifingu launa til að halda
launum 2 mánuði á sumrin verða að
láta draga 8.000 krónur á mánuði af
launum sínum. Það segir sig sjálft að
veruleg vandkvæði verða að fá hæft
fólk til starfa miðað við þau kjör sem
eru í boði.
Jafnframt skal bent á, að ekki er
hægt að halda skólum opnum án
skólaliða vegna ákvæða um þrif á í
skólum. Launaflokkahækkun sem
átti að koma til framkvæmda fyrir
tveimur árum hefur algjörlega farist
fyrir og auglýsi ég hér með eftir
henni.
Með nýjum samningum kennara
eiga skólaliðar að vera bæði úti og
inni í frímínútum nemenda og trúlega
fáum við ekki borgað aukalega fyrir
það. Það fengu kennarar.
Nú er kominn tími til að hysja upp
um sig og greiða mannsæmandi laun
fyrir þessi mikilvægu störf. Þar að
auki er tekið illa á móti fyrirspurnum
gangavarða og gefin röng svör hjá
starfsmanni Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur.
Fyrir hönd skólaliða í Grafarvogi,
INGIBJÖRG
GRÉTARSDÓTTIR,
skólaliði í Hamraskóla,
Rauðhömrum 8, Reykjavík.
Kjör skólaliða
Frá Ingibjörgu Grétarsdóttur:
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG HEF fylgst með fréttum um
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva síðan sá frábæri maður
Mörður Árnason kom með tillögu í
útvarpsráð að syngja ætti lagið á ís-
lensku. Netkannanir sýndu ótvírætt
að meirihluti þjóðarinnar vildi frels-
ið, þ.e. að syngja mætti lagið á því
tungumáli sem listamaðurinn vildi.
Yfir 80% þjóðarinnar (í um 2000
manna úrtaki) er nokkuð sterkur
meirihluti!
Einhvern veginn virtist alvaran
ekki vera mikil, maður tók ekki fullt
mark á þessari ákvörðun útvarps-
ráðs (6:1) og fylgdist svo með úr-
slitakvöldinu hérna heima. Þá rann
það upp fyrir mér að þessi stirða og
ömurlega nefnd ætlaði sko að sitja
fast á sinni skoðun. Gunnlaugur for-
maður segir bara að Sjónvarpið
styrki þessa keppni innanlands og
því megi það haga undirbúningi sín-
um eins og það vill. Í krafti þess er
höfundur „Birtu“ látinn skrifa undir
samning þess efnis að syngja verði á
íslensku!
Hvernig getur sjö manna nefnd
tekið þessa ákvörðun þegar meiri-
hluti þjóðarinnar vill að sungið verði
á því tungumáli sem listamaðurinn
vill (ensku)? Er það ekki ég sem
borga nauðugur helling af krónum í
RÚV sem styrkir svo íslensku far-
ana? Hef ég ekkert um þetta að
segja?
Er tilgangur keppninnar útvarps-
ráði gleymdur? Er útvarpsráð svo
heilagt að það gilda ekki sömu regl-
ur hér heima og annars staðar?
Íslenskan er okkur öllum mikil-
væg og gott að viðhalda henni. En
við gerum okkur engan greiða með
því að þvinga evrópska sjónvarps-
áhorfendur í að hlusta á íslenska
lagið á íslensku.
Keppnin er að verða vinsælli aft-
ur með þátttöku áhorfenda og því að
gera löndunum jafnhátt undir höfði,
þ.e. ekki binda við tungumál þátt-
tökulandsins. Nú ætlar útvarpsráð
að eyðileggja þetta algjörlega.
Ég vona að útvarpsráð skammist
sín og að Gunnlaugur fari að kveikja
á perunni. Það er ansi hart að þessi
sjö manna nefnd skuli ekki sjá að
„Birta“ er gott lag, sem yfirgnæf-
andi meirihluti þjóðarinnar kaus og
sem allir vilja láta syngja á ensku.
Frelsi er eitthvað sem Gunnlaug-
ur og vinir hans í útvarpsráði vita
ekki hvað er. Skammist ykkar!
ÞORSTEINN JÓNSSON,
tölvuumbrotsmaður,
Miðtún 58 kj., Reykjavík.
Hljómsveitin ABBA sló í gegn eftir þátttöku sína í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva. Hún söng vinningslagið á ensku.
Hneykslanleg
ákvörðun
Frá Þorsteini Jónssyni: